Þjóðlíf - 01.11.1988, Blaðsíða 15
INNLENT
Skák
Kasparov marði sigur
á elleftu stundu
/ • •
Askell Orn Kárason
skrifar:
Eftirminnilegu heimsbikarskák-
móti lokið:— Stöð tvö hinn raun-
verulegi sigurvegari?
í beinni útsendingu. Á Heimsbikarmótinu
var farið inn á nýjar brautir í fjölmiðlun.
Líklega þarf að fara aftur til 1972 til að finna
sanijöfnuð við þá skákbylgju sem skolast hef-
ur yfir þetta land undanfarnar vikur með
heimsbikarmóti Stöðvar 2. Mót þetta var
stórkostlegur viðburður í skákheiminum og
þótti heppnast fádæma vel. Það eykur þannig
enn á hróður okkar á þessu sviði; fáir kunna
betur að halda skákmót en Islendingar.
Um tíma leit þó ekki sérlega vel út fyrir
þessu móti, sem Stöð 2 tók að sér að halda
fyrir atfylgi Páls Magnússonar. Margir töldu
að sjónvarpsfélagið hefði hér reist sér hurð-
arás um öxl, ýmis framkvæmdaatriði virtust
hanga í lausu lofti fram eftir árinu og fjár-
mögnun „ævintýrisins“ gekk stirðlega. Það
mun ekki hafa verið fyrr en Páll Magnússon
bretti sjálfur upp ermar til fjáröflunar
skömmu fyrir mótið að um fór að liðkast.
Kraftaverk
Omurinn af síðustu hamarshöggunum var
tæpast hljóðnaður þegar hinir nafntoguðu
meistarar settust að tafli í Borgarleikhúsinu.
Allt virtist hafa smoliið saman á síðustu
stundu og eftir því sem á mótið leið kom æ
betur í ljós hvílíkt stórvirki hafði verið fram-
ið. Sumir höfðu á orði að kraftaverk hefði átt
sér stað. Umgjörð glæsilegasta heimsbikar-
mótsins til þessa var bæði nýstárleg og
skemmtileg. Ahorfendur fylgdust auðveld-
lega með taflmennskunni á borðunum níu
með tilkomu tölvuskákborðanna margróm-
uðu. Keppendur, sem þó eru góðu vanir,
höfðu á orði að þetta mót bæri af hinum
tveimur hvað skipulag og frábæran aðbúnað
snerti.
Auk þess að bera hitann og þungann af
undirbúningi mótsins, skipulagði Páll Magn-
ússon þetta sem reglulegt sjónvarpsmót og
fór þar inn á algerlega nýjar brautir í fjölmið-
lun. Á því sviði var hér brotið blað; stórmót
framtíðarinnar, a.m.k. hér á íslandi, munu
draga dám af þessu; skákin hefur sannað sig
sem frábært sjónvarpsefni.
Meistaraleg tilþrif
Heimsmeistarinn Garrí Kasparov, sýndi
það og sannaði í þessari fyrstu íslandsheim-
sókn sinni að þótt honum geti verið mislagð-
ar hendur á taflborðinu, er hann öðrum
skákmeisturum eftirminnilegri í sjónvarpi.
Senur þær sem hann lék aðalhlutverk í, hvort
15