Frjáls verslun - 01.01.2009, Síða 28
hliða upptaka evru gangi ekki vegna þess að þar með kæmi enginn stuðn-
ingur, ekkert bakland, frá evrópska seðlabankanum.
Þess vegna var verðtryggingin sett á
Verðtryggingin var sett á með Ólafslögum árið 1979 til að auka
sparnað þjóðarinnar sem þá var allt að því horfinn. Lífeyrissjóðir
voru þá flestir nánast gjaldþrota eftir að útlán þeirra höfðu meira og
minna gufað upp í verðbólgu en lántakendur hirtu verðbólgugróð-
ann og var hann að mestu bundinn í húseignum fólks og fasteignum
og tækjum fyrirtækja. Íbúðarhúsin urðu lífeyrir fólks. Verðbólgu-
gróði lántakenda á árum áður þótti mjög ósanngjarn. Fé var flutt
frá sparifjáreigendum til skuldara. Á endanum varð minna um þjóð-
arsparnað og mikil eyðsla tók við. Með verðtryggingunni hefur líf-
eyrissjóðum verið bjargað og gott betur; þeir standa flestir mjög vel.
Dæmið hefur núna snúist við. Lántakendur eru í verðbólgunni illa
leiknir eftir hrikalegar hækkanir vegna verðtryggingarinnar. Nú þarf
að skera þá úr snörunni eða öllu heldur að forða því að fleiri verði
ekki gjaldþrota vegna hækkandi skulda á meðan eignir hrynja í verði
– og lánastofnanir fara á taugum yfir skuldastöðunni. Stjórnvöld
hafa komið sparifjáreigendum til aðstoðar í bankakrísunni með því
að tryggja allar innstæður, hversu háar sem þær eru. Jafnframt hafa
stjórnvöld mokað 200 milljörðum í peningamarkaðsreikninga sem
þeim bar engin skylda til að setja krónu í. Nú er tími dekurs við
sparifjáreigendur að baki og kominn tími til að létta á skuldurum og
lántakendum tímabundið svo hjól atvinnulífsins geti farið að snúast
almennilega. Nú er mikilvægt að þjóðin eyði í stað þess að spara. Það
heldur fyrirtækjum gangandi, það heldur hringrásinni á milli fyr-
irtækja, heimila og bankakerfisins gangandi.
hverjir eiga lífeyrissjóðina?
Það vekur athygli mína hvað margir stjórnmálamenn eru á móti
því að festa vísitöluna og koma þannig í veg fyrir að óvæntur verð-
bólgukúfur setti þúsundir heimila og fyrirtækja á höfuðið. Svörin eru
yfirleitt mjög stuttaraleg; að þetta sé ekki hægt vegna þess skaða sem
Íbúðalánasjóður og lífeyrissjóðirnir yrðu fyrir.
Með því að frysta vísitöluna er ekki verið að gefa lántakendum
verðbæturnar sem þegar eru fallnar á lánin. Bíðið við; hvað ætlar
Íbúðalánasjóður að gera þegar verðbólgan verður komin niður í núll-
prósent og engar verðbætur koma til sögunnar? Varla fer Íbúðalána-
sjóður á höfuðið við það.
Forsíðugrein
28 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 9
Andmælendur segja það glapræði við „núverandi
aðstæður“ að afnema verðtryggingu með því að frysta vísitöluna
því samningum sé þá rift og við taki óverðtryggð langtímalán sem
beri 20 til 30% vexti vegna verðbólgunnar.
svar: Það hefur auðvitað engan tilgang að frysta vísitöluna og
aftengja þannig verðtryggingu til að draga úr fjármagnskostn-
aði ef vextir eru hækkaðir á móti sem verðtryggingunni nemur.
Frysting vísitölunnar merkir einmitt að ekki þarf að spretta upp
lánasamningum. Verðtryggingin er áfram í samningunum en
frekari hækkun hennar yrði stöðvuð með því að frysta vísitöluna
næstu þrjú árin.
Andmælendur segja að aðeins yrði hægt að banna
verðtryggingu á nýjum samningum. Ekki væri hægt að afnema
hana í gömlum samningum og láta hana virka afurvirkt því það
myndi fela í sér eignaupptöku sem samrýmdist ekki stjórnar-
skránni.
svar: Frysting vísitölunnar merkir að gamlir samningar og nýir
eru áfram með verðtryggingu vegna kosta jafngreiðslukerfisins.
En þegar vísitalan er fryst kemur ekki til kasta verðtrygging-
arinnar þótt verðbólgan fari úr böndum m.a. vegna gengisfalls
krónunnar. Var það brot á stjórnarskránni á árum áður þegar
sparifjáreigendur lifðu við neikvæða ávöxtun áður en verðtrygg-
ing kom til sögunnar?
Andmælendur segja að verðtryggingin sé óhjá-
kvæmilegur fylgifiskur krónunnar og óhjákvæmilegur kostnaður
við að hafa hana. lausnin sé ekki að afnema verðtryggingu
heldur að taka upp nýjan gjaldmiðil.
svar: Nýr gjaldmiðill er framtíðarmúsík og á auðvitað ekkert
skylt við skyndihjálpina sem þarf að veita til að blása lífi í
„núverandi aðstæður“, þ.e. NÚNA Bíðið við; ætla menn að bíða
í 10 ár svo hægt sé að skipta um gjaldmiðil?
Andmælendur segja að frysting vísitölunnar sé
þjófnaður frá eldra fólki og lífeyrissjóðunum sem fari á mis við
umsamdar verðbætur í verðbólgu. Verðtrygging sé samningsatriði
og enginn hafi á undanförnum árum verið neyddur til að taka
verðtryggt lán.
svar: Gott og vel. En atvinnulífið er uppspretta lífeyrissparnaðar
í landinu og verðtrygging og okurvextir eru að setja það á höf-
uðið. Veikt atvinnulíf merkir veika lífeyrissjóði. Sterkt atvinnu-
líf merkir sterka lífeyrissjóði. Hér bítur verðtryggingin í skottið
á sér. Við blasir mjög veikt atvinnulíf vegna verðtryggingar og
okurvaxta þar sem þúsundir fyrirtækja eru að fara á höfuðið og
tugþúsundir launþega eru að missa vinnuna. Þeir borga ekki í
lífeyrissjóði á meðan. Kannski andmælendur kalli skerðingu líf-
eyrisréttinda, sem er óhjákvæmileg í kjölfarið, „þjófnað“ frá líf-
eyrissjóðunum.
rAddir GEGN AFNÁMi VErÐTrYGGiNGAr