Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2012, Page 87

Frjáls verslun - 01.01.2012, Page 87
FRJÁLS VERSLUN 1TBL. 2012 87 verð og landið er vel staðsett en þetta er endalaus vinna. Við stöndum okkur ágætlega en það er fullt af öðrum spennandi áfangastöðum og við þurfum að vera tilbúin til að takast á við hina endalausu samkeppni. Við þurfum að standast ákveðnar væntingar og þar er á bratt­ ann að sækja í ferðaþjón ustu almennt og alls staðar. Þetta snýst um fagmennsku í þjón­ ustu og þekkingu þeirra sem standa að ferðaþjónustufyrir­ tækjum auk uppbyggingar inn viða og aðgengis að ferða ­ manna stöðum.“ Skilaboð og upplifun Ólöf Ýrr segir ýmislegt hægt að gera til að ná enn betri árangri í ferðaþjónustunni. Hún nefnir að nú sé að hefjast innleiðing á metnaðarfullu gæða­ og um hverfiskerfi fyrir ferðaþjón­ ustuna, Vakanum, sem þróað hefur verið á grunni Qualmark­ kerfisins á Nýja­Sjálandi undir stjórn Ferðamálastofu og í sam­ starfi við Nýsköpunarmiðstöð og hagsmunasamtök ferðaþjón­ ustuaðila. „Við þurfum að geta staðið við þau skilaboð sem við sendum út – skilaboð og upplifun verða að fylgjast að og það er það sem ég hef svolitlar áhyggj ur af, því við höfum skorað hærra í skilaboðum t.d. á sviði um hverfis mála en það sem fólk upplifir þegar það kem­ ur. Við þurfum því að byggja upp innviðina og vera metnaðar full varðandi fagmennsku og þekk ­ ingu þeirra sem starfa innan grein arinnar. Lögð er áhersla á að auka arðsemi í fjárfestingum fyrir ferða þjónustuna og það skiptir gríðar legu máli, ekki bara í Reykjavík heldur líka út um allt land. Verkefnið „Ís­ land allt árið“ er því mikilvægt markaðssetn ingarverkefni. Það er ekki síður mikilvægt að huga að því að byggja upp innviði, bæði á vegum hins opinbera og atvinnu greinarinnar sjálfrar. Það getur horft til vandræða ef fjölg un ferðamanna helst ekki í hendur við uppbyggingu vand­ aðra áfangastaða og faglegrar þró unar innan greinarinnar. Það er ekkert eitt aðskilið frá öðru. Ég held að það sé mikil vægt að það sé skilningur á þessu. Við erum í samkeppni við önnur lönd sem áfanga staður ferðamanna; Ísland getur verið mjög góður áfanga staður og með þeim bestu en því fylgir enda laus vinna að vera á toppnum. Íslendingar hafa öll tækifæri til að vaxa á þessu sviði en það þarf auðvitað að vinna mjög vel og leggja fjármagn í þá vinnu. Áherslur Reykjavíkurborgar í þessum efnum eru gleðilegar en borgin steig mjög metnaðar­ fullt skref með því að skilgreina verkefnið Ráðstefnuborgin Reykja vík þar sem stofnaður hefur verið samstarfsvettvang ur höfuðborgarinnar og einka fyrir ­ tækja. Borgin ætlar að leggja talsvert fé í þennan vett vang gegn mótframlagi fyrirtækjanna en stofnfundur hans var 27. jan úar síðastliðinn. Ég hef alla trú á því að ef vel tekst til verði Ráðstefnuborgin Reykjavík þess­ um geira ferða þjónustunnar mikil lyftistöng.“ „Ég held að að­ dráttarafl þess óþekkta kalli á. Ísland er nýr áfanga staður á sviði ráðstefna og stór samtök eru alltaf að leita að nýjum áfanga­ stöðum.“ náttúRAn, FóLKið og Menningin Gerðar hafa verið nokkr­ar kannanir á meðal erlendra ferða manna og yfir gnæf andi meiri hluti þeirra nefnir náttúruna þegar spurt er hvað komi fyrst upp í hugann þeg ar Ísland er nefnt,“ segir Jón Ás bergsson, fram kvæmdastjóri Íslands stofu. „Svo eru aðrir þættir sem njóta vaxandi fylg is ef svo má segja: Það er fólkið sjálft og menningin. Í könnun sem Ferða­ málastofa lét gera á síðasta ári á meðal erlendra gesta nefndu sumir að Íslend ingar væru gest­ risnir, hjálp legir og þægilegir í umgengni. Hvað menninguna varðar þá er verið að tala bæði um afreyingu í víðum skilningi og menn ingu og sögu. Björk, Sykur molarnir og Mezzoforte hafa vakið athygli víða og er Björk örugglega þekktasta vöru merki Íslands ef hægt er að nota það hugtak um persónu. Hún er þekkt mjög víða. Svo eru hljómseitir eins og Of Monsters and Men og fleiri sem eru hægt og sígandi að verða að nöfnum erlendis.“ Jón segir að fleiri þættir hafi vakið at hygli á Íslandi á undan ­ förnum árum og nefnir efna ­ hags hrunið og gosið í Eyja­ fjallajökli. „Svo þarf að breyta þessari þekk ingu sem þessi athygli vekur í áhuga og síðan löngun til að koma hingað eða gera eitthvað með það sem er íslenskt.“ TExTi: svava jÓnsdÓTTir Jón ásbergsson, framkvæmda- stjóri Íslandsstofu. Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, segir að ís lensk náttúra, Íslendingar og menningin hér á landi veki mesta at hygli erlendra ferðamanna. „Svo eru hljóm­ sveitir eins og Of Monsters and Men og fleiri sem eru hægt og sígandi að verða að nöfnum erlendis.“ Hljómsveitin Of Monsters and Men.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.