Frjáls verslun - 01.01.2009, Page 61
F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 9 61
hefur aldrei verið meira að gera hjá okkur á þessu sviði heldur en
nú.
Mest eru þetta fyrirtæki og stofnanir sem panta en einstaklingar
panta einnig fyrir ýmsar veislur og uppákomur. Við þjónum ekki
mjög stórum samkomum en öllum venjulegum fundum, stjórnar-
fundum, litlum ráðstefnum og uppákomum í fyrirtækjum þar sem
fjöldinn er þetta frá tíu upp í tuttugu manns. En þegar svo ber
undir getum við boðið veislur fyrir stærri mannfagnaði.“
Jómfrúin er dagstaður og er opinn frá kl. 11–18. Undantekning
er desember en þá er opið til 22 mörg kvöld: „Sá mánuður er gífur-
lega stór hjá okkur. Mikið er um fjölskyldur og vinahópa sem koma
í desember og hef ég heyrt fleiri en einn segja að jólastemningin sé
ekki almennilega komin fyrr en búið er að fara út að borða á Jóm-
frúnni. Löngu áður en desember rennur upp er upppantað á öllum
helstu álagstímum og get ég sagt til gamans að við fengum nýlega
borðpöntun fyrir 19. desember á þessu ári.“
Engin ástæða til að breyta því sem virkar
Að sögn Jakobs hefur það alltaf verið mottó staðarins að þegar
byrjað er á einhverju sem vel tekst til með þá er að halda því
áfram. Þannig er það með sumardjassinn: „Þó að alls ekki sé um
mikla tekjulind að ræða höldum við djassinum áfram enda þótti
okkur takast vel til í upphafi og djassinn auglýsir staðinn. Í dag er
sumardjassinn okkar fastur liður í bæjarlífinu á sumrin.“
Útlitslega séð hefur Jómfrúin verið eins í þrettán ár og Jakob
er ekkert að fara að breyta honum. „Þegar eitthvað virkar er engin
ástæða til að breyta. Við vorum mjög ánægðir með hvernig til tókst
í upphafi og það á einnig við um gesti okkar, framundan er að halda
áfram á sömu braut, Við getum alveg hugsað okkur að auka enn
meira við veisluþjónustuna en það kemur í ljós hvað verður. Ég lít
björtum augum til framtíðarinnar þótt á móti blási nú um stund í
þjóðfélaginu.“
við fórum öðruvísi leið
í að auglýsa veisluþjón-
ustuna, nýttum okkur
sambönd og þegar um-
ræðan fór af stað um
veisluþjónustu okkar var
ekki að spyrja að því að
fljótt varð mikil aukning
í þessari starfsemi.
Það hefur aldrei verið
meira að gera hjá okkur
á þessu sviði en nú.
Jómfrúin er vinsæll hádegisverðarstaður og er þá yfirleitt setið við
öll borð og málefni dagsins krufin til mergjar yfir góðum veitingum.
Jakob Jakobsson segir að á þeim þrettán árum sem hann og Guðmundur Guðjónsson eiginmaður
hans hefi rekið smurbrauðsveitingahúsið Jómfrúna hafi þeimm ekki fundist ástæða til að breyta
enda strax ánægðir með hvernig tókst til í upphafi.