Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2009, Page 87

Frjáls verslun - 01.01.2009, Page 87
F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 9 87 Þegar Magnús Pálsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og markaðsmála Byrs, er spurður um eftirminnilegt námskeið úti á landi nefnir hann námskeið sem hann og félagi hans, Jóhann Ingi Gunnarsson, héldu sumarið 1989 en Magnús starfaði þá sem rekstrarráðgjafi. „Við héldum stjórnendanámskeið í Elliðaey á Breiðafirði og Flatey á Skjálfanda. Áhersla námskeiðanna var að þjálfa stjórnendur í að bregðast við óvæntum aðstæðum.“ Sem dæmi má nefna að þátt- takendur sem dvöldu í Flatey þurftu að veiða sér til matar. „Við lentum í þvílíku uppgripi af þorski.“ Það þurfti að gera að, flaka og grilla fiskinn. Magnús bendir á að á níunda áratugnum hafi komið inn ný sýn á stjórnun, svo sem að fylgjast kerfisbundið með þróun sam- keppni, og aðferðir gæðastjórnunar voru að ryðja sér hratt til rúms. Hann segir að þátttakendur, sem voru reyndir stjórnendur, hafi brugðist vel við enda vanir ýmsum óvæntum aðstæðum í starfi sínu. „Þeim gekk vel að bjarga sér en úti í eyjunum lærðu menn á sjálfa sig, hvernig viðbrögð þeirra voru við óvæntum aðstæðum auk þess sem verið var að þjappa liðsheildinni saman.“ Þátttakendur fengu raunhæf verkefni og fræðigreinar til að lesa. Þeir höfðu síðan stutta stund til að undirbúa sig í tengslum við greinarnar og áttu að setja fróðleik úr þeim í samhengi við framtíðarsýn sína og hvaða aðstæður gætu skapast á næstu árum í fyrirtækjum þeirra. Þegar Magnús er spurður hvað hann sjálfur hafi lært af þessum námskeiðum segir hann: „Að ég þarf að minna sjálfan mig á hve sjóveikur ég verð og hvað stjórnun snýst óendanlega mikið um að þekkja sjálfan sig.“ ÞJÁlFun í tJÁnInGu: Að tjá sig af einlægni og gleði Edda Björgvinsdóttir leikkona var á sínum tíma beðin um að leiðbeina á „Rekspalar-námskeiðum“ sem ætluð voru ríkisstarfsmönnum. Þau voru þannig uppbyggð að þátttakendur skráðu sig á tveggja vikna námskeið þar sem ýmsir aðilar buðu upp á ólík viðfangsefni og síðasta daginn hélt hún utan um það sem kallað var „Þjálfun í tjáningu“. „Ég hef síðan haldið fjölmörg námskeið, meðal annars nokkur þar sem tekið er á því hvað gott er að hafa í huga þegar setið er fyrir framan sjónvarpsvélar. Helsta gryfjan sem fólk fellur í er að það verður stíft og óeðlilegt þegar kveikt er á sjónvarpsvélunum.“ Þegar Edda er spurð hvað fólk, sem þarf að koma fram í sjónvarpi, þurfi að hafa í huga segir hún: „Besta setning sem ég hef heyrt var frá kennara við BBC- sjónvarpsstöðina í Englandi. Hann ráðlagði fólki að steingleyma því að það væru sjónvarpsvélar í gangi og einbeita sér að því að tjá sig af einlægni og gleði.“ Fólk í ýmsum störfum hefur sótt nám- skeið Eddu. „Ég kenni til dæmis fyrirles- urum og leiðbeinendum þá tækni sem leikarar hafa notað í gegnum aldirnar til að flytja mál sitt lifandi og af öryggi. Ég hjálpa feimnu fólki við að öðlast sjálfsöryggi og ég býð upp á námskeið þar sem fjallað er um það hvernig fólk getur reynt að lifa heilbrigðara lífi – þó að það nenni því ekki! Þá er „Samhristingur“ vinsælt nám- skeið hjá fyrirtækjum sem vilja fá nokk- urs konar hópefli í léttum dúr og svo eru „Sjálfsstyrkingar- og gleðinámskeið“ afar vinsæl.“ Edda Björgvinsdóttir, sem hér fer með hlut- verk í leikritinu Fúlar á móti. „Helsta gryfjan sem fólk fellur í er að það verður stíft og óeðli- legt þegar kveikt er á sjónvarpsvélunum.“ EFtIRMInnIlEGt nÁMSkEIð útI Á lAndI Að þekkja sjálfan sig Magnús Pálsson. „Þeim gekk vel að bjarga sér en úti í eyjunum lærðu menn á sjálfa sig, hvernig viðbrögð þeirra voru við óvæntum aðstæðum auk þess sem verið var að þjappa liðsheildinni saman.“
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.