Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2009, Qupperneq 83

Frjáls verslun - 01.01.2009, Qupperneq 83
F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 9 83 sótt ýmis námskeið. Það er svo mikilvægt að sá sem missir vinnuna haldi sér í þeim farvegi þar sem flest af því sem hann gerir sé einhvern veginn vottað. Þegar hann kemur í atvinnuviðtal er hann kannski spurður hvað hann hafi verið að gera undanfarna átta mánuði og þá getur hann afhent möppuna.“ Hafa yfirsýn Sigríður segir að mikilvægt sé fyrir atvinnulausa einstaklinga að halda reglulegum svefni og ganga til hvers dags sem vinnudagur væri. „Þá er mikilvægt að hafa yfirsýn yfir það í hvað maður ver tíma sínum,“ en það er einmitt það sem hugmyndafræðin gengur út á. „Þeim mun fleiri jákvæðar lífsvenjur og þeim mun betur sem viðkomandi tekst að halda hinum neikvæðu og slæmu lífsvenjum frá, þeim mun meiri möguleika á hann. Vissulega eru atvinnulausir án yfirmanns og vinnufélaga en þá er bara að hugsa þetta tímabundna ástand þannig að menn setji okkur og mentorinn í staðinn fyrir yfirmanninn og að félagarnir í „Nýttu kraftinn“ komi í stað vinnufélaga. Það sem er erfiðast í þessu er sorgin og höfnunin en það sem er næsterfiðast er að hafa ekki hlutverk. Þess vegna er um að gera að eiga við sorgina og búa sér til hlutverk.“ Tímabundið á varamannabekk Sigríður er í launalausu leyfi og hefur lært ýmislegt á undirbúningi og síðar tilrauna- ferlinu með „Nýttu kraftinn“. „Fyrst og fremst hef ég kynnst mörgum sem misst hafa vinnuna. Þetta er glæsilegur hópur sem heldur áfram sínum hetjudáðum og nú við erfiðar aðstæður. Upphaflega hug- myndin okkar var að standa sjálfar að nám- skeiðum, ýmist til sjálfsuppbyggingar eða til að efla almenna færni á vinnumarkaði. Það reyndist algjör óþarfi því stéttarfélögin og Vinnumálastofnun standa að frábærum námskeiðum og okkar eina hlutverk er að aðstoða námsráðgjafana við að mæla með þeim. Sjálfsprottin fyrirtæki og starfsemi af ýmsum toga hafa aukið framboðið og ég hvet alla til að máta sig við sem flest, upplifa starfsþjálfunina sem felst í sjálfboðastörfum, læra að stofna fyrirtæki, sækja námskeið til að víkka hugann, finna nýtt áhugamál eða læra eitthvað alveg nýtt frá grunni með það í huga að breyta um starfsvettvang. Mikilvæg- ast er að forðast einangrun og mentorarnir okkar eru leið til að halda sér í tengslum við vinnumarkaðinn með því að hitta mentor- inn á hans vinnustað. Sumum finnst óþægi- legt að vera spurðir hvað þeir séu að gera. Við því er ósköp einfalt svar fyrir þá sem eru í „Nýttu kraftinn“ en allir geta sagt að þeir séu leikmennirnir á vellinum sem sitja sem stendur á varamannabekk en verða flautaðir inn á völlinn von bráðar.“ María Björk Óskarsdóttir og Sigríður Snævarr standa að „Nýttu kraftinn“. Á námskeiðinu byggja þær upp kraft og jákvæðni fyrir atvinnulausa.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.