Þjóðlíf - 01.11.1988, Page 75
BÍLAR
Listin að nema staðar
ásamt formála
Við íslendingar erum um margt dálítið sér á
parti. Sjaldan hefjum við máls á nokkrum
hlut nema fyrst komi fram langur formáli og
helst ekki að koma sér að málefninu. Sá sem
þetta ritar hefur að sjálfsögðu snert af þessari
áráttu. Par sem ætlunin er að fjalla um bif-
reiðar í þessum pistli þá kemur upp í hugann
ýmislegt sem vekur furðu í fari landans.
Vegakerfi, sérstaklega í þéttbýli sem hvorki
ber þann fjölda ökutækja sem um það fara né
liggur á rökréttan hátt til þeirra staða sem
fjöldinn stefnir til á mestu umferðartímum
dagsins. Umferðarmenning sem hvergi í ...
nei það er óþarft að taka lagið í þessum kór
nema að hafa eitthvað nýtt og gáfulegt fram
að færa. Úr einu í annað.
Hefur nokkur hugleitt að þrátt fyrir nán-
ast jafnmarga bíla á íbúa í USA, sem eiga
heimsmetið, þá er nánast ekkert skrifað um
bfla hér nema frásagnir af útliti og reynslu-
akstri nýrra bfla; ekkert skrifað fyrir þá sem
þegar eiga bfl. Ég held að fullyrða megi að
enginn seljandi nýrra bfla hafi rausnast til
þess að þýða á íslensku handbók þá sem
öllum nýjum bflum fylgir og oftast er á
ensku. Peim sem lesið geta útlensku reynast
þessar bækur oft hafsjór af gagnlegum upp-
lýsingum um meðferð þessa dýra tækis sem
bfllinn er. Um útgáfu slíkra bóka eða bækl-
inga ættu að vera einhverjar reglur og raunar
um flest öll tæki sem fólk kaupir dýrum dóm-
um og botnar síðan takmarkað í. Pessu er
hérmeð vísað til Neytendasamtakanna, Fé-
lags íslenskra bifreiðaeigenda og annarra
LoKiNtf i' loKÍnu ,
A' l-OKALOKWU
Þi«av&ien.m
SK.ILJA AbElNS
WlFigAP^OPSAENN
sem málið varðar, að þeir rói í þingmönnum
sem hugsanlega vilja setja lög bflneytendum
til hagsbóta.
Brátt sér fyrir enda formálans, þó er ekki
hægt að stilla sig um að nefna heilaga trúar-
skoðun meðal bflamanna sem felst í því hvað
hinir aðskiljanlegu hlutar og hlutir bifreiðar-
innar skuli nefnast á móðurmáli okkar. Skrá-
setjarinn telst líklega til„ fríkirkjunnar“ í
þessum efnum en því má lýsa gróflega á eftir-
farandi hátt. Helst skal nota íslensk þjál og
sem gegnsæust orð yfir hluti og hugtök í bfl-
um, þar sem gömul afbökuð erlend orð sitja
fast fyrir skal nudda nýyrðum að smátt og
smátt, ef íslenskra orða er áfátt má reyna að
lýsa gerð hlutar, þýða orð eftir orðabók
(þykir ruddalegt) eða hafa erlenda orðið í
svigum. Lesendur sem fá hugljómun um
nýyrði eða endurlífgun gamalla orða gefi sig
fram.
Fyrirrennari skrásetjarans hafði við orð að
það væri vel við hæfi að þetta tímarit birti
einhverskonar alþýðufróðleik um bifreiðar.
Er þá mál að linni formálanum og gripið
niður í alþýðufróðleik og það tekið fyrir sem
íslenskum ökumönnum (og flestum ökufönt-
um) þykir síst áhugavert, semsé hvernig best
megi stöðva bifreiðina.
ABS hemlar
ABS hemlar (Anti-lock braking system) er
viðbót við og endurbót á hemlakerfinu eins
og við þekkjum það. Því er ætlað að koma í
veg fyrir að hjól læsist við hemlun en heml-
unin á jú að fara fram með núningi inni í
hjólhemlunum en ekki á milli hjólbarðans og
yfirborðs akbrautarinnar. Ekki hefur komið
fram hentugt íslenskt heiti yfir þetta fyrir-
brigði. Verður því talað um ABS hemla eða
kerfi í þessu máli.
ABS kerfið er virkt um leið og kveikju-
lyklinum er snúið. Örtölvuskynjari við hvert
hjól eða drifskaft fylgist með snúningshrað-
anum. Gerum ráð fyrir að ökumaðurinn
hemli fast og snögglega. Ef eitt eða fleiri hjól
skyldu hægja meira á sér en hin sér kerfið um
að draga úr vökvaþrýsingi til þeirra. Þótt
stigið sé af öllu afli á fótstigið (bremsupetall)
til að stöðva eða læsa hjólunum lætur kerfið
það ekki gerast. Segullokar opnast og lokast
í sífellu u.þ.b. 12-15 sinnum á sekúndu, og
skammta þannig þrýstinginn til hjóldælanna.
Þessir eru helstu hlutar kerfisins:
* Höfuðdæla með hjálparbúnaði sem léttir
ástigið. I sambandi við höfuðdæluna er
vökvageymir, rafmótor og vökvadæla.
* Stjórnstöð með tölvu u.þ.b. 8K. Stjórn-
stöðinni er ætlað að sjá svo um að öll hjólin
hemli eins. Einu eða fleiri hjólum leyfist ekki
að hægja meira á sér en hin hjólin eða læsast
alveg.
* Hraðaskynjari við hvert hjól eða drif-
skaft. Annaðhvort eru skynjararnir fjórir,
jafnmargir hjólunum eða þrír og þjónar þá
einn þeirra báðum afturhjólunum (bflar með
afturhjóladrif).
* Skammtari. Rafsegullokar púlsa vökva-
þrýstinginn til hjóldælanna. Stundum eru
lokarnir sambyggðir höfuðdælunni og því
sem henni fylgir.
Höfuðdælunni er komið fyrir á hefðbund-
inn hátt. Rafknúin dæla heldur vökvanum
undir þrýstingi í sérstökum geymi, 150-175
kg/cm2. Aðeins 6-10 sekúndur þarf til að ná
upp eðlilegum þrýstingi. Ef dælan svíkur á
að vera nægur þrýstingur til 10-20 hemlana
með ABS. Síðan verður hemlun með gamla
laginu.
í kerfinu er viðvörunarljós sem gefur til
kynna bilanir hvort sem um er að ræða of
lágan eða of háan þrýsting í kerfinu.
Allan tímann fylgjast skynjararnir með
snúningi hjólanna og stjórnstöðin ber saman
upplýsingar sem frá þeim berast. Skynjunin
fer þannig fram að lítið tennt hjól snýst með
hjóli bflsins. Skynjaranum er komið fyrir við
brún hjólsins og telur tennurnar jafnóðum
(ekki snerting heldur segulsviðsbreytingar).
Merkið sem verður til í skynjaranum hefur
misháa tíðni eftir snúningshraða hjólsins.
Merkin frá skynjurunum berast síðan stjórn-
stöðinni sem ber þau saman við forritað
hemlunarátak. Við alla venjulega hemlun
reynir ekkert á ABS kerfið og ökumaðurinn
verður ekki var við það á nokkurn hátt. ABS
kerfið grípur ekki í taumana fyrr en hart er
hemlað og eitt eða fleiri hjól hægja meira á
sér en hin eða er við það að læsast.
Nánar tiltekið er það tvennt sem getur orð-
75