Þjóðlíf - 01.11.1988, Blaðsíða 11
INNLENT
eiga alltaf að vera sameiginleg vandamál
beggja kynja. Bæði þær konur sem studdu
mig og aðra framjóðendur eru að sjálfsögðu
jafnréttissinnar; fólk hefur einfaldlega mis-
jafna skoðun á því hvaða einstaklingur eða
einstaklingar eru heppilegastir til að gegna
hinum ýmsu störfum.
Barátta fyrir mannlegum
verðmætum
Eins og þú vékst að hefur nokkuð verið
rætt um hnignun ýmissa starfa t.d.í heil-
brigðismálum, uppeldis og kennslumálum.
Nú segir þú að BSRB muni taka lifandi þátt í
þjóðfélagsumræðu. Vilt þú að samtökin knýi
á um viðhorfsbreytingu gagnvart þessum
störfum?
— Já.þarhittirþúnaglannáhöfuðið. Það
hefur mikið verið reiknað á undanförnum
árurn og verðmætamat í þjóðfélaginu hefur
e.t.v. snúist um of um það sem reiknistokk-
urinn mælir. Nú megum við ekki gera lítið úr
því, að verkalýðshreyfing verður ævinlega
að berjast fyrir betri kjörum félaga sinna. En
kjör eru meira en krónur og aurar....
Áttu við að við getum átt von á kröfum um
önnur lífsgæði en kauphækkanir hjá BSRB á
næstunni?
— Þorri félagsmanna BSRB er á lágum
launum og má ekki við neinni kaupmáttar-
rýrnun. Það er deginum ljósara. Auðvitað
gerum við kröfur um lífsgæði, og þau geta
birst í ýmsu formi. Maður má aldrei gleyma
því að spyrja hvað það er sem við viljum fá út
úr lífinu, til hvers við erum að þessu öllu
saman. Ég held að flest okkar komist að
þeirri niðurstöðu að mannleg verðmæti megi
ekki vanrækja.
Og hvað átt þú við með nrannlegum verð-
Heilbrigt þjóðfélag, er þjóðfélag með öfl-
ugum stjórnmálaflokkum og öflugri fjöl-
þátta verkalýðshreyfingu.
mætum? —
Ég er að tala um menningu, bæði einstak-
linga og þjóðarinnar, ég er að tala um sam-
skipti við annað fólk, á vinnustað og við
okkar nánustu. Ég er að tala um umhverfi
okkar,lífshamingju einstaklinga, fjölskyldu-
líf og uppeldi barna. Þetta allt saman eru
mannleg verðmæti og að þeim eigum við að
hlúa.
Vor í lofti
Þú talar um einstaklinginn, situr hann ekki
í öndvegi í okkar þjóðfélagi?
— Nei, það gerir hann einmitt ekki. Þau
stjórnmálaöfl sem hafa hampað einstakling-
num hve mest gera honum síður en svo hátt
undir höfði. Við erum nefnilega að tala um
alla einstaklinga , ekki bara þá sem eiga
mikla peninga eða hafa völd. I raun er það
rangnefni að kalla þetta einstaklingshyggju,
sem tröllriðið hefur vestrænum þjóðfélögum
á síðustu árum. Þetta á ekkert skylt við hana.
í þessu sambandi á að tala um þrönga mark-
aðshyggju og fámennisstjórn. Ég er í raun-
inni einstaklingshyggjumaður. Ég vil að ein-
staklingurinn fái að njóta sín...
Munu einstaklingarnir í BSRB taka hönd-
um saman við einstaklingana innan BHM og
ASÍ á næstunni?
— Auðvitað er það markmið að tengja
fólk í samtökum launafólks saman. Á þingi
okkar var lögð áhersla á samvinnu við önnur
samtök launafólks í ýmsum málum. Allir
eiga að taka höndum saman um að bæta kjör
láglaunafólks og opinberir starfsmenn munu
sameinast um að verja réttindi sín, en á und-
anförnum árum hefur ítrekað verið vegið að
þessum réttindum. Ég vona að því skeiði sé
nú lokið. Fólkið krefst breytinga á öllum
sviðum þjóðlífsins og stjórnmálamenn verða
að svara því kalli. Þótt vetur sé að ganga í
garð , þá held ég að mörgum finnist vor í
lofti, sagði Ögmundur Jónasson formaður
BSRB að lokum.
Óskar Guðmundsson
TRY6GING
ÞAD VAR ORÐIÐ
TRYGGING HF
LAUGAVEG1178 SIMI621110
11