Læknablaðið : fylgirit - 01.06.2010, Síða 19

Læknablaðið : fylgirit - 01.06.2010, Síða 19
Það gerðist svo í september 1944 að fimm þingmenn á Alþingi fluttu frumvarp í neðri deild um lækningaleyfi handa Karli Kroner. Þar kom fram að Karl væri þekktur sérfræðingur í taugalækningum og oft hefði verið leitað til hans um lækningar í Reykjavík en hann hefði orðið að vísa sjúklingum frá sér vegna þess að hann væri ekki með íslenskt lækningaleyfi.67 Rétt um miðjan október 1944 var frumvarp til laga um lækningaleyfi handa Karli Kroner tekið fyrir í heilbrigðis- og félagsmálanefnd Alþingis. Nefndarmenn voru allir á eitt sáttir um að veita ætti Karli lækningaleyfi en með nýrri lagasetningu. Nefndarmenn höfðu leitað álits Vilmundar Jónssonar þáverandi landlæknis og stjórnar Læknafélags Reykjavíkur. Hjá þeim kom fram að þeir voru „út af fyrir sig meðmæltir, að dr. Kroner [fengi] lækningaleyfi" en með öðrum hætti en gert var ráð fyrir í frumvarpinu. Vilmundur lagði til að breytingar yrðu gerðar á lögum um lækningaleyfi frá 1932 á þann veg að ráðherra með samþykki læknadeildar og landlæknis gæti veitt lækningaleyfi þótt öðrum skilyrðum yrði ekki fullnægt, þar á meðal ákvæðinu um íslenskan ríkisborgararétt. Stjórn Læknafélags Reykjavíkur lagði til að Karli Kroner yrði veitt ríkisborgaréttindi í stað lækningaleyfis með sér- stökum lögum.68 Málinu lyktaði á þann veg að 31. október 1944 var Karli Kroner veitt ótakmarkað lækningaleyfi.69 Honum var aldrei veitt sérfræðileyfi í tauga- lækningum á íslandi enda engar vísbendingar um að hann hafi sótt um slíkt leyfi. Fljótlega eftir að Karli hafði verið veitt leyfið virðist sem heilbrigðis- og félagsmálanefnd Alþingis hafi farið fram á umsagnir varðandi breytingar á lögum um lækningaleyfi, bæði við stjórn Læknafélags íslands og Læknafélags Reykjavíkur. í skjalasafni Læknafélags íslands eru til tvö bréf til nefndar Alþingis. Annað bréfið er frá stjórn Læknafélags Reykjavíkur og þar kemur fram að ef lögum um veitingu lækningaleyfa yrði breytt á þann veg að fellt yrði úr gildi ákvæði um íslenskan ríkisborgararétt sem skilyrði fyrir lækningaleyfi, myndi það ekki samrýmast hagsmunum íslenskra lækna almennt. í bréfi Læknafélags íslands dagsettu 8. nóvember 1944 til nefndar Alþingis kom fram að stjórn Læknafélags Islands taldi það ekki rétt að breyta ákvæði um íslenskan ríkisborgararétt í lögum, því að vel þyrfti að vera á verði gegn því að útlendum læknum yrði að „óþörfu hleypt inn í landið og veitt full réttindi."24 Engar breytingar voru gerðar á lögum um lækningaleyfi fyrr en mörgum árum síðar. Eftir að Karli Kroner var veitt lækningaleyfi starfaði hann sem læknir í Reykjavík en í byrjun maí 1945 flutti hann til Bandaríkjanna ásamt eiginkonu sinni og syni. Karl andaðist árið 1954 en hafði lagt svo fyrir að aska sín skyldi flutt til íslands. Hann er grafinn í Fossvogskirkjugarði og við hlið hans liggur eiginkona hans, Irmgard.360 Kjartan R. Guðmundsson taugalæknir Kjartan Ragnar Guðmundsson var fyrsti íslenski taugalæknirinn sem starfaði eingöngu við sérgrein sína hér á landi. Hann lauk læknanámi frá Háskóla Islands 1936 og tveimur árum síðar hóf hann sémám í taugalækningum, fyrst á taugalækningadeild Serafimerlasarettet í Stokkhólmi sem síðar varð taugalækningadeild Karolinska Sjukhuset og á Kommunehospitalet og Rigshospitalet í Kaupmannahöfn.3 Arið 1940 kom hann til Islands og í nóvember sama ár opnaði hann læknastofu í Lækjargötu 6B í Reykjavík.70 Tveimur árum síðar, fékk Kjartan sérfræðileyfi í taugalækningum og hóf þegar í upphafi ferils síns rannsóknir á tíðni taugasjúkdóma á Islandi. Hann ferðaðist um landið og kannaði sjúklinga með MS, Parkinsonveiki og marga aðra sjúkdóma í taugakerfi.71 Erfitt gat verið fyrir sérfræðilækna sem og aðra íslendinga að ferðast til útlanda á fimmta áratug 20. aldar vegna efnahagserfiðleika í landinu. Árið 1948 gengu í gildi lög um dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna en þau höfðu verið sett vegna lélegs ástands efnahags í landinu. Því urðu læknar sem vildu kynna sér nýjungar í sérgreinum sínum í útlöndum að sækja til stjómar Læknafélags íslands og skýra henni frá utanlandsferðum sínum. Því næst sendi Læknafélag íslands bréf til fjármálaráðuneytisins og viðskiptanefndar og bað um að umræddur læknir yrði undanþeginn viðbótargjaldi af gjaldeyrisleyfum til utanferða þar sem um námsferð væri að ræða. Hlutaðist stjórn Læknafélags íslands til um það að læknirinn gæfi heilbrigðisráðuneytinu skýrslu um nám sitt innan mánaðar frá heimkomu. í skjalasafni Læknafélags íslands er að finna margar slíkar umsóknir og var umsókn Kjartans þar á meðal LÆKNAblaðiö 2010/96 Fylgirit 64 19
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.