Þjóðlíf - 01.10.1988, Blaðsíða 22
INNLENT
flokki og verður aðeins fjallað um hann
hér.
Við Persaflóa
Síðasta mót fór fram í olíufurstadæminu Du-
bai við Persaflóa og þar náði íslenska sveitin
5. sæti eins og gjörkunnugt er. Nokkur styrr
stóð um þetta mótshald vegna þess að ísra-
elsmönnum var meinuð þátttaka og voru
meðal skáksambanda á Vesturlöndum uppi
áform um að hundsa mótið, en samstaðan
brast og svo fór að endingu að einungis Hol-
lendingar og fjórar Norðurlandaþjóðir
(Finnar mættu ásamt íslendingum) sátu
heima. Sovétmenn komu til leiks öflugir sem
aldrei fyrr en áttu þegar á hólminn var komið
mjög undir högg að sækja og tókst með
naumindum að ná efsta sætinu, hálfum vinn-
ingi á undan Englendingum, eftir æsispenn-
andi lokaumferð.
í Makedóníu
Það er einmitt dæmigert fyrir þessi mót að
örlög ráðast í síðustu umferð. Par sem teflt er
á fjórum borðum getur sveit sem vinnur stór-
an sigur hækkað sig um mörg sæti. Petta
lánaðist íslensku sveitinni einmitt í Dubai
þegar hún fékk 3.5 vinninga gegn Spánverj-
um í frækilegum sigri.
Olympíumótin eru tvímælalaust viða-
mestu skákviðburðir okkar daga; í Þessalón-
íku munu rúmlega 100 sveitir mæta til leiks
og tefla 14 umferðir eftir Monrad-kerfi. Víst
er að sumar mæta fremur til að vera með en
sigra. Þó verður hart barist um efstu sætin.
Flestir reikna með sigri Sovétmanna sem
endranær, enda munu ekki ómerkari menn
en Kasparov og Karpov tefla fyrir þeirra
hönd, ásamt stórsleggjum á borð við Belja-
vskí, Salov og Júsúpov. Líklega munu Eng-
lendingar með góðkunningja íslenskra skák-
áhugamanna, þá Short, Nunn og Speelman
innanborðs, veita þeim harða keppni eins og
síðast, svo og hin gamalgrónu stórveldi skák-
íþróttarinnar, Ungverjar, Júgóslavar og
Bandaríkjamenn. Fleiri þjóðir munu án efa
blanda sér í baráttuna um verðlaunasæti.
Vestur-þjóðverjar, Hollendingar og Svíar
hafa sterkum liðum á að skipa og ef að líkum
lætur munu lítt þekktir skákmenn úr þriðja
heiminum láta til sín taka og koma á óvart nú
eins og á síðustu mótum. Frá Asíu senda
fjölmennustu þjóðir heims, Kínverjar, Ind-
verjar og Indónesar sveitir sem kvöddu sér
rækilega hljóðs í Dubai og gætu hæglega sett
strik í reikning margra einnig í þetta sinn.
Indónesar gerðu einmitt sérstaklega mikinn
usla meðal stórþjóðanna framanaf mótinu. I
sveit þeirra fór fremstur ungur maður og
ákaflega smávaxinn, Utut Adianto að nafni
og hjó ótt á báðar hendur. Margir þekktir
meistarar lágu í valnum og þegar Indónesar
mættu íslensku sveitinni hafði hann unnið
átta skákir í röð. En Jón L. Árnason kunni á
honum tökin:
Adianto
Jón L. Árnason
Hvítur hefur teflt byrjunina af mikilli
dirfsku, fórnað peði og nú gerir hann út urn
skákina í sannkölluðum nítjándualdarstíl:
18. Hxf7! Dxe5 19. Bxe6 c2 20. Hafl Bd3 21.
Bd7+ Kd8 22. Bxc6 og svartur gafst upp.
Þessi skák fór víða.
Samhent sveit
Hernaðaráætlun Dr. Kristjáns Guðmunds-
sonar liðsstjóra og liðsmanna hans á þessu
Ólympíumóti verður án efa að reyna að
komast í kast við sterkustu sveitirnar sem
fyrst og ná góðri uppsveiflu í síðustu umferð-
inni eins og á síðasta móti. Hvort sem það
tekst eða ekki er öruggt að aðrar sveitir
munu fylgjast náið með frammistöðu íslend-
inganna. Sveitin verður væntanlega í 7.-8.
sæti í styrkleikaröð sem sett er upp í byrjun
móts skv. Elostigum fjögurra aðalmanna
hverrar sveitar. Hún þykir búa yfir mikilli
reynslu af mótum sem þessum og vekur at-
hygli fyrir frábæra samvinnu og samheldni í
þessari erfiðu keppni. Segja má, að sami
kjarni hafi verið í sveitinni síðasta áratug eða
svo, en nýir menn komið inn einn af öðrum
eftir því sem hinir eldri hafi dregið sig í hlé.
Jóhann Hjartarson kom til liðs við sveitina
1980, Karl Þorsteins 1984 í stað Friðriks og
nú mun Þröstur Þórhallsson taka sæti Guð-
mundar Sigurjónssonar og tefla á sínu fyrsta
Ólympíumóti.
Sveitin verrður því svo skipuð:
1. borð: Jóhann Hjartarson
2. borð: Jón L. Árnason
3. borð: Margeir Pétursson
4. borð: Helgi Ólafsson
1. varamaður: Karl Þorsteins
2. varamaður: Þröstur Þórhallsson
Fagmannleg vinnubrögð hafa einkennt
undirbúning íslensku sveitarinnar og fram-
göngu alla á síðustu Ólympíuskákmótum.
Skákmennirnir leggja feykilegan metnað í að
ná góðum árangri. Verði heilladísirnar með í
för er víst að ófáir meistarar munu feta í
fótspor Indónesans smávaxna hér að framan
og enn einn ávöxtur íslenska skákundursins
líta dagsins Ijós.
Lokastaðan í Dubai 1986
1. Sovétríkin
2. England
3. Bandaríkin
4. Ungverjaland
5. ísland
6. Búlgaría
7. Kína
8. Tékkóslóvakía
9. Kúba
10. Frakkland
11. Argentína
12. Perú
13. Vestur-Þýskaland
14. Austurríki
15. Júgóslavía
16. Pólland
17. Portúgal
18. Rúmenía
19. Indónesía
20. Brasilía
Styrkleikaröðin í Þessaloníku 1988*
1. Sovétríkin
2. England
3. Ungverjaland
4. Júgóslavía
5. Bandaríkin
6. Vestur-Þýskaland
7. Holland
8. (sland
9. Svíþjóð
10. Kúba
11. ísrael
12. Búlgaría
13. Tékkóslóvakía
14. Argentína
15. Danmörk
16. Kanada
17. Rúmenía
18. Noregur
19. Kína
20. Sviss
* Byggt á Elo-stigum 4 hæstu manna hjá
hverri þjóð 1. júlí sl. Röðin gæti breyst ef
stigalægri menn verða valdir í sveitirnar.
Áskell Örn Kárason
22