Þjóðlíf - 01.11.1988, Page 12

Þjóðlíf - 01.11.1988, Page 12
INNLENT Vænti mikils af ríkisstjórninni í menntamálum... Viðtal við Danfríði Skarphéðinsdóttur, alþingismann og kvennalistakonu Danfríður Skarphéðinsdóttir, alþingiskona og kvennalistakona, er fæddur og uppalinn Reykvíkingur. Hún er kennari að mennt og stundaði nám í þýsku við Háskóla íslands. Að loknu þýskunáminu fluttist hún til Akra- ness og hóf kennslu við Fjölbrautarskólann þar í þann mund sem hann var stofnaður árið 1977. Þar kynntist Danfríður að eigin sögn hversu mikilvægt og skemmtilegt starf kennarans er jafnframt krefjandi. Hún gerð- ist virk í kjarabaráttu kennara, sat í stjórn Hins íslenska kennarafélags á árunum 1982 til 1985, og gerðist ötull talsmaður umbóta í skóla- og menntamálum þjóðarinnar. Árið 1987 var Danfríður kosin á Alþingi á Vestur- landi fyrir Kvennalistann. Síðastliðið haust var hún valin þingflokksformaður Kvenna- listans og fyrir skömmu var hún kosin í menntamálanefnd neðri deildar á Alþingi. Þjóðlíf hitti Danfríði að máli og átti við hana stutt viðtal: „Þingflokkur Kvcnnalistans spannar vítt svið kvenlegrar hjúskaparreynslu. Sjálf er ég ógifti og barnlausi einstaklingurinn í hópn- um. Að kvennalistanum standa konur sem hafa tekið höndum saman og vilja stuðla að nýjum viðhorfum í þjóðfélagsumræðunni, á grundvelli þeirra eigin reynslu, og auka þátt kvenna í þjóðfélagslegri ákvarðanatöku. Við leggjum mesta áherslu á það sem sameinar konur en ekki það sem sundrar þcim. Við erum konur sem viljum manneskjulegra þjóðfélag —jafnréttissinnað samfélag. Þetta er í örstuttu máli sagt Kvennalistinn okkar“, segir Danfríður Skarphéðinsdóttir í upphafí samtalsins við Þjóðlíf: — Almennt séð, þá tel ég störf uppeldis- og umönnunarstétt- anna allt of lítils metin í þjóðfélaginu og þá sérstaklega af stjórnvöldum. Það þyrfti að gera stórátak í þessum málum og í raun end- urbyggja allt uppeldis- og menntakerfið. Ríkisstjórnir síðustu ára hafa að mínu mati brugðist fullkomlega að þessu leytinu. Ég vænti rnikls af núverandi ríkisstjórn varðandi þetta uppbyggingastarf, enda kennir hún sig við jafnrétti og félagshyggju. Það mun virki- lega reyna á hana í þessum efnum, þó svo að ég skilji vel að aðkoman hjá núverandi menntamálaráðherra hafi verið mjög slæm. En taki hann hressilega til þarna í ráðu- neytinu, og beiti hann sér fyrir róttækum félagslegum breytingum á uppeldis- og menntamálunum, þá er ég sannfærð um að hann njóti til þess styrks mikils meirihluta Alþingis, — allavega okkar í Kvennalistan- um. — Kvennalistinn á Vesturlandi var stofn- aður haustið 1984 á Akranesi. Ég mætti á þennan fund, þá alls ekki ákveðin í að gerast stofnfélagi. Eg hafði fylgst með starfi Kvennalistans í Reykjavík og hreifst af starf- inu þar. Ég var engin eldheit kvennréttinda- kona og hafði t.d. aldrei haft nein afskipti af Rauðsokkuhreyfingunni. Kvennafrídagur- inn 1974 hafði hinsvegar mikil áhrif á mig, því mér fannst það svo stórkostlegt að konur á öllum aldri og úr öllum þjóðfélagshópum gætu náð samstöðu um sameiginlega hags- muni. Stofnfundurinn á Akranesi varð til þess að blása lífi í pólitískar hugmyndir mín- ar, — hugmyndir sem höfðu gerjast samhliða kennarastarfi mínu. — Það var erfið ákvörðun fyrir mig að SENDIBÍLASTÖÐIN HF. BORGARTÚNI 21 éS SfMI 25050 S REYKJAVlK

x

Þjóðlíf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.