Þjóðlíf - 01.11.1988, Blaðsíða 21
VIÐSKIPTI
Margar leiðir til lausnar
Þjóðlíf leitaði víða álits manna á ástand-
inu. Ef saman eru dregin helstu vandkvæði
íslenska efnahagslífsins, að mati margra
manna, mætti nefna: 1) Of háir vextir, fjár-
magnskostnaður,2) of óhagkvæmt og dýrt
bankakerfi, 3)ómarkviss útlánastarfsemi
sjóða, 4)veik eiginfjárstaða fyrirtækja, 5) of
hátt gengi, 6) veikburða rekstur fyrirtækja,
7) fjandsamleg afstaða gagnvart fyrirtækj-
um, 8) sjálfvirk verðbólguskrúfa.
Og ef saman eru dregnar lausnir, sem
heyrðust frá sömu aðiljum, mætti telja upp í
sömu röð: 1) Lækkun vaxta, hjöðnun verð-
bólgu, 2) uppstokkun bankakerfisins, 3)
grisjun og samruni sjóða, 4)styrking eigin-
fjárstöðu fyrirtækja (með því að auðvelda
hlutafjárkaup t.d. í gegnum skattakerfið), 5)
lækkun raungengis, 6) samruni fyrirtækja, 7)
stuðningur sveitarfélaga og hins opinbera
við atvinnulífið, 8) afnám verðtryggingar.
Helmingurinn sálfræði
—bjartsýnin dugar best
Þegar spjallað er um stöðu efnahagslífsins,
einstaklinga, fyrirtækja, sveitarfélaga og rík-
isins, koma upp margvíslegar hugmyndir um
lausnir og leiðir út úr samdrættinum. Flestir
leggja samt áherslu á að helmingurinn að
hvorttveggju; samdrættinum og þenslunni,
sé sálfræði. Þannig sé bjartsýnin nauðsynleg
til að lýsa leiðina út úr samdrættinum. Sparn-
aður og ráðdeild eru vissulega nauðsynlegir
eiginleikar og þá eiginleika hafi landsmenn
svo sannarlega notað í samdrættinum á þessu
ári. Nú er hins vegar góðærið í augsýn; í
næsta mánuði eða eftir hálft ár, hver veit?
Óskar Guðmundsson.
Konurnar missa
vinnuna fyrst
Yfir 500 manns hafa þegar misst atvinnuna.
Verður sífellt erfiðara að skipta um atvinnu.
Alvarlegar þrengingar hjá fólki.
Viðtal við Halldór
Grönvold hjá Iðju,
félagi verksmiðju-
fólks í Reykjavík
— Þegar hafa um 500 manns
misst vinnuna í iðnaðinum
frá því á síðasta árfsfjórðungi
1987 vegna gjaldþrota og
samdráttaraðgerða og líkindi
eru til að á þessu ári muni
tugir ef ekki hundruð missa
vinnuna af sömu sökum,
segir Halldór Grönvold hjá
Iðju í Reykjavík í samtali við
Þjóðlíf. Halldór kveður konur
verða sérstaklega fyrir
barðinu á gjaldþrotum og
samdrætti í atvinnulífinu:
Hafa gjaldþrotin upp á síðkastið haft áhrif
á hag félagsmanna Iðju í Reykjavík?
— Það er alveg ljóst að öll þessi gjaldþrot
og hinn almenni samdráttur hafa komið illa
við iðnaðinn, fyrst og fremst fata- og vefjar-
iðnaðinn, og að sjálfsögðu hefur það bitnað á
félagsmönnum okkar. Sérstaklega hefur
þetta komið niður á konum sem starfað hafa
hjá þessum iðnfyrirtækjum. Þessar konur
búa í mörgum tilfellum yfir tiltekinni þekk-
ingu og starfsreynslu sem nýtist í þessum
störfum, en er kannski lítils metin annars
staðar. Oft er um að ræða konur sem eru
komnar yfir miðjan aldur og eru þar af leið-
andi ekki taldar fullgildar á vinnumarkaðin-
um. A íslenska vinnumarkaðinum á maður
nefnilega að vera karlmaður og helst ungur
til að vera talinn gjaldgengur.
Halldór Grönvold. Jafnvel þó spreng-
lærðir meðaltalsútreiknar á borð við hag-
fræðinga komist að þeirri niðurstöðu að
nægjanleg framboð á ýmsum störfum sé
fyrir hendi, þá virðist þeim yfisjást að um
er að ræða fólk af holdi og blóði, sem
getur ekki gengið inn í hvaða störf sem
er...
— Það má segja sem svo, að fram undir
það síðasta hafi hvorki gjaldþrotin né þessi
almenni samdráttur haft veruleg áhrif á hag
launafólks, sé litið yfir heildina. En náttúr-
lega hefur margt fólk neyðst vegna þessa til
að fara í störf sem það hefði ekki tekið að
öðru jöfnu. Fólk hefur hinsvegar almennt
enn sem komið er fundið sér viðunandi störf
við „hæfi“, vegna þeirrar þenslu sem ein-
kennt hefur allt efnahagslífið. Hinsvegar
virðist þessi sveigjanleiki á vinnumarkaðin-
um vera að breytast mikið þessa dagana.
— Síðustu vikurnar hefur það nefnilega
verið að gerast, í sí auknum mæli, að okkar
fólk fær ekki vinnu. Til dæmis komu til mín
um daginn 10 miðaldra konur sem misst
höfðu störf sín hjá tilteknu fyrirtæki í fata-
iðnaðinum vegna samdráttaraðgerða. Það er
engan veginn fyrirséð að þær fái ný störf á
sama hátt og þær konur sem misstu vinnuna
fyrr á árinu. Einnig liggur það ljóst fyrir að
tvö fyrirtæki í fataiðnaðinum loka fyrir næstu
áramót og að tæplega 60 iðnverkakonur mun
21