Þjóðlíf - 01.03.1988, Page 51
MENNING
\
Ógöngur
Prédikari í
nýju klandri
Sjónvarpspredikarinn Pat Robertson hefur
komið á óvart með miklu fylgi í forkosning-
unum í Bandaríkjunum, sem hann hefur
byggt á vel skipulögðum hulduher öfgasinn-
aðra kristinna manna, sem telja sig frelsaða.
En nú hefur tekið að syrta í álinn fyrir
Robertsson og hann er lentur í málaferlum
sem erfitt verður að ljúka með reisn fyrir
þennan krossfara Krists.
Viðskiptajöfur einn í Kaliforníu hefur
haldið því fram, að faðir Pat Robertson, sem
var á sínum tíma öldungadeildarþingmaður
hafi misnotað aðtöðu sína til að koma syni
sinum undan því að lenda í bardögum í Kór-
eustríðinu fyrir nokkrum áratugum.
Robertsson hefur neitað þessu afdráttar-
laust, og kært manninn. Nú hefur hins vegar
komið babb íbátinn, viðskiptajöfurinn hefur
lagt fram mörg bréf, meðal annars frá föður
prédikarans, sem virðast styðja rækilega
ásakanirnar.
Robertson hefur nú ítrekað reynt að ná
sáttum án þess að málið fari fyrir dómstóla
en andstæðingur hans þverneitar að láta
hann sleppa. Petta hefur spurst út, og þykir
benda til þess að Robertson viti upp á sig
sökina.
í viðbót við þetta hefur nú komið fram að
sjónvarpsprédikarinn hefur logið upp á sig
stríðsdáðum í ævisögu sinni. Þar er frá því
greint að í Kóreustríðinu hafi Pat Robertson
verið í fremstu víglínu og lent í návígi við
fjandmanninn. Nú hefur sannast að hreysti-
dáðir sjónvarpspredikarans í Kóreu eru upp-
spuni og hefur hagur hans lítt batnað við
þetta.
DG
[N#\Í\GJ
SKAK-
M
TOLVAN
SEM
SIGRAÐI
Eigum mikið úrval
NOVAGskáktölva
allt frá 1500 til 2150 eló-stig
VerðMkr. 2.700.-
Eigum einnig mikið úrval af
taflmönnum, borðum, bókum og
öllu því sem skáklistinni fylgir.
SKÁKHÚSIÐ
Laugavegi 46 • Sími 19768