Þjóðlíf - 01.10.1988, Qupperneq 75

Þjóðlíf - 01.10.1988, Qupperneq 75
UPPELDISMÁL Þaö er leikur að læra, leikur sá er mér kær, segir í víðkunnri vísu. En er svo í raun? Barnaheimili eru menntastofnanir Á undanförnum misserum hefur mikið verið rætt um skort á dagvistunarheimilum í Reykja- vík. Minna hefur hinsvegar verið rætt um starfsemi á heimilunum og enn minna hefur verið rætt um tilganginn með rekstri þessara heimila. í hugum margra eru dagvistarheimilin fyrst og fremst öruggur geymslustaður fyrir börn meðan foreldrar strita fyrir lífsviðurværinu. Engu að síður eru dagvistarheimilin fyrst og fremst hugsuð sem uppeldisstofnanir og eiga að efla alhliða þroska barnanna í samræmi við þarfir hvers og eins. í upplýsingabæklingi sem Dagvist barna í Reykjavík hefur gefið út segir að á dagvistarheimilum skuli stuðlað að því.að börnin nái þroska til að mæta kröfum skyldunámsins og stuðla jafnframt að því að eðlileg tengsl skapist milli dagvistarheimila og grunnskólans.“ Að margra mati hafa þessi tengsl engan veginn verið nægjanlega mikil. Fram til þessa hafa kennarar grunnskólanna haft litla sem enga vitneskju um það starf sem fram fer á dagvistarstofnunum og á sama hátt hafa fóstrur haft takmarkaða þekkingu á starfsemi grunnskólanna. Að mati sumra fagmanna þarf nú þegar að ráða hér bót á þannig að eðlileg samfella myndist í uppeldi barnanna. Síðastliðinn vetur var gerð merk tilraun í þessu sambandi sem fólst í því að dagvistarheimilin Hálsaborg og Hálskot hófu gagnkvæma samvinnu við Seljaskóla um að auka tengslin milli þessara stofnana. Einn af frumkvöðlum þessa samvinnuverkefnis er Fanný Jónsdóttir, umsjónarfóstra hjá Dagvist barna í Reykjavík, en hún veitir þróunardeild stofnunarinnar forstöðu. Blaðamaður Pjóðlífs hitti Fannýju að máli fyrir skömmu og ræddi við hana þessi mál. — Þetta samvinnuverkefni gengur fyrst og fremst út á það að reyna að skapa ákveðna samfellu í uppeldi og námi barna, og að sam- ræma eins og kostur er námsefni, kennslu og kennslugögn barna á dagvistarheimilum og forskólabekkja grunnskólanna, þ.e.a.s. 6 ára bekkjanna, sagði Fanney Jónsdóttir þegar Þjóðlíf spurði hana um samvinnuverk- efni grunnskóla og dagvistarheimila. — Ennfremur er markmiðið með þessu verkefni að styrkja börnin sem einstaklinga til að takast á við ný verkefni með nýju fólki án þess að bæði starfshættir og umhverfi verði þeim framandi. Á þennan hátt teljum við, sem að þessu verkefni höfum unnið, að grunnskólinn geti nýtt sér ýmislegt af því sem við á dagvistarheimilunum höfum verið að leggja grunninn að. í þessu sambandi er rétt að geta þess að á dagvistarheimilunum höf- um við annarskonar tengsl við barnið og fjöl- skylduna en kennarar grunnskólanna. — Kennarar kynnast barninu fyrst og Fanný Jónsdóttir, umsjónarfóstra hjá Dagvist barna í Reykjavík: „Það verður að segjast eins og er, að oft er litið á dagvistarheimili sem einhverskonar fé- lagslegt úrræði til að fleyta þjóðfélaginu áfram.“ Viðtal við Fanný Jónsdóttur, umsjónarfóstru hjá Dagvist barna í Reykjavík, um samvinnuverkefni dagvistarheimila og grunnskóla. fremst sem hópveru, þ.e.a.s. sem hluta af bekkjarheild, meðan við höfum mun meiri möguleika á að kynnast því sem einstaklingi með sérþarfir. Til að mynda vinnum við með börnunum í minnst 4—5 tíma og jafnvel upp í 9 tíma og það án þess að teknar séu frímínút- ur. Að auki er starfsaðstaða fóstra og kenn- ara mjög ólík. Fóstrustarfið tekur til mun persónulegri þátta en kennarastarfið. Á þennan hátt tel ég að fóstrur hafi mun meira innsæi í sérþarfir barnanna og einmitt þess vegna teljum við mikilvægt að fóstrurnar fylgi börnunum inn í skólana. — Segja má að samstarfið milli Hálsa- 75
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Þjóðlíf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.