Þjóðlíf - 01.11.1988, Side 24
VIÐSKIPTI
eitt af meginverkefnum samtaka okkar að
standa við bakið á fólki og gefa því góð ráð
þegar svona mál koma upp. Ég tel mjög
brýnt að fólk geti leitað til annarra sem hafa
farið í gegnum þennan sama vítiseld. Von-
andi tekst samtökum okkar að ráða hér bót á
og rjúfa þá einangrun sem gjaldþrota fólk
hefur lennt í.
— Gjaldþrota fólk, og jafnvel fjölskyldur
þess, mætir oft miklum fordómum í samfé-
laginu. Fólk virðist oft á tíðum vera mjög
blint á mannlega þáttinn í þessu öllu saman.
Það er nefnilega mannlegt að gera mistök og
slíkt hendir alla. Það slær mann því virkilega
þegar sumt fólk hreytir út úr sér ónotum í
okkar garð, — að við séum ómerkileg, kæru-
laus og jafnvel eitthvað enn verra. Það virð-
ist vera mjög almenn skoðun meðal almenn-
ings að gjaldþrota fólk geti sjálfu sér um
kennt og því átt sig sjálft. Mér finnst þetta
mjög undarlegt sjónarmið og ómanneskju-
legt. Manni er til dæmis sagt að stór hluti af
umferðarslysum stafi af gáleysi eða glanna-
skap í akstri. Það dettur engum í hug að segja
að það fólk sem verður fyrir slysum eigi að
ganga um háls- og hauskúpubrotið. Það eru
alllir sammála um það þurfi að hjálpa þeim
og það sama ætti að gilda um fólk sem lendir í
þeirri ógæfu að missa allar eigur sínar vegna
mistaka. Það leikur sér enginn að því að
verða gjaldþrota, því slíku fylgir mikill sárs-
auki og vanlíðan, og þá ekki síst fyrir fjöl-
skyldu viðkomandi. Ég hygg að hér þurfi
hugarfarsbreytingu til. Að henni munu sam-
tökin okkar vinna.
— Persónulega þarf ég ekki að kvarta yfir
skilningsleysi og fordómum. Á netaverk-
stæðinu þar sem ég vinn hef ég mætt miklum
skilningi meðal vinnufélaga minna og ekki
hvað síst hjá yfirmönnum mínum. Ég er
mjög þakklátur því umburðarlyndi sem mér
hefur verið sýnt í vinnunni, því oft á tíðum
hefur hugurinn verið allt annarsstaðar en
þar, ég hef þurft að fá mikið af fríum og þess
háttar. Það væri óskandi að aðrir gætu sagt
hið sama.
Lýsi eftir manninum sem
kom mér á hausinn
— I dag er þetta allt saman orðið svo óper-
sónulegt. Maður fær bara þessi gluggabréf, -
menn tala orðið ekkert saman og þekkja
ekkert vanda hvers annars. Ég vildi gjarnan
nota tækifærið í þessu viðtali og hreinlega
lýsa eftir þeim manni sem kom mér á haus-
inn. Sá hinn sami er á flótta undan mér og
það finnst mér vera ástæðulaust með öllu. Ég
vil gjarnan hitta hann, ræða hlutina og leysa
okkar mál eins og mönnum er sæmandi. Það
að krefjast þess að einhver verði gerður
gjaldþrota ætti að vera neyðarúrræði þegar
fullreynt þykir að viðkomandi geti ekki og
muni ekki geta staðið í skilum. Menn hljóta
að þurfa að tala saman og reyna að ná sam-
komulagi áður en gripið er til svona úrræða.
Það kostar ekkert að tala saman fyrst.
— Það er fullt af fólki í samtökunum sem
hefur orðið gjaldþrota vegna þess að það
hefur gengið í ábyrgð fyrir aðra. Fólk ætti að
fara varlega í slíkt, því oft geta jafnvel litlir
víxlar orðið að miklum skuldum. Ég hitti til
dæmis mann fyrir stuttu sem hafði gert vini
sínum þann greiða að skrifa uppá 150 þúsund
króna víxil. Allt í lagi með það. Svo líður og
bíður í nokkra mánuði og hann heyrir ekki
nokkurn skapaðan hlut, fyrr en hann fær
einn góðan veðurdag bréf þar sem hann er
rukkaður um 450 þúsund krónur, því við
vanskil byrjar innheimtukostnaðurinn að
bætast við. Það segir sig sjálft að slíkt getur
komið fólki í opna skjöldu.
Breytinga er þörf
— Það virðist vera alltof mikil harka í
þessum málum.
Ég held að það þurfi ekki bara hugarfars-
breytingu, heldur beinlínis einhvern millilið
sem gæti kornið á beinum samningum áður
en allt fer í óefni. Og það er orðið brýnt að
• /
Þegar ráðist er í húsnæðiskaup nægir ekki alltaf að
vera fullur kapps eða eiga stóra drauma. Húsnæðiskaup
eru mikilvægur áfangi í lífi hverrar íjölskyldu sem þarf að
undirbúa vel. Eigi kaupin að geta gengið stórslysalaust,
er til lítils að láta eigin ákafa hlaupa með sig í gönur.
Kemst þótt hægt fari.
Með fyrirhyggju kemst
Á vegum Húsnæðisstofnunar er starfandi ráðgjafastöð sem
m.a. aðstoðar fólk við áætlanagerð, reiknar út greiðslubyrði af
fyrirhuguðum kaupum og gefur ráð varðandi sparnað og lántökur.
Viðtal á ráðgjafastöðinni er sjálfsagður liður í undirbúningi
húsnæðiskaupa eða byggingar.
Stöðin er öllum almenningi opin.
þú áfallalaust á leiðarenda.
HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
LAUGAVEGI77101 REVKJAVIK SIMI 696900