Frjáls verslun - 01.01.2009, Side 9
F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 9 9
stöðugur vöxtur í fyrirtækinu síðan það var
gert að einkahlutafélagi í eigu fjölskyldun-
nar“, segir Birgir. „Í dag er fyrirtækið með
fjöldi umboða og má nefna að helstu sölu-
vörur eru, auk þeirra sem áður er getið, stim-
pilklukkur og tímaskráningarkerfi, skjalatæ-
tarar, innbindivélar, plöstunarvélar, umsla-
gaísetningarvélar, pappírsbrotvélar og að
auki hefur fyrirtækið undanfarin tuttugu ár
verið leiðandi í innflutningi á bankakortum,
bæði Visa og MC merktum en einn stærsti
hluti rekstrar fyrirtækisins snýr að útgáfu þes-
sara korta. Varðandi stimpilklukkurnar þá
hafa verið miklar miklar breytingar á þeim
í áranna rás. Við erum enn að selja fullkom-
nar útfærslur á gömlu klassísku stimpilkluk-
kunum þar sem spjald er notað en einnig
nýjar gerðir eins og stimpilklukkur þar sem
fingrafar stimplar viðkomandi inn. Sama
má segja um margar aðrar vörur okkar sem
við höfum verið lengi með. Tækniframfarir
hafa gert þær aðgengilegri og við höfum alltaf
verið fljótir að tileinka okkur nýja tækni og
þar farið í fótspor stofnandans.“
Góðir stækkunarmöguleikar
Meðal þess sem Otto B. Arnar ehf. sérhæfir
sig í eru ýmsar lausnir varðandi fjölföldun og
frágang ritaðs efnis, þess sem ekki er unnið
í prentsmiðjum eða fjölritunarstofum. Má
nefna fjölritara, röðunarvélar, innbindivélar
fyrir vírgorma og plastgorma og plöstunar-
vélar, bæði fyrir rúlluplast og plöst í afmörk-
uðum stærðum frá bankakortastærð upp í A2
stærð, og að sjálfsögðu mikið úrval af rekstr-
arvörum. En einnig býður fyrirtækið iðn-
aðarvélar fyrir sömu vinnslu ætlaðar prent-
smiðjum og öðrum fjölföldunarfyrirtækjum:
„Við þjónum að mestu fyrirtækjum, bæði
einka og opinberum, en einstaklingar koma
einnig til okkar enda erum við með ýmsar
vörur sem henta jafn vel fyrirtækjum og ein-
staklingum, m.a. plöstunarvélar og gorma-
bindivélar, sem eru ekki síður notaðar af ein-
staklingum. Fyrst og fremst þjónustum við
þó fyrirtæki og bjóðum vörur fyrir rekstur
þeirra. Á síðustu árum höfum við bætt við
okkur vöruflokkum og enn erum við að viða
að okkur umboðum með vörum sem við
sjáum tækifæri í. Segja má að ástandið í þjóð-
félaginu, eins og það er í dag, hafi aðeins tafið
fyrir okkur, en fyrirtækið er í góðum rekstri
og hefur stækkunarmöguleika sem við ætlum
að nýta okkur.“
Otto B. Arnar ehf. sérhæfir sig í
innflutningi á ýmiss konar skrifstofuvélum
og sérhæfðum vélbúnaði fyrir fyrirtæki,
banka, skóla og aðrar stofnanir.
Einnig prent- og bókbandsbúnaði fyrir
prentsmiðjur og fjölritunarfyrirtæki.
Þrír ættliðir. Birgir Arnar framkvæmdastjóri
er sonur stofnandans Ottos B. Arnar sem
blasir við á málverkinu. Birgir er hér með
sonum sínum, Snorra B. Arnar til vinstri og
Otto B. Arnar.
Skipholti 17 105 Reykjavík
Sími: 5884699 – Fax: 5884696
Netfang: oba@oba.is Veffang: www.oba.is
Haldið var upp á 90 ára afmæli Ottos B.
Arnar þann 5. febrúar sl.