Þjóðlíf - 01.11.1988, Page 17
INNLENT
bikarmótunum þremur. Með sigri sínum hafi
Kasparov sýnt hvers hann er megnugur
þegar hann er í óstuði, eins og berlegt hafi
verið í þetta sinn. Greinilegt er að hollenski
stórmeistarinn nagar sig í handarbökin
vegna tapsins gegn heimsmeistaranum.
Hann segist hafa tekið þá fífldjörfu ákvörð-
un í skákinni að hafna öruggri jafnteflisleið
og tefla til sigurs; hafi raunar brennt sig á
slíku í fleiri skákum, farið of geyst í sakirnar
og ekki gætt þess sem skyldi að hvfla sig af og
til með átakalitlum jafnteflum. Engin jafn-
teflisskáka sinna hafi verið styttri en 40 leik-
ir!
Timman telur þó árangur sinn viðunandi
þegar á heildina sé litið og hann sé nú á leið
upp úr þeim öldudal sem hann hefur verið í
lungann úr þessu ári. Hann tekur sér nú gott
hlé frá skákiðkun og stefnir að því að vera
kominn í sitt besta form á næsta ári.
Jóhann Hjartarson —erfiður
andstæðingur
Timman var einn þeirra fjölmörgu sem
spáði Jóhanni tapi fyrir Kortsnoj í áskor-
endakeppninni, en segir að á þeim mánuð-
um sem síðan eru liðnir hafi komið í ljós að
sigur Jóhanns var engin tilviljun. Hann sé nú
mun jafnari og öruggari skákmaður en
Kortsnoj og virðist fara fram með hverju
mótinu sem líður og eigi bersýnilega eftir að
ná enn lengra. Að hans mati standa fáir Jó-
hanni á sporði í flóknum og óljósum stöðum
þar sem baráttan fer fram út um allt borðið,
en hann eigi enn nokkuð ólært í sígildri
stöðubaráttu. Jóhann sé mjög erfiður and-
stæðingur vegna þess að hann tefli nánast
allar byrjanir milli himins og jarðar, sem er
mikill kostur fyrir ofurstórmeistara. A móti
komi að hann hafi enn ekki fullt vald á öllum
þeim byrjunum sem hann teflir og geti því
enn bætt þekkingu sína á þessari hlið skákar-
innar.
Hér getur Timman reyndar trútt um talað
því sá stórmeistari mun vandfundinn sem
hefur yfirgripsmeiri þekkingu á skákbyrjun-
um en hann.
Gunnar og Njáll
Timman er orðinn svo tíður gestur hér á
landi að hann er að mestu hættur að brjóta
heilann um Skákundrið Island. Honum
finnst augljóst að skáklistin stendur mjög
traustum fótum í menningu okkar. Ef til vill
eigi hugaríþróttir svona vel við Islendinga,
hver svo sem skýringin sé.
Timman hefur raunar kynnt sér leikfléttt-
unáttúru landans á fleiri siðum en skákborð-
inu, því hann hefur dundað sér við að lesa
Islendingasögurnar í heimsóknum sínum hér
og stytti sér stundir milli umferða á heims-
bikarmótinu með því að glugga í Njálu sem
hann er fullur aðdáunar á. Hinn knappi stíll
minnir á góða skák; engum leik er ofaukið.
Hins vegar er ekki laust við að honum of-
bjóði öll vígin, kannski minnugur þess að
enginn skyldi taka þá áhættu með góða stöðu
að drepa of mörg peð.
Skákin í sókn
Jan Timman sér ekki ástæðu til annars en
hann geti verið atvinnumaður í skák a.m.k.
þrjátíu ár enn. Hann óttast ekki um þessa
fornu hugaríþrótt í hraða og tæknifári sam-
tímans. Að hans mati fara vinsældir skákar-
innar vaxandi, í það minnsta í Evrópu, og
tölvutæknin ætti að geta orðið íþróttinni til
framdráttar. Þótt ímynd skákarinnar geti
breyst og aukin áhersla verði lögð á hrað-
skák og atskák til að fá meira „fjör“, komi
slíkt sem hrein viðbót. „Gamla“ skákin haldi
sínu gildi og sönnum skákunnendum fari síst
fækkandi. Eða getur nokkur sem hefur kom-
ið til Islands og orðið vitni að atburðum síð-
ustu vikna sannfærst um annað?
Áskell Örn Kárason
STERKIR
TRAUSTIR
Vinnupallar
frá BRIMRÁS
Kaplahrauni 7 65 19 60
OÐ SAMVINNA GERIR
GÆFUMUNINN
Ef þú þarft að vinna mikið við Ijósritun þygg-
ist árangurinn á góðri samvinnu við Ijósritunarvélina
þina. Er nokkuó sem þreytirþig meir en tíðar bilanir
og löng bið eftir viðgerðarmanni? Með Nashua
Ijósritunarvélerþessum áhyggjum af þér létt. Lág
bilanatíðni Nashua og fljótog örugg viðgeróar-
þjónusta Optima gerir gæfumuninn.
n
SuðurlandsbrautlO — Simi 84900
17