Þjóðlíf - 01.10.1988, Page 37

Þjóðlíf - 01.10.1988, Page 37
MENNING Séra Jón prímus (Baldvin Halldórsson) neglir fyrir kirkjuna, Umbi (Sigurður Sigurjónsson) fylgist með. kaþólskt innskot í söguna, lífsreynd kona sem fær þó alltaf fyrirgefningu synda sinna. Inn í þetta kemur Umbi eins og græningi. Hann flækist inn í söguna og veit loks ekki hver hann er. Hann er alltaf að fara en verð- ur samt eftir og á endanum tælir Úa hann. Enda vön manneskja.“- Jökullinn kenmr mikið við sögu. „Já, Jón er taóisti sem segir að fólk geti trúað á hvað sem er, þess vegna nagla, en sjálfur trúir hann á jökulinn. Hann segir að kirkjan sé lokuð en jökullinn er alltaf opinn. Jöklamenn trúa því að það sé guð eða eitt- hvað þess háttar í jöklinum og koma þangað „to get reloaded“ (endurnýja orkuhleðsl- una). Jóni nægir að horfa á hann.“- Urðuð þið fyrir áhrifum af jöklinum? „Æ, ég veit það ekki. Við fórum upp á hann en mér fannst hann ósköp ljótur þegar upp var komið og varð ekki fyrir neinum áhrifum. Fannst bara gaman að vera í fallegu landslagi þarna á nesinu. Hins vegar bilaði flest sem bilað gat hjá okkur og það vildu sumir kenna jöklinum um. Þegar við fórum upp á jökul skall á þoka, snjóbíllinn bræddi úr sér og talstöðin bilaði. Á endanum gengum við upp eftir og drógum á eftir okkur líkkistuna þar sem við geymdum græjurnar. Þetta gat eins verið ár- ið 1920. En sem við paufuðumst þarna upp jökulinn fóru nokkrir leikararnir að humma í átt að tindinum og eftir fimm mínútna humm reif hann af sér þokuna. Þetta vildu margir meina að væri yfirnáttúrulegt en ég var ekki alveg trúuð á það. Mér fannst ég þurfa frek- ari sannanir.“ Ekkert persónulegt - Þið hafið fengið útlendan handritshöfund til liðs við ykkur. Breytti hann miklu eða eruð þið trú sögunni? „Já, við erum það. Ég ætlaði sjálf að skrifa handritið en hætti við það og fékk kanadísk- an kunningja minn og fyrrverandi kennara, Gerald Wilson, í verkið. Ég var samt hálfner- vös og skrifaði í laumi annað handrit til von- ar og vara. Svo kom í ljós að allir áherslupun- ktar voru svipaðir hjá okkur. Hann fylgdi bókinni vel en auk þess var hans handrit miklu betra. Hann hefur búið á írlandi og lesið bæði íslendingasögurnar og margar af bókum pabba. Hann þekkir því betur til en margir aðrir og finnst margt líkt hér og á írlandi."- En hvers vegna breyttuðþið kálfinum ísel? „Kannski var það vegna þess að kálfur með skitu þótti ekki eins myndrænn og selur. En ég sá einu sinni svona gerði með sel í Flatey á Breiðafirði, þar var nokkuð algengt að fólk tæki að sér seli sem flæktust upp á land. Við bjuggum um selinn í baðkari og gáfum honum mjólk og vítamín í fyrstu en fisk þegar hann stækkaði. Það var gaman að fylgjast með honum. Við létum hann fá speg- il til að viðhalda sjálfsmyndinni af því hann sá bara mannfólk í kringum sig. Eftir 5-6 vikur var honum sleppt í sjóinn og nokkru seinna þegar við vorum að kvikmynda í fjör- unni kom hann og heilsaði upp á okkur.“- Höfðuð þið samráð við Halldór um gerð myndarinnar? „Við sýndum honum handritið og spurð- um hann spjörunum úr um bókina, hvort við skildum hana ekki rétt. Það var mjög gott. Að öðru leyti kom pabbi ekki nálægt þessu nema hvað hann sagðist hafa haft óskaplega gaman af að semja þessa sögu og bað okkur að vera í góðu skapi meðan við værum að filma. Við það stóðum við. 37

x

Þjóðlíf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.