Þjóðlíf - 01.03.1988, Side 64
ERLENT
Glasnost í ríki og kirkju. Kirkjan í grasrótinni veitir fólki skjól, sem hungrar og þyrstir í
frelsi og mannréttindi. Myndin er tekin í Austur-Þýskalandi af kveðjuguðsþjónustu á
evangeliska kirkjudeginum í júní í fyrra.
VIÐ FYLGJUMST
MEÐ,
GERIR ÞÚ ÞAÐ?
Ágæti lesandi auglýsing þessi er til
aö gera þér grein fyrir því helsta sem
hefur verið að gerast hjá okkur að
undanförnu og nýjungum í
tækjakosti sem bjóða upp á enn
fjölbreyttari, vandaðri og hraðari
þjónustu en áður. Þar ber helst að
nefna nýtt tölvukerfi, Intellipress,
sem gerir kleift að tölvusetja og
útlitsteikna fyrir offsetfjölritun á
miklu hraðvirkari hátt en áöur.
Sérstaklega hentar þetta kerfi vel
þeim sem vinna texta með
ritvinnslukerfi. Við tökum við
disklingnum og sjáum svo um það
sem eftir er; letursetningu, útlit,
umbrot, offsetfjölritun, brot,
samröðun, skurð, límingu og loks
bókbandsvinnu að þínum óskum
-allt með hraðanum sem við erum
þekktust fyrir.
Þaðkemurþér eflaust á óvart, hversu
mikið hægt er að offsetfjölrita í stað
!>ess aö prenta. Tíma- og
jársparnaður er með ólíkindum og
þegar hægt er að fá alla vinnsluna
frá upphafi til enda á einum og
sama staðnum, -þá er hagræðið
verulegt.
Helstu ritvinnslur og forrit sem við tökum
við gögnum frá af disklingum.
WordPerfect, Ms-Word, WordStar,
Symphony, DisplayWrite ofl.
Grafík: Gem, AutoCad, MacPaint,
PcPaintbrush, Lotus ofl. ofl.
Hjá Stensli hf. bjóðum viófram krafta
okkar, glæsilegan tækjakost og
áralanga reynslu ífaginu.
Við veitum þér allar nánari
upplýsingari Síma: 24250
-STEnSILL.
Nóatúni 17,105 Reykjavík, sími.: 24250.
eða pólitíska afstöðu hefur kirkjan haldið
dyrum sínum opnum fyrir öllum þeim sem á
einhvern hátt eru í nauðum staddir, einnig
þeim sem gengur illa að halda sig innan
þeirra marka sem stjórnvöld setja.
Þar hefur fólk í æ ríkara mæli komið sam-
an til að ræða þau málefni sem annars var
ekki hægt að ræða nema í þröngum og örugg-
um vinahópi. Málefni sem snerta umhverfis-
vernd, herskyldu, ferðafrelsi, uppeldismál,
hið opinbera tvöfalda siðgæði í samfélaginu
og fleira og fleira, hluti sem snerta almennt
og daglegt líf fólks, einkum gagnrýnins ungs
fólks. Vissulega var og er þetta unga fólk
misjafnlega vongott um að því endist aldur,
kraftur og kannski helst þolgæði til að upp-
lifa drauma sína um frjálsara líf.
Sumir vildu helst yfirgefa landið strax og
horfa löngunarfullum augum vestur yfir múr
þar sem einnig þegnarnir njóta ákveðinna
réttinda til eigin ákvarðana um líf sitt. Par
sem einnig þegnarnir geta ákært stjórnendur
ríkisins fyrir órétt eða illa unnin störf en ekki
einungis stjórnvöld þegna sína. En það sem
þetta unga fólk ekki síst sér ofsjónum yfir eru
þeir möguleikar sem íbúar Vestur-Þýska-
lands og annarra vestrænna ríkja búa við til
að ferðast, framkvæma hugmyndir sínar þótt
þær séu á skjön við ríkjandi hefðir og gera
tilraunir með önnur form samvinnu og sam-
lífs en reglur stjórnvalda gera ráð fyrir. Pessi
hreyfing eða öllu heldur smáhópar minna
um margt á hippahreyfinguna og síðar 68-
hreyfinguna svokölluðu í Ameríku og
Evrópu fyrir tveimur áratugum.
Pótt hópur þeirra sem búnir eru að fá sig
fullsadda af rammgerðu reglusamfélagi Al-
þýðulýðveldisins sé vissulega stór, og myndi
jafnvel meirihluta þeirra nýju kirkjugesta
sem á undanförnum árum hafa uppgötvað
kirkjuna, þá er hinn hópurinn ekki síður stór
og fer vaxandi sem lítur á kirkjuna m.a. sem
vettvang til að skiptast á skoðunum og setja
fram kröfur um breytingar á samfélaginu
innan sósíalismans. Það er rétt að taka fram
að hvorugur þessara hópa, sem ég hef kallað
svo, mynda einhvers konar einhuga fylk-
ingu. Lýðveldisleiðir þegnar eru á öllum
aldri og úr öllum stéttum. Umbótasinnar eru
yfirleitt ungt fólk sem ýmist kennir sig við
friðar- og mannréttindamál, umhverfisvernd
eða vill einfaldlega fá að vera í friði, án íhlut-
unar ríkisins.
Mannréttinda og
erfísmál
Fyrir um það bil ári var innan Zionsafnað-
arins í hverfinu Prenslau í Austur-Berlín
komið á fót svokölluðu umhverfisbókasafni
þar sem safnað var saman upplýsingum um
mengun, umhverfisvernd og friðarmál.
Bókasafnið gaf einnig út umhverfismála-
blöðunga um umhverfisvernd jafnt í heima-
húsum sem í orku- og iðnaðarframleiðslu.
Einnig fékk óháður félagsskapur um
inannréttindamál aðstöðu á bókasafninu til
útgáfu lítils tímarits „A mörkunum" sem
undanfarin tvö ár hefur komið út nokkuð
reglulega á mánaðarfresti. Tímarit þetta
fjallar um friðar- og mannréttindamál og að-
gerðir í þágu þessara málefna bæði innan-
lands og utan. Þar birtast fréttir af störfum
grasrótarhreyfinga í öðrum löndum, auðvit-
að einkum austantjaldslöndum, eins og t.d.
af fyrsta opinbera sameiginlega fundi gras-
rótarhreyfinga í Sovétríkjunum sem var
haldinn í Moskvu á síðasta ári.
64