Læknablaðið : fylgirit - 01.10.2001, Blaðsíða 44

Læknablaðið : fylgirit - 01.10.2001, Blaðsíða 44
SIÐFRÆÐI FÓSTURGREININGAR Áhugi kvenna upplýst val á ómskoðun, og ráðgjöf Kristín Rut Haraldsdóttir Höfundur er ljósmóðir við fósturgreiningardeild kvennadeildar Landspítala Hringbraut. Fyrirspurnir, bréfaskipti: Kristín Rut Haraldsdóttir fósturgreiningardeild kvennadeildar Landspítala Hringbraut. Sími: 560 1158: netfang: krruthar@landspitali.is Lykilorð: fósturómskoðun, upplýst val. Ágrip A Islandi fara langflestar konur í ómskoðun við 18-20 vikna meðgöngu. I mæðravernd á að upplýsa konur og maka þeirra um skoðunina, tilgang hennar og möguleikann á að fósturgalli finnist. Ómskoðunin á að vera kynnt sem valkostur en ekki „skylda“ í mæðravernd. Margar konur lýsa því hvernig þungun- in verður raunverulegri fyrir þeim en áður þegar þær sjá fóstrið á skjánum og að tengslamyndunin við fóstrið verði sterkari við ómskoðunina. Til að fá hug- mynd um hver afstaða íslenskra kvenna er til óm- skoðana og fósturgreiningar á meðgöngu þá var framkvæmd könnun á fósturgreiningardeild kvenna- deildar í ágúst 2000. Allar konur sem komu á deildina á 10 daga tímabili voru beðnar að svara spurningum um efnið eftir að þær höfðu verið í ómskoðuninni. Langflestar konurnar töldu sig upplýstar um tilgang ómskoðunarinnar (94%) og höfðu einnig hugleitt að fósturgalli gæti greinst hjá fóstri þeirra (90%). Að- eins 68% kvennanna héldu að ómskoðun við 19 vik- ur væri valkostur í meðgöngu, en hins vegar vildu 96% kvennanna fara í ómskoðun á meðgöngu. Langflest- ar konurnar (93%) vildu fara í snemmómskoðun og fá reiknað líkindamat með tilliti til litningagalla fóst- urs (svo sem Downs heilkennis) ef það stæði til boða. Inngangur Vonin um að eignast heilbrigt barn hefur lifað meðal mannkyns frá ómunatíð. Það er hins vegar ekki fyrr en á allra síðustu árum sem hægt hefur verið að skoða og meta heilbrigði fósturs í móðurkviði. Með tilkomu ómtækninnar er nú hægt að skoða fóstrið og eftir því sem tækninni hefur fleygt fram og sérhæfing starfs- fólks aukist, hefur þekkingin aukist jafnt og þétt (1-3). Fyrir 25 árum kom fyrsta ómtækið til landsins en það er ekki hægt að leggja að jöfnu við þann tækjabúnað sem við búum við í dag. En það gerði okkur mögulegt að kíkja inn fyrir. Legvatnsástungur til greiningar á litningagerð fósturs hófust einnig um þetta leyti og í framhaldi af því var farið að bjóða öllum konum 35 ára og eldri upp á litningarannsókn fósturs. Skipulagning ómskoðunar við 18-20 vikur Árið 1986 var öllum konum boðið að koma í óm- skoðun við 19 vikur. Þá var markvisst farið að skoða heilbrigði fósturs, eins og hægt er, hjá öllum þeim konum sem það kusu. Hér á íslandi hafa um 99% kvenna nýtt sér þennan valkost í mæðravernd. Ástæður þess að svo margar konur velja að fara í óm- ENGLISH SUMMARY Haraldsdóttir KR Woman’s interest in ultrasound, informed choice and counselling Læknablaðið 2001; 87/Fylgirit 42: 44-6 Prenatal ultrasound examination is routinely performed in lceland at 18-20 weeks gestation. The examination should be offered to all pregnant women and their partners. The couple should receive counselling regarding the purpose of the examination and possible sequela, i.e. if fetal anomaly is detected. The examination should therefore be optional, not mandatory. Many women state that an increased sense of bonding with the baby occurs during the ultrasound examination and express joy over watching the fetus and see its movements on the screen. In order to get an idea what pregnant women want, all women who had just attended an ultrasound examination at the prenatal diagnostic unit in Reykjavík over a 10 day period in August 2000 were asked to answer a questionnaire regarding ultrasound and fetal diagnosis. The majority of women reported having been informed about the goals of the 19 weeks examination (94%), and had considered that their fetus might have a malformation (90%). Only 68% of the women considered the ultrasound examination at 19 weeks to be optional. Almost 96% of the women stated that they would have the ultrasound examination. The majority (93%) of women would like to have an early ultrasound examination with assessment of fetal risk for aneuploidy (for instance Down's syndrome), if such a test was offered. Key words: prenatal ultrasound, informed choice. Correspondence: Kristín Rut Haraldsdóttir midwife. E-mail: krrutthar@landspitali.is skoðun á meðgöngu er trúlega þessi von, vonin um að eignast heilbrigt barn og fá jafnvel staðfestingu um það á meðgöngu. Að geta séð barnið, hendur þess og fætur, sjá það hreyfa sig, jafnvel sjúga fingur er mikill gleðigjafi og tengir verðandi foreldra við hinn ófædda einstakling. Hins vegar er sorgin líka mikil ef í ljós kemur alvarlegur fósturgalli (4-6). Ómskoðun á meðgöngu, upplýst val verðandi foreldra Mjög mikilvægt er að upplýsa verðandi foreldra um tilgang ómskoðunarinnar, en fyrst og fremst er verið að kanna heilbrigði fóstursins, auk þess sem verið er að ákvarða meðgöngulengd, fjölda fóstra og fylgju- 44 Læknablaðið 2001/87/Fylgirit 42
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.