Læknablaðið : fylgirit - 01.12.2002, Side 106

Læknablaðið : fylgirit - 01.12.2002, Side 106
I ÁGRIP VEGGSPJALDA / XI. VÍSINDARÁÐSTEFNA Hl og getur þannig flýtt fyrir mælingum og dregið úr kostnaði sem fylgir notkun dýrahimna. V 153 Þróun HPLC-mæliaðferðar til að greina doxýcýklín og niðurbrotsefni þess í vatnssæknu hlaupi og í sermi Eysteinn Ingólfsson1.2, Skúli Skúlason12, Þórdís Kristmundsdóttiri 1 Lyfjafræðideild HÍ, 2Líf-Hlaup ehf. skulis@hi.is Inngangur: Nýlegar rannsóknir hafa sýnt að tetracýklínsýklalyfin hafa ekki einungis sýkladrepandi áhrif, heldur einnig hemjandi áhrif á ensímin matrix metallópróteinasa (MMP), en þessi verkun virtist vera alveg óháð sýklahemjandi áhrifum lyfjanna. MMP eru ensím sem gegna hlutverki í ónæmissvörun og bólgumyndun í líkamanum, svo sem í munnangri og tannholdsbólgu. Tetracýklín, og þá sérstak- lega hálfsamtengdu afbrigðin doxýcýklín og mínócýklín, safnast upp í millifrumuvökva tannholds þannig að styrkur þeirra verður mun hærri þar en í sermi. í ljós hefur komið að af tetracýklínlyfjun- um hefur doxýcýklín mest hemjandi áhrif á MMP. Helstu markmið þessa verkefnis er að þróa einfalda magngreiningaraðferð fyrir doxý- cýklín og niðurbrotsefni þess í smáskammta doxýcýklin (SSD) hlaupi svo og í sermi. Margar HPLC aðferðir hafa verið notaðar til að greina doxýcýklín í lyfjaformum en flestar eru þær tímafrekar og flóknar, sumar eru mjög dýrar og aðrar geta ekki greint á milli doxýcýklíns og niðurbrotsefna þess. Efniviður og aðferðir: SSD hlaup var magngreint hreint og í sermi kinda með HPLC tækni og prófaðar voru mismunandi aðstæður og gerðir súlna við greininguna. Niðurstöður: Til að magngreina doxýcýklín og niðurbrotsefnin 6-epí- doxýcýklín og metacýklín reyndist best að nota Phenomenex® Luna 5 p, Cg súlu með Phenomenex® C8 forsúlu, ferðafasi samanstóð af acetonitril:vatni:perklórsýru (26:74:0,25) sem stillt var á pH 2,5 með 5 M natríumhýdroxíði, flæðihraði var 1,0 ml/mín og greint var með U.V. gleypnimæli við 350 nm. Fyrstu niðurstöður benda til að þessa aðferð megi einnig nota til að skilja að önnur tetracýklínafbrigði. Alyktanir: Kostirnir við þessa greiningaraðferð fyrir doxýcýklín og niðurbrotsefni þess eru að hún er áreiðanleg, einföld og ódýr, eink- um í samanburði við aðferð Ph. Eur. V 154 Flæðihraði sameinda gegnum einangraðar lyktarþekjur úr nautum Brynjar Örvarsson1, Sighvatur Sævar Ámason2, Davíð Ólafsson2, Jóhannes Helgason3, Kristinn Johnsen3, Sigríður Ólafsdóttir3, Sveinbjörn Gizurarson13 'Lyfjafræðideild og 2Lífeðlisfræðistofnun HÍ, 3Lyfjaþróun hf. brynjar.orvarsson@lyfogheilsa.is ' Inngangur: Aðgengi flestra lyfja inn í miðtaugakerfi er lítið eða ekkert vegna takmarkaðs flæðis yfir blóð/heila þröskuldinn. Lykt- arþekjan efst í nefholinu er einn sá staður líkamans þar sem frumur miðtaugakerfisins eru í beinni snertingu við ytra umhverfi. Rann- sóknir in vivo benda til þess að hægt sé að gefa lyf úr nefholi um lyktarþekjuna inn í miðtaugakerfið. í þessari rannsókn var sett upp in vitro kerfi til að mæla samband mólþunga og flæðihraða sameinda yfir lyktarþekju úr nautgripum. Ennfremur voru notaðar raflífeðlis- fræðilegar aðferðir til að meta lifun þekjunnar. Efniviður og aðferðir: Lausnir af fjórum mismunandi lluorescein isothiocyanate (FITC) merktum dextrönum (FD) með mólþunga á bilinu 4 til 150 kDa, voru settar á holhlið einangraðra lyktarþekja sem komið var fyrir í láréttum Ussing kerjum. Sýni voru tekin úr móttökulausninni á blóðhlið þekjunnar og styrkur FD sem fall af tíma ákvarðaður með mælingum á flúrljómun. Rafvirkni þekjanna var mæld með spennuþvingunartækni bæði fyrir og eftir ásetningu FD. Sértækir hindrar, ouabain (2 pM) og amílóríð (100 |xM), voru notaðir til að meta tilvist og virkni Na+/K+-ATPasa og Na+-ganga. Niðurstöður og ályktanir: Mælingar á rafvirkni þekjanna sýndi að lifun lyktarþekja úr nautgripum í Ussing keri var að minnsta kosti sex klukkustundir. Viðbrögð lyktarþekjanna við hindrunum sýndu að þær hafa ouabain-næman Na+/K+-ATPasa á blóðhlið og amíl- óríðnæm Na+-göng á holhlið þekjunnar. Allar stærðir af merktum dextrönum sem prófaðar voru mældust í móttökulausninni en breyti- leiki var mikill í flæðihraða innan hvers stærðarflokks. Flæðihraði efnanna yfir himnuna minnkaði mikið með vaxandi mólþunga þann- ig að merktar 4 kDa sameindir flæddu að meðaltali með 1,9 jxg/mín/ cm2, 20 kDa með 1,0 |xg/mín/cm2 og 150 kD með 0,1 jxg/mín/cm2 hraða gegnum himnur sem sýndu rafvirkni. V 155 Einangrun anthrakínón afbrigðis úr klettaglæðu, Xanthoria elegans Kristín Ingúllsdúttir1, Anna Sif Paulson1, Höröur Kristinsson2 tLyfjafræðideild HÍ, 2Náttúrufræðistofnun fslands, Akureyrarsetur kring@hi.is Inngangur: Annars stigs efni (secondary metabolites) sem myndast í fléttum gegna oft hlutverki varnarefna gegn örverum og skordýr- um, enda vaxa fléttur hægt og við erfið skilyrði. I fyrri rannsóknum hafa annars stigs efni úr flokki depsíða, trídepsíða, orsínól afbrigða, depsídóna, alkylamíða og fitusýrulaktóna verið einangruð úr ís- lenskum blaðfléttum (meðal annars fjallagrösum, dilaskóf, geita- nafla) og runnfléttum (meðal annars grábreyskju, hreindýrakrók- um) og hafa mörg þeirra sýnt áhugaverða lífvirkni, svo sem sýkla- hemjandi-, veiruhemjandi-, lípoxýgenasahemjandi- og vaxtarhindr- andi áhrif á illkynja frumur. Rannsóknir okkar hafa ekki áður beinst að hrúðurfléttum eða fléttum eins og klettaglæðu (Xanthoria elegans), sem er sterk-appelsínugul skóf sem vex á klettum og steyptum veggjum. Efniviður og aðferðir: Utdráttur var gerður á malaðri klettaglæðu í Soxhlet búnaði. Útdrátturinn var þáttaður (fractionated) með kíselgel-súluskiljun (súla A) þar sem ferðafasi var díklórmetan með vaxandi styrk metanóls. Einn af þeim þáttum sem skilinn var á súlu A var aðgreindur á annarri súlu (súlu B). Af súlu B greindist þáttur sem innihélt hreint efni á formi appelsínugulra nála. Niðurstöður: Kjarnarófsmælingar (1H NMR og 13C NMR) sýndu að einangraða efnið var anthrakínón afbrigði (C16H12Os); 1,8-dí- hydroxy-3-metyl-6-metoxy-9,10-anthracendíón, öðru nafni paríetín. Alyktanir: Þetta er fyrsta efni úr flokki anthrakínóna sem einangrað hefur verið úr íslenskri fléttu. Anthrakínón afbrigði eru mörg þekkt sem litarefni en einnig vegna áhugaverðrar lífvirkni. Einangrun- arferill sá sem hér var þróaður verður því notaður til að tryggja meira magn paríetíns fyrir fjölþættar virknimælingar. Jafnframt er stefnt að efnagreiningu annarra fléttutegunda glæðuættar (Teloschistaceae), svo sem veggjaglæðu (X. parietina) og hellisglæðu (X. sorediata). 106 LÆKNABLAÐIÐ / FYLGIRIT 47 2002/88
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Læknablaðið : fylgirit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.