Frjáls verslun - 01.04.2013, Síða 14
14 FRJÁLS VERSLUN 4. 2013
Magnea Gunnarsdóttir-Evans býr í London og starfar sem „account
manager“ í sölu- og markaðsþróunardeild hjá stærsta leigufyrirtæki flugvéla
í heiminum. Fyrirtækið á um 1.700 flugvélar sem það leigir til flugfélaga.
flugvélapartasalinn
Magnea
Magnea segir að þegar flugvélarn ar eru orðnar of gamlar til að leigja út séu
þær rifnar og nýtanlegir hlutir úr
þeim seldir: „Þá er að sjálfsögðu
búið að fara vandlega yfir hlutina
af fagmönnum og gera þá sem
nýja, enda þurfa vélarhlutarnir
síðan að uppfylla öll skilyrði til
þess að fá meðfylgjandi „flug
leyfisskjöl“. Við kaupum líka
nýlegar flugvélar einungis í
þeim tilgangi að rífa þær niður
í vara hluti til þess að selja. Það
eru u.þ.b. 25 flugvélar rifnar á
ári hjá okkur.
Starf mitt felst í því að sjá
um sölu þessara varahluta til
evrópsku flugfélaganna. Ég er
daglega í samskiptum við fólk í
bransanum allt frá Norðurlönd
un um, niður til Spánar og austur
til Rússlands og Tyrklands. Það
er mjög skemmtilegt þar sem
maður fer að þekkja fólkið nokk
uð vel.
Það er bókstaflega heill her
af fólki sem þarf til að halda
flugvélum fljúgandi í toppstandi,
því þegar flugvél bilar – þá er
það ekki eins og strætó og næsti
komi skröltandi eftir smástund.
Það verður strax að finna hvert
vandamálið er, kannski þarf að
redda varahlut, laga hann og
koma vélinni aftur í loftið. Afar
mikilvægt er að allt og allir fylgi
öllum reglum og lögum. Hver
mínúta kostar flugfélagið pen
inga þegar flugvél er á jörðinni –
rétt eins og tóm leiguíbúð gerir
á háum lánum.“
Flugvélahlutir – efni í
skúlptúra
Hefurðu mikinn áhuga á flug
vél um?
„Ég er alls ekki svokallaður
flugvéla„spotter“ eða nörd. Ég
þekki þær varla í sundur en
ég veit nokkurn veginn hvað
langflestir hlutir vélanna kosta
í dag, eins og t.d. í Boeing 737
og Airbus A320, bæði nýju og
gömlu flugvélatýpurnar. Satt
best að segja veit ég líka mikið
um Boeing 747, 757, 767,
A330 og A340týpurnar. Þetta
er kannski nördalegra en ég vil
viðurkenna!
Þetta hófst allt þegar ég óvart
álpaðist í smávinnu hjá flugfé
laginu Air Atlanta árið 1995 en
þá var ég nýútskrifuð úr kvik
myndagerð frá Bournemouth
Film School á Englandi. Vinur
minn vann hjá Atlanta og ég
ætlaði aðeins að aðstoða við
gagnainnslátt í tölvurnar hjá
þeim. Það eina sem heillaði
mig þá við flugvélavarahlutina
í vöruhúsinu var hvað sumir
þeirra voru flottir – fínasta efni í
skúlptúra!
Áður en árið var liðið var ég
farin að sjá um innkaupin á öll
um varahlutum fyrir um tuttugu
Boeing 747flugvélar í flotanum.
Flugfélagið stækkaði gífurlega
á þessum tíma með frábæru og
kraftmiklu fólki í stjórn. Það var
ekki mikið um peninga svo við
þurftum að vera klók og mjög
harðir prúttarar þegar við keypt
um á varahlutamarkaðnum. Þau
vinnubrögð nýttum við í öllu
starfi og vorum orðin vel þekkt
fyrir það. Ég var ekki búin að
vera mikið í kringum Íslendinga
þá í sjö ár en ég fluttist til Svíþjóð
ar átján ára, gekk í Nordiska
Folkhögskolan í Kungälv. Ári
seinna flutti ég svo til Bretlands
og tók menntaskólann. Allt var
þetta svo ótrúlega skemmtilegt,
lærdómsríkt og spennandi.
Ég prófaði aðeins að vinna að
þáttaröð fyrir BBC árið 1999,
eftir að ég átti fyrsta barnið mitt,
og sú vinna við kvikmyndun
stóð yfir í 1416 tíma á dag, sex
daga vikunnar. Maður átti helst
að vinna frítt og vera þakklát ur
TexTi: Hrund HauKsdóTTir / Mynd: Geir ólafsson
magNEa
„Starf mitt felst í
því að sjá um sölu
þessara varahluta til
evrópsku flugfélag
anna. Ég er daglega
í samskiptum við
fólk í bransanum
allt frá Norðurlönd
unum, niður til
Spánar og austur til
Rússlands og Tyrk
lands.“