Frjáls verslun - 01.01.2009, Qupperneq 86
86 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 9
F lestir eru á einu máli um gildi mennt-unar, bæði fyrir einstaklinginn og samfélagið í heild. Menntun er virði í
sjálfu sér. Hún er óháð hagvexti og því skyn-
samleg fjárfesting hvernig sem árar.
Mímir-símenntun er fyrirtæki sem starfar
á sviði fullorðinsfræðslu og starfsmennt-
unar. Meginmarkmið þess er að bjóða upp
á nám fyrir fullorðna, þróa námsleiðir og
hvetja fólk á vinnumarkaði til símenntunar
og starfsþróunar.
„Hlutverk okkar hjá Mími er að virkja
þekkingu og reynslu einstaklinga í þágu
þeirra sjálfra og samfélagsins í heild. Við
sinnum fólki á vinnumarkaði, þar með
töldum þeim sem eru í atvinnuleit,“ segir
Hulda Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri
Mímis.
„Það er áfall að missa vinnuna og fólk
þarf tíma til að komast yfir það. Flestir
ganga í gegnum sorgarferli fyrst á eftir
en síðan kemur uppbyggingarfasinn. Þá
er Mímir góður valkostur. Fullorðið fólk
á vinnumarkaði getur komið í Mími og
fengið ókeypis náms- og starfsráðgjöf um
formlegt eða óformlegt nám sem og áhuga-
sviðspróf. Fólk pantar einfaldlega tíma hafi
það ekki þegar gert upp við sig hvernig það
vill nýta kraft sinn og orku til að byggja sig
upp.“
Tungumálaáhuginn aldrei meiri
„Hjá Mími eru kennd 17 erlend tungumál í
litlum hópum eða einkatímum. Norskan er
vinsælli nú en áður, enda sér fólk atvinnu-
tækifæri í Noregi og vill því styrkja sig í
málinu. Útlendingar eru
líka duglegir að bæta
við íslenskukunnáttuna,
bæði þeir sem enn halda
vinnunni og hinir sem
eru atvinnulausir. Þeir
vilja styrkja stöðu sína á
vinnumarkaðinum og við
leggjum áherslu á að vera þeim til aðstoðar.
Á einni önn hefur t.d. verið hér fólk af
80–90 þjóðernum,“ segir Hulda.
Sérstaka athygli vekur hvað fólk hefur
sýnt mikinn áhuga á öllu sem viðkemur
heimilisiðnaði í Mími, saumum og prjóna-
skap, og eins myndlist og textaskrifum.
Hulda segir námskeiðin góða leið fyrir fólk
til að gera eitthvað skemmtilegt og bætir
við: „Það má ekki gleyma því að námið er
líka félagsleg athöfn.“
Starfstengt nám styrkir stöðu fólks
Margs konar starfstengt nám er í boði hjá
Mími, hugsað fyrir fólk með stutta form-
lega skólagöngu. Nám í jarðlagnatækni
hefur verið eftirsótt og er fyrir einstaklinga
sem vinna fyrir veiturnar við lagnir í götur
og að húsum. Námið
gefur ákveðin réttindi
sem styrkir stöðu við-
komandi á vinnumark-
aðinum. „Námskeið fyrir
lesblinda eru líka eftirsótt
og við hvetjum fólk til að
nota þennan tíma til að fá
aðstoð á þessu sviði.“
Mímir auglýsir námskeið í upphafi
hverrar annar en enginn ætti að láta það
hefta sig þótt eitthvað sé liðið á önnina
heldur leita upplýsinga, vilji hann kom-
ast á námskeið. Fólk er skrifað niður og
þegar nógu margir eru komnir á listann er
námskeiðið einfaldlega sett af stað, að sögn
Huldu Ólafsdóttur.
Góður
kostur til
uppbyggingar
Ekki er of seint að
koma á námskeið hjá
Mími. Ný námskeið
eru sett upp ef eft-
irspurn er fyrir hendi.
Hulda Ólafsdóttir er framkvæmdastjóri Mímis.
mímir - símenntun