Frjáls verslun - 01.04.2013, Side 147
FRJÁLS VERSLUN 4. 2013 147
„Góður starfsandi
er dýrmæt eign
sem við leggj
um áherslu á
að rækta, nú
síðast með því
að undibúa leið
toga þjálfun fyrir
stjórn endur
bankans.“
Íslandsbanki
Áhersla á jafnan rétt kynjanna
Sigríður Olgeirsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrar- og upplýsingatækni-
sviðs Íslandsbanka, segir ánægða viðskiptavini bankans ómetanlega en fram-
tíð ar sýn Íslandsbanka er að vera númer eitt í þjónustu. Er starfsfólk bankans
samstiga í því að veita framúrskarandi þjónustu.
hvað hefur verið efst á baugi
innan þíns fyrirtækis að
undanförnu?
„Um leið og við höfum haft
ánægju viðskiptavina að leiðar
ljósi hafa falist miklar áskoranir
í starfi okkar síðustu árin.
Eitt megin verkefni bankans
frá stofn un hans hefur verið
fjárhags leg endurskipulagning
á skuldum viðskiptavina
okkar og endurútreikningur
gengistryggðra lána. Nú hafa
tæplega 36.000 einstaklingar
og 4.000 fyrirtæki fengið
afskriftir, eftirgjafir eða leið
réttingar á skuldum sem
nema um 490 milljörðum
króna. Í febrúar fengu svo
um 20.000 viðskiptavinir
vaxta endurgreiðslu sem nam
samtals um 2,5 milljörðum
króna. Endurgreiðslan var
lögð inn á sparnaðarreikning
en markmiðið var að hvetja
til sparnaðar. Í dag er tæpur
helm ingur endurgreiðslunnar
enn á sparnaðarreikningi hjá
bankanum og það bendir til að
hvatningarorðin hafi skilað sér
til viðskiptavina. Við höfum
kynnt nýjar og spennandi
snjallsímalausnir til þæginda
fyrir viðskiptavini. Þá hefur
einnig verið lögð áhersla á
þróun netbankans og munum
við sjá fleiri breytingar þar á
næstu mánuðum.“
hvaða árangur ertu ánægðust
með innan fyrirtækis þíns að
undanförnu?
„Ég er mjög ánægð með
hversu góðum árangri við
höf um náð í hagræðingu
sam hliða því að veita betri
þjónustu. Það hefur verið skýrt
mark mið að gera bankann
hagkvæmari í rekstri og með
mikilli vinnu hefur okkur
tekist að lækka rekstrarkostnað
hans verulega. Það helgast
af þeim frábæra starfsanda
sem einkennir Íslandsbanka.
Góður starfsandi er dýrmæt
eign sem við leggjum áherslu
á að rækta, nú síðast með því
að undirbúa leiðtogaþjálfun
fyrir stjórnendur bankans.
Mannauðsdeild bankans hefur
veg og vanda af þeirri þjálfun,
sem hefur heppnast sérlega vel.
Áhersla er lögð á hvernig megi
ná jafnvægi milli vinnu og
einkalífs, orkustjórnun, að vera
fyrirmynd, breytingastjórnun
og framkvæmd. Þjálfunin
var í raun þróuð til að auka
lífsgæði í nútímasamfélagi,
sem einkennist af stöðugu
áreiti. Mikil áhersla er lögð
á heilbrigði starfsmanna hjá
bankanum og má glöggt sjá
árangur þess í þátttöku þeirra
í t.a.m. Hjólað í vinnuna og
Reykjavíkurmaraþoni Íslands
banka.“
hvernig metur þú væntingarnar
í atvinnulífinu eftir kosningar?
„Með nýrri ríkisstjórn
hefur atvinnulífið væntingar
um skattalækkanir og aukið
og betra samstarf við aðila
vinnumarkaðarins. Það eru
tölu verðar væntingar um
auknar framkvæmdir og
fjárfestingar og að hlutirnir
gerist hratt. Ég reikna ekki
með að ríkisstjórnin fái mikla
þolinmæði frá kjósendum
ef tafir verðar á kosninga
lof orðunum. Það að hætta
aðildarviðræðum og setja
ákvörðun um framhaldið í
þjóðar atkvæðagreiðslu er,
sam kvæmt skoðanakönnunum,
andstætt vilja meirihluta
þjóð ar innar, sem getur vissu
lega haft áhrif á stuðning við
ríkisstjórnina. Ég vil persónu
lega að aðildarviðræð urnar
verði kláraðar og tel að það
myndi skapa meiri sátt til
lengri tíma litið hver svo sem
niðurstaðan yrði. Bjartsýni er
af hinu góða en það þarf líka
raunsæi.“
Hvernig er staðan í þínu
fyrirtæki varðandi lögin um
kynjahlutföll í stjórninni sem
taka gildi 1. september nk.?
„Tvær konur eru í sjö manna
stjórn Íslandsbanka í dag. En
stjórnarformaður bankans
hefur tilkynnt eigendum bank
ans og stjórn að gerðar verði
ráðstafanir til að bankinn full
nægi kröfum laganna áður en
þau taka gildi í haust.“
Er fyrirtæki þitt með sérstaka
formlega jafnlaunastefnu?
„Já, Íslandsbanki hefur
samþykkt jafnréttisáætlun sem
er leiðarvísir í jafnréttismálum
kynjanna innan bankans. Lögð
er áhersla á jafnan rétt kynjanna
í ráðningarstefnu bankans sem
og jafnan rétt til starfsþróunar.
Eins hefur bankinn undirritað
Jafnréttissáttmálann (e.
Women’s Empowerment
Princi ples), sem er samstarfs
verkefni UNIFEM og Global
Compact og veitir leiðbeiningar
um hvernig efla megi konur á
vinnustaðnum, á vinnumarkaði
og í samfélaginu. Um 68% af
starfsmönnum bankans eru
konur og konur eru í um 48%
af stjórnendastöðum í bank
anum.“
texti maría ólafsdóttir / mynd: geir ólafsson
Sigríður olgeirsdóttir.