Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2009, Page 60

Frjáls verslun - 01.01.2009, Page 60
60 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 9 Einn af vinsælustu veitingastöðum í hjarta miðborgarinnar er Jómfrúin við Lækjargötu. Jómfrúin hefur unnið sér fastan sess í borgarlífinu á þeim þrettán árum sem liðin eru frá stofnun staðarins og eiga margir leið um miðborgina með það efst í huga að koma við á Jómfrúnni. Jómfrúin hefur þá sérstöðu að vera smurbrauðsveitingahús og er boðið upp á danska smurbrauðslist eins og hún gerist best. Auk þess er boðið upp á heita rétti í hádeginu en Jómfrúin er mjög vinsæll hádegisverðarstaður. Það eru þrettán ár síðan Jakob Jakobsson stofnaði Jómfrúna eftir að hafa lokið námi frá hinu heimsfræga veitingahúsi Idu Davidsen, arf- taka smurbrauðsveitingahúss Oscars Davidsen í Kaupmannahöfn. Var hann fyrsti karlmaðurinn sem útskrifaðist sem „smørrebrødsjomfru“. Eftir námið var Jakob eitt ár í Brasillíu þar sem hann starfaði á skandi- navískum stað í Sao Paulo. „Brasilíudvölin var nokkurskonar millibil- sástand hjá mér þar sem alltaf var ætlunin að setja á stofn skandinaví- skan matsölustað hér heima. Um leið og ég kom heim var farið að huga að stofnun Jómfrúarinnar, sem var opnuð í janúar 1996.“ Vinsæll í hádeginu Jómfrúin er norrænt veitingahús en smurbrauðið gerir það fyrst og fremst danskt. Smurbrauðið er stærsti liðurinn í rekstrinum en hádegisréttirnir geta alveg eins verið íslenskir eins og danskir. „Þegar við fórum af stað með Jómfrúna var búið að þróa hugmyndina vel og hefur ekkert verið breytt út af henni allan þann tíma sem staðurinn hefur verið rekinn. Við höfum hvergi vikið frá upphaflegri hugmynd um hvað ætti að vera í boði og smurbrauðsmatseðill, sem sérlega var vandað til, er sá sami enn þann dag í dag. Þegar við opnuðum settum við markmiðið á fólk úr fjármálum, stjórnmálum, og listum og við höfum í gegnum tíðina fengið mikinn fjölda af gestum úr þessum geira atvinnulífsins. Staðurinn sjálfur er þó ekkert bundinn við atvinnulífið eitt og sér eins og mjög breiður hópur fastagesta vitnar um.“ Jómfrúin vakti strax hrifningu og hefur reksturinn gengið vel. Fasta- gestir eru margir og þá ekki síður af landsbyggðinni og í hádeginu er þar yfirleitt mjög skemmtileg blanda af fólki úr atvinnulífinu. „Við vorum mjög fljótir að ná okkur á strik og hafa fjölmargir haldið tryggð við staðinn og þá ekki síst fólk utan af landi. Einn viðskiptavinur okkar sem býr þar og kemur minnst fjórum sinnum til Reykjavíkur á ári heimsækir okkur í hvert sinn og svo er um fleiri.“ Vinsælt að panta fyrir fundi og veislur Hluti af starfsemi Jómfrúarinnar er veisluþjónustan. „Við fórum öðruvísi leið í að auglýsa veisluþjónustuna, nýttum okkur sambönd og þegar umræðan fór af stað um veisluþjónustu okkar var ekki að spyrja að því að fljótt varð mikil aukning í þessari starfsemi. Það JóMFRúiN Dönsk smurbrauðs- list fyrir fundi og ráðstefnur
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.