Þjóðlíf - 01.03.1988, Qupperneq 53

Þjóðlíf - 01.03.1988, Qupperneq 53
MENNING Jón gefur — og Jón tekur Listamannalaunum var úthlutað fyrir fá- einum vikum við misjafnar undirtektir. Launin voru ekki, nú frekar en endranær, neinn sérstakur búhnykkur og deildar mein- ingar um heiðurinn sem í þeim er fólginn. En þeim listamönnum sem ætluðu að inn- heimta launin sín brá illilega í brún þegar þeir sáu að búið var að draga 35% af í stað- greiðslu skatta. Starfsmenn fjármálaráðu- neytis kváðu þetta engin mistök: listamenn skyldu borga skatt af sínum styrk og ekkert múður. Fyrir bragðið snarlækkar sú lága upphæð sem fer í listamannalaunin og verða þau sífellt minna eftirsóknarverð dúsa. Sam- tök listamanna hafa hinsvegar ekki sagt sitt síðasta orð — og þegar síðast fréttist átti Jón Baldvin von á listrænni heimsókn. En staðgreiðsla skatta hefur víðtækari áhrif. Þannig mun það nú tíðkast að taka purrkunarlaust af einstökum styrkjum til einstaklinga. Þannig var t.a.m. um rithöfund sem sótti um og fékk ferðastyrk upp á 40.000 krónur til að þess fara til útlanda þar sem verkum hans hafði hlotnast nokkur veg- semd. Þegar rithöfundurinn sótti styrkinn hafði hann skroppið allmikið saman: 27.000 krónur átti rithöfundurinn að fá og ekkert umfram það. Staðgreiðslan, útskýrði skrif- stofumaður fyrir rithöfundinum. Og þessari niðurstöðu varð ekki haggað. Nýr formaður RSÍ Sigurður Pálsson, formaður Rithöfunda- sambands íslands, mun láta af embætti í vor eftir fjögur annasöm ár. Ekki er ljóst hverjir hafa áhuga á embættinu, en það felst í æ ríkara mæli í hvers lags kjarabaráttu við að- skiljanlega aðila. Nokkrir hafa verið nefndir — og fylgir sögunni að þeir hafi engan sérstakan áhuga sjálfir — þ.á.m. Einar Kárason og framherj- inn knái úr sveit súrrealista, Sjón. Þá eru og uppi raddir um að tímabært sé að kona taki við rithöfundasambandinu, enda séu konur að yfirtaka bókmenntirnar. í þessu sam- bandi er helst talað um Olgu Guðrúnu Árna- dóttur. Skoðanakönnun Grunnir og djúpir íslendingar Vísindahópur kannar hvaða fjölmiðlaíslendingar lenda í grunnu lauginni og hverjir kom- ast í þá djúpu. En hverjir eru í heita pottinum? Á tímum samkeppninnar hefur ekki þótt nema sjálfsagt að hólfa frægt fólk niður eftir klæðaburði þess, glæsileika, vaxtarlagi stjórnmálaskoðunum og öðru sem notast get- ur sem mælikvarði á ágæti nútímamann- eskju. Samkeppnisfræðingar Þjóðlífs vilja ekki láta sitt eftir liggja og hafa með tölu- verðri nákvæmni reiknað út djúpa og grunna Islendinga í fjölmiðlum. Til að auðvelda les- endum skilning á þessari hólfun, er fólki ráð- lagt að ímynda sér stóra sundlaug, þar sem einn hópur fer í grunnu laugina en annar í þá djúpu. Við rannsóknina efndu samkeppnisfræð- ingarnir til nokkuð ítarlegrar skoðanakönn- unar og eru helstu niðurstöður skráðar á meðfylgjandi töflum; annars vegar hópur a sem átti að fara í grunnu laugina, en hins vegar hópur b sem mátti svamla um í djúpu lauginni. Tilnefningarnar voru að vísu á fleiri „sundmenn“ en sjást á töflunum en brugðið var á það ráð að halda fjöldanum innan við- a) í grunnu Árni Johnsen söngvari Ásmundur Stefánsson hagfræðingur Bryndís Schram ráðherrafrú Bjarki Elíasson yfirlögregluþjónn Egill Jónsson alþingismaður Eiríkur Jónsson fréttastjóri Stjörnunnar Guðmundur Ágústsson alþingismaður Hallur Hallsson skákskýrandi Heiðar Jónsson snyrtir Hermann Gunnarsson skemmtir Herdís Þorgeirsdóttir ritstjóri Ingólfur Guðbrandsson ferðamaður fvar Hauksson vöðvahnyklari Jóna Gróa Sigurðardóttir borgarfulltrúi Jón Óttar Ragnarsson stöðvartjóri Karvel Pálmason alþingismaður Kvennalistinn stjórnmálaflokkur Steingrímur Hermannsson ráðherra Valgerður Matthíasdóttir sjónvarpsmaður Þórður Friðjónsson forstöðumaður ráðanlegra marka prentlistarinnar. Þátttak- endur í könnuninni voru að meirihluta til jákvæðir gagnvart þátttöku og er einungis vitað um þrjá, sem neituðu að tilnefna menn í laugarnar. Athygli skal vakin á því að einn maður, Steingrímur Hermannsson, hlaut til- nefningar bæði í gunnu og djúpu laugina. Margir vildu þróa þessa hugmynd áfram fyrir tímaritið og var t.d. stungið upp á að hafa sérstakan heitan pott fyrir slóttugustu Islendingana. Voru þeir tilnefndir í þann pott: Steingrímur Hermannsson, Ragnar S. Halldórsson, Valur Arnþórsson, Ólafur Ragnar Grímsson, Davíð Oddsson, Þórhild- ur Þorleifsdóttir, Jóhannes Nordal og Styrm- ir Gunnarsson. Þá voru nokkrir þeirrar skoðunar að hafa ætti einn hóp sem hefði verið rekinn fyrir ólæti uppúr lauginni. Tilnefndir: Davíð Oddsson, Hrafn Gunnlaugsson, Össur Skarphéðinsson, Ingvi Hrafn Jónsson, Ómar Ragnarsson, Flosi Ólafsson, Kristján Jó- hannsson, Landssamband hestamannafé- laga, Sighvatur Björgvinsson, Albert Guð- mundsson og Iceland Seafood. Og þegar hér var komið sögu, var skoð- anakönnunin komin út í hálfgert „flipp“ og í ending voru kosnir baðverðir: Hannes H. Gissurarson og Megas. F.h. vísindahópsins hg b) í djúpu Álfrún Gunnlaugsdóttir rithöfundur Guðrún Agnarsdóttir alþingismaður Halldór Laxness rithöfundur Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur Jón Baldvin Hannibalsson formaður Jónas Kristjánsson ritstjóri Jónatan Þórmundsson prófessor Jóhannes Nordal bankamaður Kristín Jóhannesdóttir leikstjóri Matthías Johannesen skáld Ólafur Ragnar Grímsson prófessor Steingrímur Hermannsson ráðherra Styrmir Gunnarsson ritstjóri Sveinn Einarsson leikstjóri Valur Arnþórsson kaupfélagsstjóri Vigdís Grímsdóttir rithöfundur Þorsteinn Gylfason heimspekingur Þorsteinn frá Hamri skáld Þórarinn Eldjárn rithöfundur Þröstur Ólafsson hagfræðingur 53
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Þjóðlíf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.