Frjáls verslun - 01.01.2009, Qupperneq 31
Forsíðugrein
6. atVinnuleYsi
Vandinn: Atvinnuleysi er að stóraukast á Íslandi og á vor-
mánuðum verða um 20 þúsund manns atvinnulausir, eða um
10% af vinnuaflinu. Engin forsenda er fyrir launahækkanir við
þessar forsendur.
Hvað er til ráða? Skapa ný störf. Til að hleypa nýju blóði
í atvinnulífið þarf að endurreisa bankakerfið hið snarasta og
byrja að lána fyrirtækum. Nýsköpun getur þá hafist. Laun
þurfa að lækka meira en orðið er, sveigjanleiki vinnuafls þarf að
verða meiri og fjölga þarf hlutastörfum í fyrirtækjum.
Framtíðin: Atvinnuleysi verður áfram mikið á næstu
tveimur árum. En ef hægt er stöðva þróunina þá er hægt að
fikra sig upp af botninum og horfa á björtu hliðarnar; 10%
atvinnuleysi merkir 90% atvinna. Hljómar öðruvísi, ekki satt?
7. rÍkisVæÐinGin
Vandinn: Stór hluti fyrirtækja hefur tapað eiginfé sínu eftir
að kreppan skall á. Margir stórir og fjölmennir vinnustaðir eiga
í vök að verjast og lenda í eigu ríkisbankanna innan skamms.
Hvað er til ráða? Aukin ríkisvæðing í rekstri fyrirtækja er
afleit leið – en hún er líklegast óhjákvæmileg við þær kring-
umstæður sem eru núna þegar markmiðið er að halda uppi
atvinnu og láta hjól atvinnulífsins snúast áfram. Stjórnvöld
hafa gefið út að bankarnir breyti skuldum í hlutafé þar sem
eitthvert vit er í rekstrinum.
Framtíðin: Það verður ekki auðvelt fyrir ríkið að selja bank-
ana og stórfyrirtækin sem það eignast á næstunni. Hverjir eiga
að kaupa? En ríkið verður að selja þessi fyrirtæki svo jafnræðis sé
gætt í viðskiptalífinu – nú og svo til að ríkið geti greitt af lánum
sínum vegna endurreisnar bankakerfisins og viðskiptahallans.
8. lÍFeYrissJóÐirnir
Vandinn: Lífeyrissjóðirnir eiga eftir að afskrifa stórfé og
skerða lífeyri á næstu tveimur til þremur árum þegar þeir finna
fyrir töpuðum útlánum til heimila og fyrirtækja og minna inn-
streymis fjár vegna fólksflótta frá landinu, fjöldagjaldþrota fyr-
irtækja, stóraukins atvinnuleysis og launalækkunar þeirra sem
hafa vinnu.
Hvað er til ráða? Atvinnulífið er undirstaða lífeyrissjóð-
anna og uppspretta alls lífeyris í landinu. Sterkt atvinnulíf táknar
sterka lífeyrissjóði. Veikt atvinnulíf merkir veika lífeyrissjóði. Þess
vegna ættu lífeyrissjóðir að fagna hugmyndum um frystingu vísi-
tölunnar í öllum lánasamningum og stórlækkun stýrivaxta; Það
eru kraftarnir sem hjálpa atvinnulífinu við að rétta úr kútnum og
skapa ný störf. Sem aftur eykur innstreymið inn í lífeyrissjóðina
og styrkir þá.
Framtíðin: Lífeyrissjóðirnir eru sterkt fjárhagslegt afl sem
mikið mun mæða á í kreppu næstu tveggja til þriggja ára. En
þeir verða að slaka á ávöxtunarkröfu sinni og verðtryggingunni –
ella fá þeir það bara í bakið síðar og það verður harður skellur.
9. alÞJóÐaGJaldeYrissJóÐurinn
Vandinn: 2ja milljarða dollara lánið sem Alþjóðagjaldeyr-
issjóðurinn lánaði okkur með semingi heldur þjóðinni í her-
kví. Svo ströng eru skilyrðin sem fylgja láninu; sérstaklega hvað
varðar hina háu stýrivexti og auknar skatttekjur (sem eflaust
mun verða raunin) á móti auknum ríkisútgjöldum
Hvað er til ráða? Lán Alþjóðagjaldeyrissjóðsins var gæða-
stimpill og fór í að styrkja gjaldeyrismarkaðinn; ekki í upp-
byggingu bankanna eða til að mæta halla á fjárlögum. Lánið
var forsenda þess að önnur lönd vildu lána okkur. Okkur var
stillt upp við vegg; m.a. vegna Icesave. En sjóðurinn verður
að slaka á ströngum skilyrðum varðandi okurvexti á kreppu-
tímum. Hvers vegna að hafa okurvexti á Íslandi þegar helstu
ráðandi þjóðir innan Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, t.d. Bandaríkja-
menn og Bretar, eru með núll-prósent stýrivexti?
Framtíðin: Samkomulagið við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn
felur m.a. í sér áætlun um endurreisn bankakerfisins (AGS-
lánið fór ekki í bankana), gera krónuna aftur trúverðuga og
veita skuldsettum ríkissjóði aðhald með því að taka fjármál rík-
issjóðs nánast af stjórnmálamönnunum. Framtíðin? Hún sýnist
... nokkur ár aftur í tímann.
10. GJaldeYrishÖFtin
Vandinn: Gjaldeyrishöftin eru erfið fyrir viðskiptalífið
og flestir vilja þau burtu. En við erum kefluð; í spennitreyju.
Vandinn er að traust á íslenskt efnhagslíf er svo lítið að sparifé
Íslendinga og útlendinga myndi streyma hratt úr landinu yrðu
fjármagnsflutningar gefnir frjálsir og krónan hríðfalla með til-
heyrandi óðaverðbólgu.
Hvað er til ráða? Frjáls gjaldeyrisviðskipti eru forsenda
framfara. Það verður að koma frelsinu á sem fyrst. En þjóðin
er upp við vegg. Ekki verður séð hvernig hægt verði að byggja
upp nægan gjaldeyrisforða með viðskiptaafgangi við útlönd
nema grípa áfram til hafta eða erlendra lána (og þau er víst
ekki auðvelt að fá).
Framtíðin: Þetta er skelfilegur vítahringur; höftin verða
líklegast áfram. Þjóðina sárvantar erlent fjármagn til að byggja
upp atvinnulífið með okkur og til þess þarf frjálsa fjármagns-
flutninga. Enginn erlendur fjárfestir kemur til okkar á meðan
gjaldeyrishöftin eru og allir flýja í burtu um leið og losað
verður um þau. En ef vísitalan yrði fryst í öllum lánasamn-
ingum og verðtryggingin aftengd færu heimilin og fyrirtæki
síður í gjaldþrot vegna óðaverðbólgu og skuldahækkana í kjöl-
far afnáms haftanna. Fyrirtæki og heimili með erlendar skuldir
fengju samt náðarhöggið.
... frystum vísitöluna
F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 9 31