Þjóðlíf - 01.03.1988, Page 34

Þjóðlíf - 01.03.1988, Page 34
VIÐSKIPTI Efnahagsvandi SÍS — bakgrunnur átaka Burtséð frá því hvernig átökunum innan Sambands íslenskra samvinnufélaga lýkur, er ljóst að á næstu misserum verða miklar breytingar á fyrirtækinu. Rætt er um að stríður efnahagsvandi allrar samvinnuhreyf- ingarinnar sé hinn raunverulegi bakgrunnur átakanna. Vangaveltur um að KRON munu á næstu árum setja verulega mark sitt á þró- un samvinnuhreyfingarinnar. Ýmsar kenningar eru á lofti um raunveru- lega ástæðu þeirrar aðfarar að Guðjóni B. Ólafssyni sem margir lesa út úr atburðarás síðustu vikna. Einna helst er talið að upp- ljóstrun um launamál og þess háttar hafi ein- ungis verið forleikur að aðalmálinu: efna- hagsástandi SÍS. Talið er að mótstöðumenn Guðjóns í stjórninni hafi ætlað að nota afar bága stöðu fyrirtækjanna og hreinskilið upp- gjör forstjórans á efnahagsreikingi til að lýsa forstjórann vanhæfan við stjórnvöl fyrirtæk- isins. Á liinn bóginn er slík sóknmótstöðu- manna forstjórans ekki auðunnin, því al- kunna er að ástandið var afleitt þegar Guð- jón settist í þennan stól og því tæplega gerlegt að kenna honum í alvöru um efna- hagsástandið. Engu að síður er sú kenning á lofti að tíndar verði til „sakargiftir" á forstjórann:l) Rekstur fyrirtækjanna gangi illa 2)Honum hafi mistekist að leiða SÍS til lukku í málum eins og sölu Sölvhólsgötuhússins, Fífu- hvammsmálinu og Útvegsbankamálinu 3) Að vegna undangenginna umbrota geti ekki ríkt friður um forstjórann og þess vegna verði hann að víkja. Stuðningsmenn Guðjóns telja þessar „sak- argiftir" fráleitar af ýmsum ástæðum. Guð- jón sé tiltölulega nýkominn til þessara erfiðu starfa, ekki séu minnstu líkur á að öðrum hefði tekist betur til en honum, — og friður hafi ekki ríkt í kringum hann af einföldum ástæðum; aðferðum mótstöðumanna hans. Þess vegna væri fráleitt að hann léti af störf- um vegna „sakargifta" þessara. Stuðningsmenn Guðjóns eru einnig þeirra skoðunar að yfirburðahæfileikar hans við stjórnun fyrirtækja muni um síðir skila tilætl- uðum árangri a.m.k. blasi lítið annað við en upplausn og hrun Sambandsveldisins ef hon- um yrði gert ókleift að sitja stólinn áfram. Hann sé einfaldlega líklegastur manna til að geta stýrt fyrirtækinu til samtímahátta. Baklandsvandinn Nú er ljóst að í vissum skilningi er enginn málsaðila í afgerandi sterkri stöðu innan Sambandsins. Erlendur Einarsson fyrrver- andi forstjóri er smám saman á förum úr trúnaðarstöðum, og Valur Arnþórsson stjórnarformaður Sambandsins er talinn Fréttaskýring vera á leiðinni í Landsbankann. Þessir tveir jöfrar hafa verið einstaklinga voldugastir innan hins mikla bákns, sem nú nötrar undan átökum — og efnahagsvanda. Og trúlega er sá vandi undirrótin — og þær deilur og læti sem landsmenn hafa horft upp á síðustu vik- ur einfaldlega birtingarform þeirrar kreppu? Innan samvinnuhreyfingarinnar er einnig talað um að Guðjón B. Olafsson hafi ekki gætt þess að rækta baklandið í heyfingunni. Hann hafi samkvæmt venju sinni og fag- mennsku ekki áttað sig á flóknu samspili viðskiptahagsmuna og félagslegs baklands SÍS og gert mótstöðumönnum sínum leikinn þar með léttari en ella. En á hinn bóginn er einnig sagt, að hinir forstjórarnir hjá Sambandinu hafi heldur ekki ræktað bakland sitt og því ekki vel í stakk búnir til jafn afdrifaríkra aðgerða og að flæma forstjórann úr stóli. Innan Framsókn- arflokksins eru uppi harðar gagnrýnisraddir gagnvart gömlu SÍS-forkólfunum og ótti um að þessar deilur skaði flokkinn á velmektar- dögum hans meðal kjósenda. Og til eru þeir heimildamenn þar á bæ, sem segja, að komn- ar séu fram efasemdir um skipan Vals í bankastjóraembætti Landsbankans, í ljósi þeirra atburða sem hér hafa orðið. Þegar þetta er skrifað er óljóst hverjir fest- ast í þeim köngurlóarvef, sem spunninn hef- ur verið af vél og kúnst. Eins líklegt að þeir sem spunnu flækist sjálfir í vefnum. Meðal þeirra breytinga sem eru að verða á SÍS, er sú staðreynd að KRON er að verða stærsta „baklandið" og mun á næstu árum eiga langflesta fulltrúa á aðalfundum Sam- bandsins. Með sameiningu kaupfélaganna á höfuðborgarsvæðinu hefur þessi styrkur aukist að mun. Að sama skapi eru áhrif KRON á alla samvinnuhreyfinguna að auk- ast, og hún um leið að breytast enn meir í átt til neytenda frá framleiðendum, frá dreifbýli til þéttbýlis. I þessu sambandi er einnig vert að hafa í huga, að á höfuðborgarsvæðinu hefur verið nokkuð þverpólitísk samstaða um eflingu KRON; meðal Alþýðubanda- lagsmanna. Alþýðuflokksmanna og Fram- sóknarmanna að svo miklu leyti sem hægt er að tala um flokkspólitík í þessu sambandi. í þeirri framtíðarsmúsík sent leikið verður í samvinnuhreyfingunni munu nýir tónar heyrast; neytendakaupfélagstónarnir frá KRON. Það er einnig ljóst að ekki verður hægt að stjórna Sambandinu nema að teknu tilliti til þeirra breytinga sem eru að verða á samvinnuhreyfingunni — líka á næstu aðal- fundum. Óskar Guðmundsson. 34 £2 Símaþjónusta Gulu bókarinnar 62 42 42 ö

x

Þjóðlíf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.