Frjáls verslun - 01.01.2009, Page 74
74 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 9
Múlalundur hóf starfsemi sína 2. maí 1959 og verður
fyrirtækið því hálfrar aldar
gamalt í vor. Um var að ræða
fyrstu vinnustofuna fyrir öryrkja
og það var vilji allra að gera
Múlalund sem best úr garði svo
að hann næði tilgangi sínum.
„Markmiðið er ekki
endilega að reka fyrirtækið
með hagnað í huga,“
segir Helgi Kristófersson,
framkvæmdastjóri, „heldur til
að skapa sem flestum vinnu
sem ekki ganga heilir til skógar.
Hér komast færri að en vilja
og biðlistinn er því langur.
Mikil endurhæfing er fólgin
í að geta stundað vinnu við
sitt hæfi og þess eru mörg
dæmi að starfsmenn hafi náð
fullum bata og ráðið sig til
starfa á almennum markaði.
Múlalundur skilar þjóðinni því
miklum fjármunum þegar upp
er staðið. Það er gjarna horft
til þess hve mikið fé sé lagt í
slíka starfsemi en erfiðara að
meta hve miklu það skilar þótt
það megi sjá í mörgu öðru en
krónum og aurum.“
Fjölbreytt framleiðsla
í sífelldri þróun
„Framleiðsluvörur Múlalundar
eru afar fjölbreyttar. Að auki
flytur fyrirtækið inn ýmsar
vörur til skrifstofuhalds og oft
eru það hálfunnar vörur sem
henta vel til fullvinnslu í fram-
leiðslunni. Eglu-bréfabindin
fara trúlega víðast og eru hvað
þekktust. Meðal annarra fram-
leiðsluvara má nefna lausblaða-
bækur, dagatöl, myndaalbúm,
glærar kápur og hulstur, ráð-
stefnu- og fundamöppur og
þannig mætti áfram telja. Þar er
að finna margt það sem heim-
ili, fyrirtæki og stofnanir þurfa
á að halda til að flokka og halda
til haga pappírum og öðrum
gögnum. Múlalundur hefur
reynt að svara kröfum mark-
aðarins og aukin eftirspurn
hefur kallað á aukið vöruúrval.
Meðal þess sem mikil aukning
er á í dag eru sérprentaðar laus-
blaðamöppur úr pappa þar sem
viðskiptavinurinn getur valið
um fjögurra lita prentun og útlit
sem setur hugarfluginu engin
takmörk, t.d. landslagsmynd
eða mynd af einstökum vörum.
Það má þakka stærstan hluta
söluaukningar Múlalundar um
þessar mundir slíkum möppum
sem fyrirtæki panta fyrir ráð-
stefnur, til að markaðssetja
vörur eða ákveðna þjónustu.
Fyrir ráðstefnur eru framleidd
barmmerki í Múlalundi og oft
boðið upp á að raða nöfnum í
þau eftir óskum viðskiptavin-
arins. Þá er borðdagatal Múla-
lundar úr pappír með undirlagi
góður kostur fyrir þá sem vilja
hafa góða yfirsýn yfir verkefni
mánaðarins og það er hægt að
sérmerkja, ef vill. Síðast en ekki
síst má geta þess að Múlalundur
sendir viðskiptavinum sínum
pantaðar vörur þeim að kostn-
aðarlausu á öllu höfuðborg-
arsvæðinu.“
Veljum íslenskt
– líka ráðherrar ...
„Þegar íslensk vara er valin, eins
og frá Múlalundi, skilar það
sér margfalt til þjóðfélagsins.
Hagfræðilega séð rúlla þeir
peningar sem nýttir eru til
kaupa á vöru í Múlalundi
mörgum sinnum í gegnum
þjóðfélagið.
Nú um þessar mundir er
mikil áhersla lögð á að fólk
kaupi íslenskar vörur. Svo sjáum
við sjónvarpsviðtöl við ráð-
herra á skrifstofum þeirra og þá
reynast oft á tíðum ekki allar
möppur íslenskar sem ekkert er
múlAlunDur
Fjölbreytt framleiðsla í sífelldri þróun
Helgi Kristófersson, framkvæmdastjóri Múlalundar.