Frjáls verslun - 01.04.2013, Qupperneq 142
142 FRJÁLS VERSLUN 4. 2013
Deloitte
kynbundinn launamunur
fyrirfinnst ekki í fyrirtækinu
texti maría ólafsdótti / /myndir: geir ólafsson
Fullt nafn: margrét ólöf a.
Sanders
Staða: Eigandi og fram kvæmda -
stjóri rekstrar
Starfsaldur hjá Deloitte: 14 ár
menntun: mba, viðskiptafræði,
kennaramenntun frá khÍ og ÍkÍ,
tungumálanám í Frakklandi
Fjölskylda: Eiginmaðurinn
Sigurður guðnason, dóttir Sig-
ríður og fósturdóttir Sylvía Rós.
Sonurinn albert karl lést 2011
Áhugamál: Fjölskyldan,
þjóðmálin, golf, knattspyrna og
aðrar íþróttir
Margrét Ólöf A. Sand ers, eigandi og framkvæmdastjóri
rekstrar hjá Deloitte, segir
frábært að vera í stjórn enda
teymi alþjóðafyrirtækis líkt
og Deloitte er. Að utan berist
starfsfólki góðar og gagnlegar
hug myndir, upplýsingar,
tæki og tól, jafnt starfsfólki og
viðskiptavinum til heilla.
hvernig metur þú væntingarnar
í atvinnulífinu eftir kosningar?
„Það eru miklar væntingar hjá
atvinnulífinu eftir kosningar
til nýrrar ríkisstjórnar og ekki
síður nýrra forystumanna í
stjórnar andstöðuflokkunum. Það
var ánægjulegt að heyra í kosn
ingabaráttunni að flestir flokkar
virtust vera með meiri skilning á
nauðsyn öflugs at vinnu lífs sem
forsendu til betri lífskjara.“
hvernig er staðan í þínu
fyrirtæki varðandi lögin um
kynjahlutföll í stjórninni sem
taka gildi 1. september nk.?
„Stjórn Deloitte er skipuð
tveimur konum og þremur
karl mönnum þannig að við
uppfyllum skilyrði laganna.“
Nú hefur Deloitte verið þekkt
fyrir jafnlaunastefnu sína –
hvenær fóruð þið að huga að
þeim málum?
„Deloitte er fyrirtæki með
rúmlega 200 starfsmenn sem
eru frábærir sérfræðingar hver
á sínu sviði. Nokkur fyrir
tæki sameinuðust Deloitte
1999 og úr varð þetta stóra
fyrir tæki sem hefur verið
leiðandi á markaðnum. Við
sam einingu þurftum við m.a.
að samræma laun og notuðum
þá tækifærið til að fara vel yfir
launakerfið og koma á 100%
jafnlaunakerfi milli kvenna og
karla. Launamismunur getur
aldrei verið kynjabundinn, en
launa munur getur auðvitað
verið á milli einstaklinga v/
menntunar, náms, frammistöðu
o.s.frv.“
Fullt nafn: harpa þorláksdóttir
Staða: Forstöðumaður viðskipta-
og markaðstengsla
Starfsaldur hjá Deloitte:
Fjögur ár
menntun: mba, b.Sc. í sjávarút-
vegsfræði
Fjölskylda: Eiginmaður er Sturla
Fanndal birkisson og börnin birkir
14 ára, Eygló 12 ára og
benjamín 7 ára
Áhugamál: Fjölskyldan, göngu-
ferðir, útivist, skíði og golf
hvað hefur verið efst á baugi
innan Deloitte að undanförnu?
„Það hefur margt gerst hjá
Deloitte að undanförnu. Á
dög unum gáfum við út fyrsta
app sinnar tegundar sem
hjálp ar notendum að muna
eftir mikilvægum skila og
greiðslu dögum hjá Ríkis skatt
stjóra. Í gegnum appið má
einnig komast inn á fréttaveitu
og nálgast boð á fundi og
ráð stefnur hjá Deloitte. Appið
er frítt og hefur notið mikilla
vinsælda. Auk þess höfum
við haldið fjöldann allan af
fundum, ráðstefnum og nám
skeiðum fyrir viðskiptavini
okkar og Alumnifélaga, en við
erum með mjög öflugt Alumni
starf hjá Deloitte. Þá héldum
við Dag gagnaverndar í fyrsta
sinn á Íslandi og er greinilegt
að mikil vitundarvakning hefur
átt sér stað hjá fyrirtækjum hér
á landi hvað varðar mikilvægi
þess að hafa tölvuöryggismálin
í lagi.“
Fullt nafn: Erna arnardóttir
Staða: mannauðsstjóri
Starfsaldur hjá Deloitte: Fjögur ár
menntun: ba í félagsfræði
Fjölskylda: Eiginmaður er hinrik
gylfason, sonur kári Örn, 24 ára,
og dóttir halla margrét, 18 ára
Áhugamál: hestamennska
hvaða árangur ertu ánægðust
með innan fyrirtækis þíns að
undanförnu?
„Ég er ánægðust með átak
okkar í að fjölga kon um með
löggildingu til endur skoð
unar starfa sem við hófum
fyrir nokkru, en eins og allir
vita er meirihluti löggiltra
endur skoðenda á Íslandi karl
menn. Þá er ég afar ánægð
með jafnlaunavottun VR sem
fyrirtækið fékk í júní 2013. Þar
„Deloitte er fyrir
tæki með rúmlega
200 starfsmenn.“