Frjáls verslun - 01.01.2009, Side 81
F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 9 81
VR hefur tekið höndum saman við nokkra stóra og reynda aðila og býður atvinnulausum félagsmönnum sínum fjölmarga valkosti í námi,
hreyfingu og ráðgjöf til að skapa þeim möguleika á að skipuleggja
daginn, vikuna eða jafnvel lengri tíma, allt eftir þörfum hvers og
eins, að sögn Jóhönnu E. Vilhelmsdóttur, verkefnastjóra félagsins. Á
annað þúsund manns eru á atvinnuleysisskrá hjá VR og afar brýnt
að koma til móts við þarfir þeirra í því erfiða efnahagsástandi sem
nú ríkir.
Hjá VR eru m.a. í boði ókeypis námskeið, fræðsla eða afþreying
í ýmsu formi, ókeypis orlofshús virka daga og líkamsrækt á góðum
kjörum. „Við erum með sérstaka hádegisfyrirlestra sem standa
öllum félagsmönnum opnir og eru þeir haldnir vikulega í febrúar og
mars. Einnig veitum við félagsmönnum kvöldráðgjöf alla þriðjudaga
í febrúar þar sem rætt er um kjara- og atvinnumál. Fólk fær aðstoð
við að semja ferilsskrá sem er nauðsynlegur undirbúningur undir
það að sækja um nýja vinnu. Þar er einnig veitt lögfræði- og
sálfræðiráðgjöf og fólki gefinn kostur á einstaklingsviðtölum,“ segir
Jóhanna.
Úr mörgu er að velja
Mikill fjöldi hefur að
undanförnu sótt námskeið
í Opna háskólanum í
Reykjavík, að sögn Jóhönnu,
og fólk jafnvel tekið 4-8
námskeið. Hjá Mími gefst
atvinnulausum félagsmönnum
VR kostur á að sækja ýmis námskeið, sum námskeið eru þeim
að kostnaðarlausu en önnur eru niðurgreidd allt að 75% úr
starfsmenntasjóði. Menn fá líka styrk til að stunda líkamsrækt og í
vetur hefur atvinnulausum verið boðið að nota orlofshús félagsins
virka daga sér að kostnaðarlausu.
Hlutverkasetrið, sem er til húsa á Laugavegi 26, Grettisgötu-
megin, hefur upp á margt skemmtilegt og uppbyggilegt að bjóða.
Til dæmis má læra á Photoshop, spreyta sig á leiklist, stunda hreyf-
ingu o.m.fl. Súpa og brauð eru í boði í hádeginu. Hægt er að ganga
inn í þetta starf hvenær sem er. Þá er farið í gönguferðir út frá setr-
inu fjórum sinnum í viku. Þeir sem koma í Hlutverkasetrið finna
fljótt að þar er afslappað andrúmsloft og ánægja ríkjandi.
Vilja reyna að virkja fólk frá fyrsta degi
Jóhanna segir hættu á að þunglyndi sæki á fólk sem hefur misst
vinnuna. VR vilji leggja sitt af mörkum til að aðstoða félagsmenn
sína við að finna verkefni við sitt hæfi og ekki síður félagsskap. „Við
viljum ná til einstaklinga um leið og þeir eru að detta út af vinnu-
markaði, reyna að virkja þá eins og hver dagur sé vinnudagur. VR
nær til alls höfuðborgarsvæðisins, Akraness, Vestmannaeyja, Húsa-
víkur og Egilsstaða og á þessum stöðum er m.a. boðið upp á líkams-
rækt og fleira,“ segir Jóhanna að lokum.
VR vill sýna fólki að
þegar einar dyr lokast
opnast aðrar og víða
leynast tækifæri.
Margt í boði fyrir
atvinnulausa félaga VR
vr
Jóhanna E. Vilhelmsdóttir, verkefnastjóri hjá VR.