Læknablaðið : fylgirit - 01.10.2001, Side 56

Læknablaðið : fylgirit - 01.10.2001, Side 56
SIÐFRÆÐI FÓSTURGREININGAR A new vision of motherhood from onc of the most brilliant social scientists of our day M O I 11 H R N AT LJ R F MATERNAL INSTINCTS AND HOW THEY SHAPE THE HUMAN SPECIES "A truly monumental work, as clegant as it is insightful." —Elizaueth MarshallThomas How Amniocentesis*/ Changes the Experience oi Motherhood BARBARA KATZ ROTHMAN “An authoritative and timely book on a subject we cannot afford to ignore.” —Jonathan Weiner, Pulitzer Prize-winning author ol The Beak ol the Finch HAKIN6 HOW Genetic Engineering and Cloning Will Transform the American Family The use of reprogenetic technologies is inevitable. For better and worse, a new age is upon us." Hvert verður eðli móðurhlutverksins í framtíð- Nútíma meðganga: þungun „með fyrirvara“? inni? Munu erfðavísindin bceta lýðheilsu? Tilraunir til að skima kerfisbundið fyrir Downs heilkennum með ómskoðun þar sem áhersla er lögð á leit að mjúkum teiknum í öðrum þriðjungi með- göngu (viku 17 til 19) hefur verið gagnrýnd á síðustu árum bæði í Evrópu og í Bandaríkjunum (5-10). Þessi gagnrýni á sér stað á sama tíma og aukinn þrýstingur skapast á fæðingar- og kvensjúkdómalækna að upp- lýsa verðandi foreldra um allar vísbendingar til frá- vika (total disclosure) vegna hugsanlegra kærumála (5,6,10,11). Pað að segja verðandi foreldrum frá öll- um mjúkum teiknum getur hins vegar leitt til þess að um 10-15% allra þungana flokkast sem „áhættumeð- göngur“ (5,10). Sums staðar á Norðurlöndunum hef- ur viðgengist það vinnulag að segja einungis frá þess- um teiknum þegar ágiskuð áhætta samræmist aukn- um aldri. Samkvæmt nýlegum vinnustaðli í Noregi fær væntanlega um 1-2% þeirra kvenna sem að öðru leyti flokkast með litla áhættu (low risk) upplýsingar um að fóstrið sé með auknar líkur á Downs heilkenn- um við ómskoðun í 18. viku. í slíkum tilvikum er oft um að ræða að minnsta kosti tvö teikn sem benda á aukna áhættu (Kjell Á. Salvesen 2001, persónulegar upplýsingar). Ómskimun snemma í meðgöngu, bætt greiningarpróf fyrir Downs heilkenni Um miðjan 10. áratuginn varð ljóst að ómskoðun í 11.-14. viku þungunar virtist betra próf til þess að greina fóstur með Downs heilkenni en sambærileg rannsókn í 18. viku. Breskir vísindamenn þróuðu þess vegna skimunaraðferð sem nefnd hefur verið snemmskoðun (early ultrasound screening) þar sem tilgangurinn var meðal annars að fá sem besta grein- ingartækni á hugsanlegum litningagöllum fósturs, einkum þrístæðu 21 (Downs heilkennum) og litn- ingagöllum nteð þrístæðu 13 og 18, sem leiða að jafn- aði til dauða á meðgöngu eða skömmu eftir fæðingu (12-14). Ómskoðunin leiðir einnig lil þess að greina má fjölda vefjafræðilegra frávika svo sem ákveðinn hluta af hjartagöllum. Um þessar mundir íhugar fag- fólk á Norðurlöndunum hvort taka eigi upp kerfis- bundna snemmskoðun af þessu tagi. Þar eð skimun fyrir Downs heilkennum er talin vera markmið út af fyrir sig og hluti af almennu með- göngueftirliti, er ómskimun snemma á meðgöngu (11.-14. viku) mikið framfaraspor miðað við ómskoð- un í 18. viku þungunar og legvatnsástungu hjá „eldri konum“ þar eð flest börn með Downs heilkenni fæð- ast þrátt fyrir allt hjá konum sem eru yngri en 35 ára. Með snemmskoðun greinast um 75-80% allra þeirra fóstra sem eru með þrístæðu 21 (12-14). Fóst- ureyðing í kjölfar fósturgreiningar snemma á með- göngu er læknisfræðilega einfaldari en fósturdeyðing og fæðing andvana fósturs síðar í meðgöngunni. Sé tekið mið af líkamlegu álagi er hægt að leggja að jöfnu þessa ákveðnu fóstureyðingu (fóstureyðingu þar sem binda á endi á þungun sem upphaflega var óskað eftir í ljósi niðurstöðu fósturgreiningar) við almennar fóstureyðingar (að binda endi á óæskilega þungun almennt). Hnakkaþykktarmœling og einstaklingsbundið áhœttumat: Snemmskoðun fyrir litningagalla byggist á því að mæla eitt teikn í fóstrinu sem nefnt hefur verið hnakkaþykkt (nuchal translucency). Hnakka- 56 Læknablaðið 2001/87/Fylgirit 42

x

Læknablaðið : fylgirit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.