Þjóðlíf - 01.10.1988, Blaðsíða 52

Þjóðlíf - 01.10.1988, Blaðsíða 52
Aldraðir eru hlutfallslega fáir á íslandi mið- að við önnur Norðurlönd. Einungis 10 prós- ent þjóðarinnar eru yfir 65 ára aldri en 17 prósent Svía. Samt eru þúsundir aldraðra Islendinga á biðlistum eftir plássi á stofnun eða í verndaðri þjónustuíbúð. Víða á íslensk- um stofnunum er aðbúnaður þeirra ekki í samræmi við gildandi lög. Hjúkrunardeildir eru yfirfullar og samræmast ekki lögum. Úr- elt húsakynni eru í notkun, sérstaklega á einni stofnun —, Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund. Þar hafa á síðustu árum verið allt að 250 vistmenn á hjúkrunardeildum, þótt heimilið hafi einungis rekstrarleyfi fyrir 200 pláss. Allt að átta aldraðir verða að deila með sér einu herbergi á Grund. Þær fjárhæðir, sem ríkisvaldið leggur fram til úrbóta eins og bygginga á nýjum fbúðum og hjúkrunardeildum fyrir aldraða, eru hverfandi. A síðastliðnu ári varði ríkissjóður einungis 160 milljónum í það að koma upp slíkum stofnunum á öllu landinu. Upphæðin var í krónum talið hin sama og árið 1986. Meðan milljörðum er eytt í stórbyggingar á vegum ríkisvaldsins eru framlög til úrbóta í málefnum aldraðra skorin við trog. Hallinn á flugstöðinni á Miðnesheiði nam 871 milljón á árinu 1987. Það var fimm sinnum hærri upp- hæð en fór í uppbyggingu allra stofnana fyrir aldraða á landinu á því sama herrans ári. Og meðan Reykjavikurborg reisir Ráðhús og Hringhús fyrir milljarða króna — og yfir- menn hennar státa sig af góðri fjárhagsstöðu —er öldruðum Reykvíkingum boðið upp á átta manna herbergi á Grund, ellegar margra mánaða vist á þúsund manna bið- lista. Á sama tíma og biðlistarnir lengjast í Reykjavík og borginni helst ekki á starfsfólki í þjónustu við aldraða, sakir lélegra launa- kjara, er biðin eftir aðstoð engin í nágranna- bænum, Kópavogi. Þar sækja fleiri um störf við heimilishjálp en fá, enda greiðir Kópa- vogsbær 56 þúsund krónur fyrir vinnu, sem Reykjavíkurborg launar með 41 þúsund krónum. Reglugerðir um málefni aldraðra hafa sætt mikilli gagnrýni. Ríkisvaldið greiðir hundr- uð milljóna króna í daggjöld til dvalarheim- ila í einkaeigu. Hins vegar hefur hið opin- bera ekkert að segja um það hverjir fá vist á heimilunum og setur enga staðla urn aðstöðu vistmanna. Sama daggjald, 1593 krónur, er greitt fyrir aldraðan einstakling í eins manns herbergi annars vegar og einstakling í átta manna herbergi hins vegar! Aldraðir eru eina fólkið í þjóðfélaginu, sem þarf að greiða fyrir dvöl á sjúkrahúsi. Ellilífeyrir og tekjutrygging eru tekin upp í daggjöld. Örbirgð margra aldraðra er mikil og helmingur vistmanna á dvalarheimilum hefur einungis 5900 krónur í ráðstöfunarfé á mánuði. Nokkuð er um að fullfrískt fólk sé inni á slíkum heimilum beinlínis vegna ör- birgðar. Ekki starfað í anda laga Bylting tuttugustu aldar í læknavísindum og almennum aðbúnaði manna hefur valdið því að meðalaldur fólks hefur hækkað. Aldr- aðir eru nú miklu stærri hópur í þjóðfélaginu en áður var. Árið 1950 var hlutfall fólks 65 ára og eldra 7,7 prósent af íslensku þjóðinni. Árið 1983 var þetta hlutfall orðið 10 prósent og um næstu aldamót er búist við að það verði um 12 prósent. Þrátt fyrir þessa fjölgun eru aldraðir enn hlutfallslega miklu færri á Islandi en á öðrum Norðurlöndum. Til sam- anburðar má nefna, að í Svíþjóð, þar sem fjöldi aldraðra er hlutfallslega mestur, voru árið 1983 16,8 prósent af sænsku þjóðinni 65 ára eða eldri. Stofnanir fyrir aldraða á íslandi eru ýmist einkastofnanir - eins og Elli- og hjúkrunar- heimilið Grund, sem er sjálfseignastofnun og Dvalarheimilið Hrafnista, sem er í eigu Sjómannasamtakanna, — eðareknarafbæj- arfélögum. Engin skýr lög voru til um málefni aldr- aðra á íslandi fyrr en 1983. Þá voru að frum- kvæði Svavars Gestssonar þáverandi heil- brigðisráðherra sett þau lög, sem nú gilda. I lögunum er kveðið á um skipulag öldrunar- þjónustu, Framkvæmdasjóð aldraðra og skipulag heimaþjónustu og íbúða og dvala- heimila fyrir aldraða. í þessum lögum er kveðið á um ýmsa hluti, sem ekki hefur verið framfylgt. í þeim er til dæmis kveðið á um, að svonefndir „Þjón- ustuhópar aldraðra" skuli hafa yfirumsjón með málefnum þeirra á sérhverjum stað. Líkt og fram kemur í máli eins af viðmælend- um Þjóðlífs, Skúla G. Johnsens, borgarlækn- is hafa verið brögð að því, að slíka nefndir legðust af, vegna sundurþykkju á milli eig- enda elliheimila og opinberra aðila. Eftirlit hins opinbera með störfum elli- heimila er of lítið eins og Hrafn Pálsson, deildarstjóri í Heilbrigðisráðuneyti bendir á í viðtali við Þjóðlíf. „Það þyrfti að fara oftar á heimilin. Við höfurn heilbrigðiseftirlit og landlæknisembætti og fleira til að fylgjast með þessu, en það er ekki nógu afmarkað hvað er á hvers höndum. Það eru of margir aðilar, sem sjá um þetta.“ Átta manns í herbergi Aðrir benda á, að ríkisvaldið hafi ekki sett neina staðla eða lágmarkskröfur um gerð dvalarheimila og því sé ástandið jafnslæmt og raun ber vitni. Bent er á, að daggjöld til heimilanna séu alltaf hin sömu, sama hver aðbúnaður sé. Hann er mjög misjafn eftir heimilum. Á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund er til dæmis mikill minnihluti vist- manna í einstaklingsherbergjum eða 93 af 308. Hinir eru flestir í tveggja manna her- bergjunt og allt upp í átta eru saman í einu herbergi. „Það nær engri átt að greitt sé hið sama fyrir einstakling í eins manns herbergi annars vegar og hins vegar einstakling í átta manna herbergi," sagði einn viðmælenda Þjóðlífs. Skúli G. Johnsen segir þetta ástand algjörlega óviðunandi: „Ríkið, sem greiðir fyrir þjónustu heimil- anna, á að skilgreina hvað það er að kaupa. Þegar Grund fékk leyfi ráðherra fyrir því að reka 200 af sínum rúmum sem hjúkrunar- rúm, þá fylgdu ekki með neinir skilmálar um það hvaða þjónusta skyldi veitt.“ Sömuleiðis hefur samband eigenda elli- heimila við ríkisvaldið verið harðlega gagn- rýnt. Til dæmis ráða eigendurnir því sjálfir hvaða fólk þeir taka inn á sínar stofanir og opinberir aðilar hafa þar ekkert að segja, þótt þeir greiði allan kostnað við þær, ásamt vistmönnum sjálfum, í formi daggjalda. Rík- isvaldið greiðir allt það, sem vistmenn sjálfir eru ekki borgunarmenn fyrir, en lífeyrir og tekjutrygging þeirra eru tekin upp í gjaldið. Svokölluð „daggjaldanefnd“ sér um það af hálfu ríkisvaldsins að ákvarða gjöldin. Er daggjald á dvalarheimili nú 1593 krónur á sólarhring. Að auki geta stofnanir sótt um svokölluð halladaggjöld til ríkisins ef endar ná ekki saman. í fyrra námu daggjöld á stofnunum fyrir aldraða í allt tæplega 1200 milljónum, sam- kvæmt upplýsingum Tryggingastofnunar, sem sér um að greiða gjöldin. Skúli G John- sen telur fyrirkomulag greiðslnanna mein- gallað: „Ég held að hið opinbera, sem greiðir fyrir þjónustuna eigi sjálft að setja það sem skil- yrði fyrir greiðslunni, að fá að ráða þvf hverj- ir fara inn á stofnanirnar. Einkaaðilinn láti þannig ákvörðunarréttinn í skiptum fyrir greiðsluna." I lögum urn málefni aldraðra er kveðið á um aðbúnað á hjúkrunardeildum elliheim- ila. Þar segir, að einstaklingsherbergi skuli að minnsta kosti nema helmingi vistrýmis. Þvi fer fjarri að svo sé í raun. Líkt og áður sagði eru allt upp í átta manns á stofu á hjúkrunardeildum íslenskra elliheimila. Bent hefur verið á, að þessum reglum sé framfylgt í sambandi við ný heimili, en hins vegar hefur lítil sem engin breyting verið gerð á eldri heimilum, sérstaklega Grund. Framkvæmdasjóður í fjársvelti I lögunum um málefni aldraðra frá 31. des- ember 1982 er kveðið á um svonefndan Framkvæmdasjóð aldraðra. Þessum sjóði er ætlað að styrkja byggingu og rekstur þjón- ustuhúsnæðis fyrir aldraða víðs vegar um landið. Tekjur sjóðsins átti samkvæmt lög- unum að tryggja með nefskatti, sem skatt- stjórar ákveddu hverju sinni. Þegar stað- greiðslukerfi skatta var tekið upp breyttust hins vegar reglur um sjóðinn, þannig að fjár- 52
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Þjóðlíf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.