Læknablaðið : fylgirit - 01.10.2001, Blaðsíða 68
SIÐFRÆÐI FÓSTURGREININGAR
Þú hefur ofíð mig í móðurlífí
Inngangur
Hér verður fjallað um guðfræðilegrar og siðfræðileg-
ar vangaveltur um líf fyrir fæðingu. Fyrst langar mig
til að hafa örlítinn inngang um það hvernig guðfræði-
leg afstaða er tekin gagnvart einstökum málum og í
öðru lagi hvernig við tökum siðferðislega afstöðu,
sem byggð er á kristinni trú, en það er sá grunnur sem
ég byggi á. Síðan mun ég leitast við að taka bæði guð-
fræðilega og siðfræðilega afstöðu gagnvart snemm-
greiningu á Downs heilkennum.
Solveig Lára
Guðmundsdóttir
Höfundur er guðfræðingur að
mennt, sóknarprestur á
Möðruvöllum í Hörgárdal.
Fyrirspurnir, bréfaskipti: Sr.
Solveig Lára Guðmundsdóttir,
Möðruvöllum í Hörgárdal,
601 Akureyri; netfang:
srslara@ismennt.is
Lykilorð: fósturgreining,
meðganga, skimun,
snemmskoðun, siðfrœði,
guðfrœði.
Guðfræðileg afstaða
Þegar taka á guðfræðilega afstöðu er fyrst skoðað
hvort Biblían hafi eitthvað ákveðið um ákveðinn
málaflokk að segja. Ef rannsóknin leiðir það í ljós að
ekkert er nákvæmlega sagt um eitthvert þröngt efni,
eins og mörg þau sem nútíma tækni er að glíma við,
þá er skoðuð afstaða Biblíunnar til skyldra mála-
flokka eða til efnis sem hægt er að draga guðfræði-
lega niðurstöðu af. Nú er það nokkuð ljóst bæði hjá
þeim sem eru guðfræðimenntaðir og öðrum sem eitt-
hvað þekkja til trúarbókar okkar að Biblían er gömul
bók. Hún er skrifuð á mjög löngum tíma og af mjög
mörgu fólki með nokkuð mismunandi afstöðu til lífs-
ins. Samt sem áður getum við ekki litið framhjá því
að Biblían hefur lifað með tugum kynslóða og mótað
menningu okkar og lífsafstöðu miklu meira en okkur
grunar. Þrátt fyrir það að Biblían sé skrifuð af fólki
með mismunandi lífsafstöðu má draga nokkurn
rauðan þráð í gegnum þessar 66 bækur sem Biblían
er samansafn af.
Það sem gengur eins og þráður í gegnum Gamla
testamentið, sem er bókasafn 39 bóka, er sköpunar-
trúin, það er trúin á einn Guð sem skapað hefur him-
in og jörð og manneskjuna (karl og konu) í sinni
mynd. Að Guð hafi skapað manneskjuna í sinni
mynd þýðir ekki að manneskjan beri útlitslega mynd
Guðs, heldur þýðir það að manneskjan sé sköpuð til
samfélags við Guð og hafi þannig sérstöðu í sköpun-
arverkinu umfram önnur dýr og jurtir. Þráðurinn
heldur áfram í trú á handleiðslu Guðs með hverju
mannsbarni kynslóð fram af kynslóð. Þannig er það
skoðun sköpunarguðfræðinga að vitrænn hugur,
Guð, standi að baki þróunar heimsins frá frumstæð-
um örverum til hinnar viti bornu manneskju. Þetta
má segja að sé sameiginleg lífsafstaða allra bóka
Biblíunnar.
Þegar þessi fræði eru skoðuð eru þær bækur Biblí-
unnar skoðaðar, sem hafa að geyma Ijóð eða frásagn-
ir af sköpun heimsins. Eitt kunnasta ljóð um sköpun
ENGLISH SUMMARY
Guðmundsdóttir SL
Thou hast covered me in my mother's womb. A
theological-ethical analysis of prenatal screening
for Down's syndrome in early pregnancy
Læknablaðið 2001; 87/Fylgirit 42: 68-70
Theological stand in relation to life: Throughout the
Bible is to be found a faith in God the creator of heaven
and earth and the creator of mankind. That thread con-
tinues in the faith in God’s providence over every human
child. It is the opinion of theologians that a wise mind,
God, is behind the evolution of the world from primitive
cells to the human being. This theology holds a very
positive attitude towards life as well as a positive attitude
towards both “perfect” and “defect” creatures. The Bible
says that God has created us in our mother’s womb and
has known us long before we became created material.
Human life is thus to be regarded as holy from conception
to grave.
Ethical stand in relation to life: To the theological stand
we now add the words of Jesus Christ as they have come
to us in the gospels. This also introduces an emotional
stand because the message of Jesus moves our emotions.
The theology of the New Testament is a theology of life.
There are no direct examples of Jesus taking a stand in
relation to life before birth, but there are many examples of
how he takes a stand on people with handicaps, mental
retardation, lepra, etc. Matt. 25:35-36 concludes: “Verily I
say unto you, inasmuch as ye have done it unto one of the
least of these bretheren, ye have done it unto me.”
•A stand of theology and ethics of life in relation to early
ultrasound screening for Down's syndrome: If the
purpose of prenatal testing is to prepare the family for the
birth of a child with Down's syndrome, testing might be
positive, as early diagnosis may diminish the shock after
birth. On the other hand, we do not know how a mother’s
knowledge that her baby will have Down's syndrome
might affect the development of the unborn child. If the
purpose of testing is to offer termination of affected
pregnancies, the theological as well as ethical stand would
reject it. My long experience as a pastor has reveáled to
me that abortions may severely affect the life of the mother
and her family both psychologically and emotionaily.
Key words: prenatal diagnosis, fetal medicine, early
ultrasound, ethics, theology.
Correspondence: Solveig Lára Guðmundsdóttir, Parish
pastor. E-mail: srslara@ismennt.is
heimsins er sköpunarsagan í fyrstu Mósebók, en
Biblían hefur að geyma mörg önnur sköpunarljóð,
eins og áttunda Davíðssálm og 139. Davíðssálm, sem
68 Læknablaðið 2001/87/Fylgirit 42