Þjóðlíf - 01.10.1988, Qupperneq 32

Þjóðlíf - 01.10.1988, Qupperneq 32
MENNING með Frænkunni.,, Gimbil telur hann ekki æskilegt verkefni og gallað mjög“ segir í fundargerðarbók L.R. Stjórnin samþykkti að sýna frekar Frænku Charles sem gekk síðan við fádæma vinsældir eins og margir muna. En þar með var Gimbill ekki úr sög- unni. Brynjólfur fékk Gunnari Hansen leik- ritið í hendur og tók hann því vel, fannst það allgott, fallið til vinsælda en þyrfti þó „all- miklar breytingar, tilfærslur í senum o.fl.“ eins og kemur fram í fundargerð 4. mars. Þar segir einnig. „Brynjólfur, sem einn veit hver höfundur er, telur að hann (höf.) muni fús á breytingar þær sem leikstj. telji þurfa á leikn- um. Þ. Ö. Steph. (Þorsteinn Ö. Stephensen) o.fl. telja æskilegt að leikstj. og þá helst stjórn L.R. fái vitneskju um hver höf. sé. Ákveðið að Br. Jóh. færi þetta í tal við höf.“ „Yðar einlægur" neitaði að gefa sig fram en óskaði eftir skriflegum tillögum frá Gunnari Flansen og var það látið gott heita. 10. aprfl ákveður síðan stjórn L.R. eftir atkvæðagreiðslu að taka Girnbil til sýninga. Steindór Hjörleifsson og Þorsteinn Ö. Step- hensen voru á móti, töldu of langt liðið á leikárið og auk þess gengi Frænka Charles svo vel. Rúmum mánuði síðar frumsýndi fé- lagið síðan Gimbil eftir þennan dularfulla höfund sem enginn vissi hver var. Nema náttúrlega Brynjólfur Jóhannesson. Gott fordæmi fyrir nafnleynd „Yðar einlægur" var ekki fyrsti leikritshöf- undurinn til að skýla sér bak við dulnefni á Islandi. Ekki var t.d. langt um liðið síðan Leikfélag Reykjavíkur sýndi verk eftir einn slíkan en þá var líka ljóstrað upp unr höfund- inn eftir frumsýningu, — það reyndist vera sjálfur Sigurður Nordal. Að sögn Steindórs Hjörleifssonar leikara sem þá var ritari í stjórn L.R. var staðið þannig að því leikriti að einn hjá félaginu vissi hver höfundurinn var og sá hann alfarið um samskipti við huldumanninn. Þetta tókst vel svo að mönn- um fannst ekkert tiltökumál þótt sporgöngu- maður Sigurðar Nordals kæmi fram, — auk þess „gat þetta blessast stórkostlega" eins og Steindór orðaði það í samtali við Þjóðlíf. „Þá voru menn líka margir hverjir feimnir við sitt andlega pródúkt.“ Svo nafnleynd var ekkert tiltökumál hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Þetta vakti hins vegar að vonum athygli í bæjarlífinu og reyndi almenningur að geta sér til um hver höfundur Gimbils væri. í Morgunblaðinu kom frétt 19. maí (áður en verkið var frumsýnt) þar sem sagði m.a.: „Ýmsar getgátur hafa verið að því leiddar hver þessi „Yðar einlægur" er, og hafa verið nefndir ýmsir menn í því sambandi, eins og t.d. Bjarni Guðmundsson, Guðmundur Arn- grímsson, Loftur Guðmundsson o.m.fl.“ Gagnrýnendur að meðaltali ánægðir Gagnrýnendur tóku Gimbli misjafnlega eins og gengur. I Þjóðviljanum 22. maí sagði að leikritið væri fyndið á köflum en ekki mikið meira en það. Síðan segir Ásgeir Hjartarson gagnrýnandi blaðsins: „Því skal raunar ekki gleymt að höfundurinn kemur til dyranna eins og hann er klæddur, hann hefur aldrei ætlað sér að auðga leikrænar bókmenntir ís- lenzkar eða flytja neina speki, leikur hans á ekki að vera annað en fislétt grín.“ En hann finnur að byggingu leikritsins, segir hana slappa og ótrausta en bætir svo við: „Það er raunar engin nýlunda að íslenzkum höfund- um sé ósýnt um byggingu leikrita.“ Ásgeir segir tilviljun ráða að verkið gerist í Keflavík BÍLEIGENDUR ATHUGIÐ! ALLT Á SAMA STAÐ Véla-, Ijósa- og hjólastillingar VlM>* Allar almennar viðgerðir Réttingar og sprautun BÍLAVERKSTÆÐIÐ °6 VIRKINN Flatahrauni 21 220 Hafnarfirði O 53440 þar sem „á hernámið alræmda er varla minnst“. Ásgeir Hjartarson fer síðan að velta fyrir sér höfundi Gimbils og segir: „Leikrit þetta gæti verið verk tveggja manna eða fleiri, manna sem margt hafa lesið og séð um æfina og dettur ýmislegt skemmtilegt í hug og láta það flakka ásamt nokkrum tilvitnunum í orð spekinga og skálda, allt í trausti þess að áhorfendur hlæi og láti gamanið sér vel líka; og það tekst stundum og stundum ekki.“ Jónas Þorbergsson fagnaði því í leikdómi í Tímanum 23. maí að í Gimbli væri ekki verið að hlæja á kostnað einhvers, — þetta væri hreinn gamanleikur „og er um það nokkur nýjung á íslenzku leiksviði." Síðan segir Jón- as. „Ætla mætti að höfundi gamanleiks, sem látinn er gerast í Keflavík, yrði það fyrir að þreifast um í herbúðum setuliðsins á Kefla- víkurflugvelli og umhverfis þær. Mörgum manni með íslenzku lundarfari verða þar hæg heimatök um grátt gaman og illkvittni. — En í leiknum er vandlega sneitt hjá öllu slíku.“ Sigurður Grímsson á Morgunblaðinu var ekki síður hrifinn en Jónas Þorbergsson í 32
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Þjóðlíf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.