Læknablaðið : fylgirit - 01.06.2010, Page 96

Læknablaðið : fylgirit - 01.06.2010, Page 96
Boston City Hospital 1909. Fremst sést Harrison Avenue, en aftan viö spítalann er Albany Street. Til liægri er Massachusetts Avenue, en til vinstri er E. Concord Avenue. meðferðar þunglyndissjúkling, sem af einhverjum ástæðum varð mun betri. Sjúklingurinn var vinur Abraham Flexners (1866-1959), sem sá um styrkveitingar Rockefellerstofnunarinnar.101 Skoðun Flexners var sú, að háskólakennarar í læknisfræði ættu að hafa aðstöðu til að helga sig klínískri kennslu og rannsóknum. Hann fékk mikið álit á Cobb eftir lækningu vinar síns, og þegar hann fékk fregnir af hugmyndum um nýja prófessorsstöðu á Harvard, sem var í hans anda, var ákveðið árið 1925, að Rockefellerstofnunin fjármagnaði stöðuna. Deildin þurfti nýtt húsnæði, og var ákveðið að byggja það við BCH. Árið 1930 flutti taugadeildin inn í nýja húsnæðið með Cobb sem yfirmann. Cobb var ekki aðgerðarlaus þau fimm ár, sem það tók að reisa bygginguna. Árið 1923 hafði hann farið til Evrópu á Rockefellerstyrk og verið þar næstu tvö árin. Hann var sex mánuði í London á Queen Square hjá Henry Head, sex mánuði í París hjá Jacques Jean Lhermitte (1877-1959) á Salpétriére og sex mánuði í Berlín hjá Oskar og Cécile Vogt á Neurobiologisches Universitats- Laboratorium. Eftir heimkomuna hélt hann áfram að byggja upp rannsóknarstöð í taugameinafræði við Harvard. Áhersla var lögð á rannsóknir á flogaveiki. Dýramódel voru notuð af mikilli hugkvæmni. Byrjað var að nota heilarit. Þarna störfuðu með Cobb margir brautryðjendur eins og taugalæknarnir William Gordon Lennox (1884-1960) og Frederic Andrews Gibbs (1903- 1992) og taugalífeðlisfræðingurinn Hallowell Davis (1896-1992), sem lýstu fyrstir oddum og hægum bylgjum í heilariti sjúklinga með petit mal flogaveiki.102 Albert Melvin Grass (1910- 1992) var rafmagnsverkfræðingur deildarinnar. Hann smíðaði heilaritstæki fyrir deildina, en stofnaði síðan Grass Instrument Company og hóf framleiðslu heilaritstækja í stórum stíl.67 H. Houston Merritt byrjaði í taugalæknisfræði á BCH 1928, og Tracy Jackson Putnam hóf þar störf sem taugalæknir og taugaskurðlæknir 1930. Sá samstarfsmaður, sem Cobb hafði mestar mætur á, var Harold G. Wolff, en hann er best þekktur fyrir rannsóknir á mígreni. Hann var tvö ár hjá Cobb í Boston, fór eftir það til Adolf Meyers í Baltimore. Hann var síðan eitt ár hjá Pavlov í Leníngrad og eitt ár hjá Otto Loewi (1873-1961) í Graz í Austurríki. Wolff varð prófessor á Cornell í New York og eftirmaður Foster Kennedys. Cobb fékk áhuga á sálkönnun og fór sjálfur í meðferð. Stam hafði hrjáð hann frá barnæsku, og það eina, sem hafði hjálpað honum verulega, var sálkönnunin. Árið 1934 yfirgaf hann BCH og fór yfir á MGH og stofnaði þar geðdeild. Við starfi yfirmanns á taugadeildinni á BCH tók Tracy Jackson Putnam, bróðursonur fyrsta prófessorsins í taugalækningum á MGH eins og áður segir. Putnam og H. Houston Merritt hófu samvinnu um að finna lyf við flogaveiki. Fram að þessu höfðu menn notað brómíð og barbitúröt, en aukaáhrifin voru mikil. Þeir framkölluðu flog hjá köttum með rafstuði og ákvörðuðu síðan breytingu á straumstyrkleika, sem þurfti til að framkalla flog, eftir að hafa gefið köttunum mismunandi lyf. Þeir komust að því, að phenytoin hækkaði krampaþröskuldinn margfalt miðað við önnur lyf og hafði tiltölulega lítil aukaáhrif. 96 LÆKNAblaðið 2010/96 Fylgirit 64
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.