Þjóðlíf - 01.11.1988, Page 16
INNLENT
sem um var að ræða glannalegar yfirlýsingar
um forráðamenn skákmála, óðamála skák-
skýringar við þriðja mann að loknum kær-
komnum sigri, eða leikræna örvæntingu eftir
tapleikinn víðfræga gegn Sókolov, verða lík-
lega öllum ógleymanlegar er á horfðu. Hann
lék því ótvírætt aðalhlutverkið á mótinu,
þótt raunar hafi lengi vel litið út fyrir sigur
Alexanders Beljavskí, sem um hríð hefur
staðið í skugga Kasparovs, en tefldi frábær-
lega í þetta sinn. Hann mátti sjá á eftir efsta
sætinu í hendur heimsmeistarans eftir tap sitt
fyrir Boris Spassky í síðustu umferð. Þetta
var eini sigur Spasskys og fór ekki á milli
mála að eldri kynslóðin átti undir högg að
sækja á þessu móti, að undanskildum hinum
ótrúlega töframanni Mikhail Tal, sem
hreppti þiðja sætið og virtist þó taka lífinu
léttar en aðrir keppendur. Arangur Jóhanns
Hjartarsonar, sem varð í 4-.5. sæti var af-
burðagóður og er fyllilega sambærilegur við
það sem hann hefur best gert áður.
Jóhanni hefur ekki gengið sem best á „of-
urmótum“ til þessa, en frammistaða hans
hér í kjölfar fyrirtaksárangurs á Interpolis-
mótinu í Hollandi sýnir að slíkt heyrir sög-
unni til. Eistlendingurinn Jaan Ehlvest, sem
varð jafn Jóhanni kom nokkuð á óvart og er
greinilega ört vaxandi skákmaður. Ungverj-
inn Sax tefldi sitt besta mót í lengri tíma en
árangur annarra var tæpast umfram vænting-
ar. Eins og gera má ráð fyrir á löngu og
ströngu móti voru sumir farnir að lýjast
nokkuð undir lokin og urðu þá mörg úrslit
óvænt. Viktor Kortsnoj, reykjandi sem
aldrei fyrr, barðist vel að vanda, en var orð-
inn þrekaður nokkuð í lokin og hafnaði í
næstneðsta sæti, hálfum vinningi á undan
Margeiri Péturssyni, sem þó má allvel una
við sitt. Hann vann þrjár skákir og sýndi að
hann er skeinuhættur hverjum serþ er í þess-
um klúbbi.
Áskell Örn Kárason
Garrí Kasparov lék ótvírætt aðalhlutverk-
ið á skákmótinu.
„Las
Njálu
milli
skáka“
Jan Timman tekinn
tali
Hollenski stórmeistarinn Jan Tiniman er ís-
lendingum að góðu kunnur. Hann hefur
verið einn sterkasti skákmaður heims í hálf-
an annan áratug og sá Vesturlandabúi sem
helst hefur ógnað ofurvaldi Sovétmanna síð-
an Fischer hvarf sjónum manna.
Þrátt fyrir tiltölulega ungan aldur — hann
er fæddur 1951 - hefur Timman þegar öðlast
gífurlega reynslu og haft er á orði að hann
viti meira um skák en nokkur annar núlif-
andi stórmeistari. hann hefur að eigin sögn
verið atvinnumaður í skák frá átta ára aldri,
eða í tæp þrjátíu ár, og gerir ráð fyrir að vera
að a.m.k. önnur þrjátíu!
Timman er varaforseti og ein aðaldriffjöð-
ur hins nýstofnaða stórmeistarasambands,
þar sem Garrí Kasparov er forseti. Hann er
þó alger andstæða heimsmeistarans í við-
ræðu, er spar á stórar yfirlýsingar og virðist
ekki tamt að slá fram getgátum í óljósum
málum.
Það fer ekki framhjá viðmælanda hans að
Timman er atvinnumaður fram í fingurgóma
og hagsmunamál skákmanna honum hug-
leikin. Hann er þeirrar skoðunar að viðburð-
ur á borð við heimsbikarmótin sé ómetanleg-
ur fyrir framþróun skákarinnar sem keppnis-
íþróttar. Þó halda hefði mátt fjölda opinna
skákmóta fyrir það fé sem varið er í eitt slíkt
mót eru gæðin ekki síður mikilvæg en magn-
ið. Á þessum mótum komi það besta fram
sem skákin hefur að bjóða, þau setji ákveð-
inn „standard“ sem nauðsynlegt sé að geta
miðað við, þetta sé hið besta — toppurinn í
skákmótahaldi. Þá gagnrýni sem heyrst hef-
ur í garð stórmeistarasambandsins að það
sinni eingöngu þörfum ofurstórmeistara tel-
ur hann byggða á misskilningi. Samtökin séu
ung og geri ekki allt í einu, en heimsbikar-
rnótin séu góð byrjun. Á næstunni ntuni hefj-
ast undanrásir fyrir næstu heimsbikarkeppni
Áskell Örn ræðir við Jan Timman. Þessi
leikreyndi skákmaður telur nýlokið
Heimsbikarmót Stöðvar 2 verða eftir-
minnilegt sakir góðrar skákmennsku og
mikiis keppnisanda þáttakenda.
með viðamiklu opnu móti í Belgrad. Þá hefst
á næsta ári keppni í„ atskák“ (hálftímaskák)
á vegum sambandsins. Næsta verkefni verð-
ur hinsvegar keppnin Sovétríkin—Heimur-
inn sem fram fer í Madrid í desember. Timrn-
an segir samtökin stefna að því að efla skák-
iðkun á öllum stigum, um allan heim og vill í
því efni taka upp meira samstarf við Al-
þjóðaskáksambandið, FIDE. Það er þó við
ramman reip að draga, þar sem forsetar sam-
takanna tveggja Kasparov og Campomanes
geta ekki setið á sárs höfði, heldur kallast á
með heitingum og formælingum hvor í ann-
ars garð.
Eftirminnilegasta mótið
Eins og aðrir stórmeistarar sem við höfum
spurt, lýkur Timman miklu lofsorði á nýlok-
ið Heimsbikarmót Stöðvar 2. Hann segir
raunar ekki hafa gengið að því gruflandi að
vel yrði staðið að þessu móti; svo sé jafnan
um alþjóðleg skákmót á íslandi. í þetta sinn
hafi aðbúnaður keppenda verið frábær enda
ríkti hér á landi skilningur á aðstæðum kepp-
enda á löngu og sterku móti sem þessu; þeir
væru undir miklu álagi og ekkert mætti fara
úrskeiðis ef þeir ættu að sýna sitt besta.
Hann telur þetta mót hið jafnasta og lík-
16