Þjóðlíf - 01.03.1988, Síða 49

Þjóðlíf - 01.03.1988, Síða 49
MENNING „Ég var hrifinn af klausturdagbók Halldórs litla“, segir Þórarinn bóndi á Gullbringu. (Mynd Björn Haraldsson) Skáld í berjamó Mál og mennig gefur út stórbók með verkum Þórarins Eldjárns. Höfundur með skáldsögu í smíð- um „Það er vitaskuld mikill heiður fyrir mig að vera gefinn út í stórbók“, segir Þórarinn Eld- járn kankvís á svip. „Aður hafa tveir af mín- um uppáhalds höfundum verið gefnir út á þennan hátt, þau Þorbergur Þórðarson og Helga Sigurðardóttir, höfundur hins gagn- merka rits, Matur og drykkur. Mér er þess vegna ánægja af því að vera settur á bekk með þeim...“ Fyrir skömmu gaf Mál og menning út stór- bók Þórarins sem inniheldur ljóðabækurnar Kvæði, Erindi og Disneyrímur; smásagna- safnið Ofsögum sagt og skáldsöguna Kyrr kjör. Rit Þórarins hafa jafnan náð miklum vin- sældum og má til dæmis nefna að ljóðabókin Kvæði kemur nú í fimmtu útgáfu og þá verð- ur búið að þrykkja í hana í tæpum tíu þúsund eintökum. Og það er svo sem allt á sömu bókina lært: Disneyrímurnar hafa náð jafn- vel enn meiri útbreiðslu, sem og smásagna- kverið. „Já, það er dálítið skrítið," segir Þórarinn ,að það sem hefur selst best eru annarsvegar rímur og hinsvegar smásögur!" — Þannig að eftir þessu að dæma er hið hefðbundna ljóðform alls ekki dautt, eins og einn góður maður hélt einu sinni fram. „Það er náttúrulega eins og hvert annað kjaftæði", segir skáldið. „Annars hef ég aldrei skilið af hverju ljóðabækur seljast yfir- leitt illa, en svo þegar blásið er til upplestrar koma sjö sinnum fleiri en keyptu nýjustu bókina. Ég held að það sé áhugi á ljóðum, en einhvern veginn hefur forlögunum gengið illa að virkja hann.“ Við vendum okkar kvæði í kross og tíð- indamaður Þjóðlífs spyr Þórarinn hvort út- gáfufyrirtæki hans, Gullbringa, sé nokkuð að leggja upp laupana. „Nei, þvert á móti: Gullbringa dafnar. En það er ágætt fyrirkomulag að höfundur gefi fyrst út bækur sínar og fleyti rjómann ofan af“. Þórarinn hugsar sig um og útskýrir síðan mál sitt með dæmisögu: „Við getum sagt að höfundurinn sé eins og bóndi sem á gott berjaland. Á haustin fer hann auðvitað fyrst- ur og kembir bestu staðina. Svo hleypir hann öðrum að... Það er líka annað íþessu", segir skáldið „það er erfitt að gefa út bækur sínar sjálfur og verða að auglýsa upp eigin verð- leika. Það vita auðvitað allir hver er þar að verki. Þess vegna er gott að fá svona forlag til að sjá um þá hlið málanna öðru hvoru!“ Gullbringa lifir og Þórarinn upplýsir að í haust gefi forlagið út skáldsögu eftir hann. „Nei, auðvitað vil ég ekkert segja þér frá þessari bók. Ef við tölum sarnan aftur eftir svona tvö til þrjú ár skal ég hinsvegar glaður segja þér allt um hana“. Svona eru flestir höfundar því miður þegar talið berst að því sem liggur á púltinu. Það eru því nokkur tíðindi að Þórarinn upplýsti að þessi nýja skáldsaga gerist ekki jafn langt aftur á öldum og síðasta skáldsaga hans, Kyrr kjör. Eða eins og hann sagði orðrétt: Þessi saga er meira í nútímanum. Talið berst að síðustu skáldsagnavertíð, sem Þórarni fannst vera góð. „Ég er búinn að lesa nokkrar skáldsögur: Svövu, Vigdísi, Kristján Jóhann og Þórhalla sögu Eiríks Laxdal. Það er stórlega athyglisverð bók... Jú svo las ég klausturdagbók Halldórs litla. Og ungu mennina, Gyrði og Sjón. Já, þetta var góð vertíð“. Um svipað leyti og stórbókin kom út flutti Háskólakórinn hinar frægu Disneyrímur Þórarins, undir stjórn Árna Halldórssonar. „Ég fylgdist nú ekki náið með gangi mála“ , segir Þórarinn „en þetta er svona sambland af rammíslenskum stemmum og amerískri kvikmyndagerð. Það er góð blanda". hj. 49

x

Þjóðlíf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.