Frjáls verslun - 01.01.2009, Page 6
6 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 9
RitstjóRnaRgRein
Frysta vísitöluna!
Frysting
vísitölunnar gæfi
atvinnulífinu
og heimilunum
skýlaust loforð um
að skrúfað hefði
verið fyrir frekari
hækkun skulda
vegna verðbólgu.
Frjáls verslun flytur í þessu tölublaði ítarleg rök
fyrir mikilvægi þess að frysta vísitöluna í öllum lánasamn-
ingum þegar í stað og aftengja þannig verðtrygginguna
tímabundið. Frysting vísitölunnar gæfi atvinnulífinu og
heimilunum skýlaust loforð um að skrúfað hefði verið
fyrir frekari hækkun skulda vegna verðbólgu. Sömuleiðis
er brýnt að leitað verði allra leiða hjá Alþjóðagjaldeyris-
sjóðnum um að hraða lækkun stýrivaxta á Íslandi. Best
væri að stýrivextirnir færu niður fyrir 1% eins og mikil-
virk aðildarríki sjóðsins, t.d. Bandaríkin og Bretland, hafa
gert. Þetta er ekki prentvilla. Það stendur hér: 1%. Þessar
aðgerðir gæfu heimilum og atvinnulífi von. Raunar hefði
átt að frysta vísitöluna í öllum innlána- og útlánasamn-
ingum daginn eftir bankahrunið, en þann dag lagði Frjáls
verslun til í tíu ráðum til endurreisnar atvinnulífsins
að verðtrygging yrði aftengd. Undirritaður
hefur síðan hamrað á því að það yrði gert
með því að frysta vísitöluna þannig að ekki
þyrfti að spretta upp öllum samningum.
viðkvæði þeirra sem ekki vilja
afnema verðtryggingu er að verðbólgan sé
meinið en ekki verðtryggingin – og að verð-
tryggingin sé fylgifiskur ónýtrar krónu og
endurspegli lítið traust íslenskra sparifjár-
eigenda á íslensku atvinnulífi; ella fari þeir
út með fé sitt. Þess vegna sé málið að koma
verðbólgunni niður og skipta um gjald-
miðil. En þetta er ekki alveg svona auðvelt.
Verðtryggingin er vandi sem hækkar skuldir
heimila, fyrirtækja og ríkissjóðs á sama tíma
og atvinnulífið er í rúst eftir mestu kreppu
sem lýðveldið hefur lent í. Verðtryggingin
og okurvextir koma í veg fyrir nýfjárfestingar, ný störf
og ráðningar. Það er súrrealískt efnahagslíf sem gengur í
gegnum verstu kreppu vestræns ríkis en hefur á sama tíma
hæstu vexti og heftandi verðtryggingu.
Frysting vísitölunnar er hvorki fölsun
né blekking. Vísitala neysluverðs, sem er notuð í verð-
tryggðum lánasamningum, verður áfram reiknuð út – en
hún verður fryst í inn- og útlánasamningum. Í þeim er
verðbólgan hjöðnuð, komin í núll prósent, og hægt að
reiða sig á það.
en skiptir það einhverju máli núna að frysta
vísitöluna og aftengja verðtrygginguna þegar verðbólgan
er að hjaðna hratt og verður að öllum líkindum mjög lítil
á næsta ári? Já, það skiptir máli: Sprengjan er virk. Þegar
gjaldeyrishöftin verða afnumin, en sumir spá því að það
verði síðar á þessu ári, eru allar líkur á að krónan falli
með nýju verðbólguskoti. Auk þess er verðbólgan ekki
hjöðnuð. Frysting vísitölunnar er því mikilvæg forvörn
verði losað um höftin – og skýlaust loforð um að skuldir
hækki ekki vegna verðbólgu. Það veitir öryggistilfinningu
og von.
þeir sem eru andvígir því að frysta vísitöl-
una hafa sagt að eina raunhæfa leiðin til að losna við
verðtrygginguna og fylgikvilla hennar sé að skipta um
gjaldmiðil og koma verðbólgunni niður. En bíðum við;
það eru ekki eðlilegir tímar í hagkerfinu. Skyndihjálpin
gengur út á úrræði NÚNA, annars heitir hún ekki
skyndihjálp. Að skipta um gjaldmiðil er framtíðarmúsík.
Flest bendir til að ekki verði hægt að taka upp evru fyrr
en í fyrsta lagi eftir tíu ár.
þeir sem eru andvígir því að afnema verð-
trygginguna svara því ætíð til að þá taki við óverðtryggð
langtímalán með 20 til 30% vöxtum vegna verðbólg-
unnar. En það hefur auðvitað engan tilgang að frysta
vísitöluna sem björgunaraðgerð til að draga úr fjármagns-
kostnaði – ef vextir eru hækkaðir á móti sem verðtrygg-
ingunni nemur. Ég er að ræða um að halda verðtrygging-
unni í öllum langtímasamningum, gömlum sem nýjum,
en frysta vísitöluna í þeim tímabundið og stöðva frekari
hækkanir. Þannig er haldið í kosti jafngreiðslukerfis verð-
tryggðra lána og ekki þarf að spretta upp öllum gömlum
samningum. Ég er ekki að ræða um að bankar, Íbúðalána-
sjóður og lífeyrissjóðir felli niður uppsafnaðar verðbætur
og gefi þær til lántakenda. Ég er að tala um eitt penna-
strik; frysta vístitöluna.
þeir sem eru andvígir því að frysta vísitöl-
una og aftengja verðtrygginguna, segja gjarna að það sé
ekki hægt vegna þess skaða sem Íbúðalánasjóður og líf-
eyrissjóðirnir yrðu fyrir. En þá gleymist þetta: Atvinnu-
lífið er uppspretta alls lífeyris í landinu. Okurvextir
og verðtrygging veikja atvinnulífið og veikt atvinnulíf
merkir veikir lífeyrissjóðir. Þess vegna ættu lífeyrissjóðir
að fagna hugmyndum um frystingu vísitölunnar í öllum
lánasamningum og stórlækkun stýrivaxta. Það hjálpar
atvinnulífinu, skapar ný störf og eykur innstreymið í líf-
eyrissjóðina; styrkir þá.
íslendingar Féllu fyrstir á botninn og hafa
lent í harkalegastu kreppunni. Á sama tíma eru hér hæstu
vextirnir, heftandi verðtrygging og handónýtur gjald-
miðill. Frystum vísitöluna og lækkum stýrivexti. Það er
viðspyrnan af botninum.
jón g. Hauksson