Frjáls verslun - 01.01.2009, Blaðsíða 18
18 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 9
Bónus er tuttugu ára um þessar mundir og þegar könnun var
borin undir Jóhannes Jónsson, kaupmann í Bónus, sagði hann að
hann væri ánægður og þakklátur fyrir stuðninginn í könnuninni þótt
honum þætti miður að fylgið hefði dalað en bætti því við að nýlið-
inn janúar hefði verið metmánaður í fjölda viðskiptavina í Bónus frá
upphafi.
„Fólk sýnir okkur tryggð og kann að meta þjónustuna og verðið
hjá okkur þegar keppnin hefur aldrei verið eins hörð og núna í efna-
hagslægðinn. Fyrir það er ég þakklátur,“ segir Jóhannes.
Össur er með 10% fylgi, Krónan með 6% og Marel með ívið
minna, eða með 5,7%. Þessi fyrirtæki eru í 2.-4. sæti. Bankarnir þrír
hafa oftast verið í fimm efstu sætunum en á því varð breyting í þetta
sinn. Landsbankinn var í 2. sæti í fyrra en aðeins einn nefndi bank-
ann í þetta sinn þegar spurt var um jákvætt viðhorf.
Næstu fyrirtæki eru Icelandair, sem oftast hefur verið eitt af tíu
vinsælustu fyrirtækjunum. Þrjú verslunarfyrirtæki koma næst: Fjarð-
arkaup, Nettó og BYKO. Verslanir eru fyrirtæki sem margir hafa sam-
skipti við nær daglega. Athygli vekur hve langt niður listann Hagkaup
fara að þessu sinni.
Síminn, Nóatún og Húsasmiðjan eru öll nefnd af um 2% svar-
enda. Athygli vekur að Landspítalinn kemur þar fast á eftir en hann
hefur yfirleitt ekki verið svo ofarlega. Næst koma Nýherji, sem færist
einnig upp listann, og Samkaup.
Fyrirtæki sem áður fyrr voru meðal vinsælustu fyrirtækja landsins
eru mun neðar á listanum að þessu sinni. Efstur bankanna er Kaup-
þing banki, heldur ofar en sparisjóðirnir og Glitnir. Eimskip, áður
óskabarn þjóðarinnar, kemst ekki á blað í þetta sinn. Íslenska erfða-
greiningu er með liðlega 1% en en hún vann titilinn þrjú ár í röð á
árunum 2000 til 2002.
Bankarnir eru efstir á listanum um óvinsæl fyrirtæki með 16,5%.
Næst koma Bónus, en 12% nefna það sem fyrirtæki sem þeir hafi
neikvæð viðhorf til, og Baugur um 9% nefna hann. Þess skal getið að
könnuninni var lokið þegar fréttirnar komu um gjaldþrot Baugs. Ein-
stakir bankar eru svo í 4. til 6. sæti og Eimskipafélagið í því 7.
Það er greinilegt að könnunin endurspeglar mjög neikvætt viðhorf
almennings til þeirra fyrirtækja sem hafa átt í rekstrarerfiðleikum, ekki
síst þeirra hafa tengst útrásinni. Gjaldþrot bankanna og hrun krón-
unnar hafa auðvitað valdið gremju í garð þessara fyrirfyrirtækja.
Bar átta Bón uss og Krón unn ar
Hún er þekkt sam keppn in og bar átt-
an á milli Bón uss og Krón unn ar í verð-
könn un um og þar er oft mjótt á mun-
un um. Í könn un Frjálsr ar versl un ar
munar rúmum helmingi á vinsældum
þessara helstu keppinauta á lágvöru-
markaði.
Bón us krón an
13,2% 6,0%
33,3% 3,3%
1989 Sól Hagkaup
1990 Hagkaup Flugleiðir
1991 Flugleiðir Hagkaup
1992 Hagkaup Bónus
1993 Sól Flugleiðir
1994 Hagkaup Bónus
1995 Bónus Hagkaup
1996 Flugleiðir Bónus
1997 Bónus Hagkaup
1998 Bónus Hagkaup
1999 Bónus Eimskip
2000 Ísl. erfðagr. Íslandsbanki
2001 Ísl. erfðagr. Bónus
2002 Ísl. erfðagr. Bónus
2003 Bónus Hagkaup
2004 Bónus Íslandsbanki
2005 Bónus Icelandair
2006 Bónus Landsbankinn
2007 Bónus Landsbankinn
2008 Bónus Landsbankinn
2009 Bónus Össur
Vinsælust Frá upphaFi
1. sæti 2. sæti
Vinsælustu fyrirtækin
2009:
2008: