Frjáls verslun - 01.01.2009, Blaðsíða 60
60 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 9
Einn af vinsælustu veitingastöðum í hjarta miðborgarinnar er Jómfrúin við Lækjargötu. Jómfrúin hefur unnið sér fastan sess í borgarlífinu á þeim þrettán árum sem liðin eru frá
stofnun staðarins og eiga margir leið um miðborgina með það efst í
huga að koma við á Jómfrúnni.
Jómfrúin hefur þá sérstöðu að vera smurbrauðsveitingahús og er
boðið upp á danska smurbrauðslist eins og hún gerist best. Auk þess
er boðið upp á heita rétti í hádeginu en Jómfrúin er mjög vinsæll
hádegisverðarstaður.
Það eru þrettán ár síðan Jakob Jakobsson stofnaði Jómfrúna eftir að
hafa lokið námi frá hinu heimsfræga veitingahúsi Idu Davidsen, arf-
taka smurbrauðsveitingahúss Oscars Davidsen í Kaupmannahöfn. Var
hann fyrsti karlmaðurinn sem útskrifaðist sem „smørrebrødsjomfru“.
Eftir námið var Jakob eitt ár í Brasillíu þar sem hann starfaði á skandi-
navískum stað í Sao Paulo. „Brasilíudvölin var nokkurskonar millibil-
sástand hjá mér þar sem alltaf var ætlunin að setja á stofn skandinaví-
skan matsölustað hér heima. Um leið og ég kom heim var farið að huga
að stofnun Jómfrúarinnar, sem var opnuð í janúar 1996.“
Vinsæll í hádeginu
Jómfrúin er norrænt veitingahús en smurbrauðið gerir það fyrst
og fremst danskt. Smurbrauðið er stærsti liðurinn í rekstrinum en
hádegisréttirnir geta alveg eins verið íslenskir eins og danskir. „Þegar
við fórum af stað með Jómfrúna var búið að þróa hugmyndina
vel og hefur ekkert verið breytt út af henni allan þann tíma sem
staðurinn hefur verið rekinn. Við höfum hvergi vikið frá upphaflegri
hugmynd um hvað ætti að vera í boði og smurbrauðsmatseðill,
sem sérlega var vandað til, er sá sami enn þann dag í dag. Þegar við
opnuðum settum við markmiðið á fólk úr fjármálum, stjórnmálum,
og listum og við höfum í gegnum tíðina fengið mikinn fjölda af
gestum úr þessum geira atvinnulífsins. Staðurinn sjálfur er þó ekkert
bundinn við atvinnulífið eitt og sér eins og mjög breiður hópur
fastagesta vitnar um.“
Jómfrúin vakti strax hrifningu og hefur reksturinn gengið vel. Fasta-
gestir eru margir og þá ekki síður af landsbyggðinni og í hádeginu er
þar yfirleitt mjög skemmtileg blanda af fólki úr atvinnulífinu. „Við
vorum mjög fljótir að ná okkur á strik og hafa fjölmargir haldið tryggð
við staðinn og þá ekki síst fólk utan af landi. Einn viðskiptavinur
okkar sem býr þar og kemur minnst fjórum sinnum til Reykjavíkur á
ári heimsækir okkur í hvert sinn og svo er um fleiri.“
Vinsælt að panta fyrir fundi og veislur
Hluti af starfsemi Jómfrúarinnar er veisluþjónustan. „Við fórum
öðruvísi leið í að auglýsa veisluþjónustuna, nýttum okkur sambönd
og þegar umræðan fór af stað um veisluþjónustu okkar var ekki að
spyrja að því að fljótt varð mikil aukning í þessari starfsemi. Það
JóMFRúiN
Dönsk smurbrauðs-
list fyrir fundi
og ráðstefnur