Læknablaðið : fylgirit - 01.06.2010, Page 43
snertingu, nálastungu, kuldaskynjun, titrings-
skynjun og stöðuskynjun. Komi fram eitthvað
sem veki grunsemdir um skerta starfsgetu
skynkerfisins þarf að fara út í nákvæmar og oft á
tíðum mjög tímafrekar athuganir til að staðsetja
skyntruflunina svo hægt sé að gera sér grein fyrir
ástæðu hennar.25
Samhæfing hreyfinga:
Hér er farið í gegnum getu sjúklings til fíhhreyfinga,
göngugetu hans, ákveðinna ósjálfráðra hreyfinga
og skjálfta. Auk þess eru skoðaðar augnhreyfingar
m.t.t. ósjálfráðra hreyfinga og samhæfingar augn-
hreyfinganna.25
Reflexar:
Hér eru skoðaðir sinareflexar í öllum útlimum,
kviðreflexar og plantar svörun. Komi eitthvað
óeðlilegt fram er iðulega farið út í nákvæmari
prófanir.25
Ósjálfráða taugakerfið:
Hér eru skoðuð viðbrögð ósjálfráða taugakerfisins,
þar sem því verður við komið. Er það gert
með skoðun á sjáaldri og viðbrögðum þess,
svitaframleiðslu, blóðþrýstingi og breytingum á
blóðþrýstingi og hjartslætti við stöðubreytingar.
Jafnfram er öndun skoðuð.25
Heiðursfélagar íTaugalæknafélagi íslands
Félagsmenn í Taugalæknafélagi Islands hafa
veitt þremur taugalæknum sæmdarheitið
heiðursfélagi fyrir að hafa haft áhrif á þróun
íslenskra taugalækninga. Fyrsti heiðursfélagi
Taugalæknafélags íslands er belgískur tauga-
læknir, Charles Marcel Poser að nafni, fæddur
30. desember 1923. Þegar hann var gerður að
heiðursfélaga í Taugalæknafélagi íslands var
hann prófessor á Beth Israel Hospital í Boston í
Bandaríkjunum og var jafnframt fyrsti ritstjóri
tímaritsins World Neurology.25
Á fundi í Taugalæknafélaginu 2. maí 1989
var tekið fyrir bréf sem borist hafði frá
taugalæknunum Gunnari Guðmundssyni
prófessor og John Benedikz þar sem þeir óskuðu
eftir því að Charles Poser, „þekktur vísindamaður
um allan heim" eins þeir orðuðu það í bréfinu,
yrði gerður að heiðursfélaga í Taugalæknafélagi
íslands. Charles Poser hafði „bæði í orði og verki,
mikinn áhuga á rannsóknum á taugasjúkdómum
hérlendis og tekið þátt í nokkrum þeirra."25 Þá
hafði hann oft komið til íslands og haldið erindi
um taugasjúkdóma. Með bréfi Gunnars og Johns
fylgdi curriculum vitae, þ.e. listi yfir fjölda greina
sem birtar höfðu verið í sérfræðiritum eftir hann.
Á fundinum var tillaga um að gera Charles
Poser að heiðursfélaga rædd og kom þá einnig
fram að nauðsynlegt yrði „að setja upp einhvers
konar vinnureglu um hvernig afgreiða ætti svona
mál".25 Charles Poser varð fyrsti heiðursfélagi
Taugalæknafélags íslands árið 1989.5
Reglur við kjör heiðursfélaga Taugalæknafélags
Islands litu dagsins ljós 29. apríl 1991 og hljóða
svo:
1. Tilnefndur heiðursfélagi hafi haft áhrif á þróun
íslenskra taugalækninga.
2. Umsókn sé lögð fram af einum eða fleiri
meðlimum félagsins og tilkynnt í fundarboði,
með 2ja vikna fyrirvara.
3. Fyrir liggi lífshlaupsskrá og yfirlit yfir helstu
greinar tilnefnds heiðursfélaga.
4. Kjör fer fram á löglegum aðalfundi félagsins
og þarf 2/3 hluta greiddra atkvæða til að
heiðursfélagi nái kjöri. Frávik má leyfa ef gild
rök liggja til.25
Tveir aðrir taugalæknar hafa verið kjörnir
heiðursfélagar í Taugalæknafélagi íslands. í apríl
1998 barst stjórn félagsins tillaga frá Finnboga
Jakobssyni taugalækni um að gera sérstakan
íslandsvin, Lennart Grimby, að heiðursfélaga
í Taugalæknafélagi Islands en hann hafði m.a.
unnið að mikilvægum grunnrannsóknum á
sviði taugalífeðlisfræði. Á aðalfundi í félaginu
27. apríl 1998 var samþykkt að gera Lennart
Grimby að heiðursfélaga vegna framlags hans
til sérmenntunar íslenskra taugalækna. Lennart
Grimby er fæddur árið 1933. Hann hóf að starfa
við sérgrein sína, taugalækningar, á Serafimer
sjúkrahúsinu, sem síðar varð Karolinska Sjukhuset
í Stokkhólmi. Árið 1968 varð hann yfirlæknir á
spítalanum en lét af störfum 1998 sökum aldurs.
Hann er sá yfirlæknir í Svíþjóð sem hefur haft
flesta íslenska lækna í sémámi í taugalækningum
um langt árabil og „þannig ótvírætt haft mikla
þýðingu fyrir menntun íslenskra taugalækna".25
Lennart Grimby var samstarfsmaður Ásgeirs B.
Ellertssonar taugalæknis þegar sá síðarnefndi
var við sérnám á Karolinska Sjukhuset og
LÆKNAblaðið 2010/96 Fylgirit 64 43