Þjóðlíf - 01.11.1988, Blaðsíða 60
MENNING
Saltfiskur og
steindir gluggar
Sigríður
Ásgeirsdóttir
myndlistarmaður
vinnur fyrir
banka, kapellur og
saltfiskverkun
Steindir gluggar, er það ekki eitthvað sem á
heima í kirkju? Er ekki út í hött að hugsa sér
slíka list í samhengi við saltfísk? Ekki í Hafn-
arfírði. I>ar hefur fyrirtækið Skerseyri hf.
reist nýtt verkunarhús og við byggingu þess
var gert ráð fyrir 6 fermetra myndverki úr
gleri í vinnslusalnum. Og auðvitað heitir
verkið Lífið er saltfiskur...og brekka.
Listamaðurinn sem fékk þetta heillandi
verkefni heitir Sigríður Asgeirsdóttir og nam
list sína í Edinborg. Nú býr hún í Hlíðunum
og á mann, tvo syni og tvo ketti. Verk sín
vinnur hún í Hafnarhúsinu þar sem hún hef-
ur vinnustofu. Þar vinnur hún verkin frá
grunni, fyrst á pappír, síðan í gler, og þegar
kemur að því að blýleggja mætir maður
hennar, Þórður Kristinsson, að loknum
vinnudegi í Háskólanum og blýleggur milli 5
og 7.
„Mér finnst gaman að geta sagt frá því að
þessi veggur var hannaður með steint gler í
huga,“ segir Systa eins og hún signerar
myndirnar sínar. „Framkvæmdastjóri Sker-
seyrar heitir Magnús Andrésson og hann
réði mig til þessa verks. í fyrirtækinu er allur
aðbúnaður starfsfólks til fyrirmyndar og
þetta glerverk er fyrst og fremst sett upp því
til ánægju.“
Systa kom heim frá námi fyrir fjórum ár-
um og verk hennar má líta á nokkrum opin-
berum stöðum: í Iðnaðarbankanum við
Lækjargötu, Sparisjóðnum í Hátúni, Trygg-
ingu hf. og víðar. Nú hefur hún verið beðin
að gera glugga í kapellu sjúkrahússins sem
verið er að byggja á ísafirði.
„Til þessa hef ég aðeins gert steindan
glugga í eina kapellu, hún er í eina kvenna-
fangelsi Skotlands. Þeirri kapellu er ætlað að
þjóna öllum trúarbrögðum svo ég hafði
frjálsar hendur. Þó að glugginn sé abstrakt
þá lagði ég út af dagrenningu og að batnandi
fólki er best að lifa.
I kapellunni á Isafirði munu einkum fara
fram skírnir og kistulagnir og ég hef fyrst og
fremst reynt að gera gott listaverk. Glugginn
lokar fyrir umhverfið og á að skapa kyrrð og
virðuleika. Ég reyni að hlúa að fólki.
Glerið er spennandi efni, í senn brothætt
og hættulegt. Svo er það ljósmiðill og hefur
áhrif á sálina. Það getur gleypt fólk eins og
bíómynd. Vandinn við það er að láta það
fylgja þeirri stemmningu sem húsið býður
upp á. Listamaðurinn þarf að sýna notkun
hússins virðingu og halda aftur af sjálfum
sér. Þetta er að sumu leyti eins og línudans.
Listamaðurinn þarf að vera trúr húsinu og
sjálfum sér.“
Eins og áður segir vinnur Systa verkin á
vinnustofunni.,, Maður tekur allar ákvarð-
anir á pappírnum, glerið er svo dýrt. Þess
vegna þarf að hugsa um samspil litanna í
Ijósinu en það getur verið afar breytilegt eftir
birtunni og umhverfinu. Leiðin frá vinnust-
ofunni á staðinn þar sem verkið á að vera er
því æði kvalafull, maður veit aldrei hvernig
verkið kemur út.“
Systa hefur nóg að gera því auk verksins
fyrir Isfirðinga vinnur hún að sýningu sem
hún ætlar að halda í Norræna húsinu á vori
komanda. „Þar verða ekki bara glerverk, því
að efnið ræðst af viðfangsefninu. Kannski
sýni ég eitthvað úr timbri.“
Þ
----------------------------------------------
HAUKURINN
Garðastræti 11, Box 3020,123 Reykjavík, Símar 91-622026 og 985-28501
Auglýsinga gjafir og kynningarvörur. Pennar, lykiakippur, eldspýtur,
blöðrur, glasabakkar, dagatöl og næstum allt sem þér dettur í hug.
60