Frjáls verslun - 01.01.2009, Page 90
90 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 9
HORFT TIL FRAMTÍÐAR
Vinsælt er að halda fundi úti á landi og bendir Gunnar Jónatans-
son, framkvæmdastjóri iBt, á að með því fáist meira næði en ella.
„áreiti fer illa með suma stjórnendur auk þess sem ávinningur
er meiri ef fundað er í næði. mesti ávinningurinn er að „tjúna sig
niður“ og hugsa um ákveðna hluti sem erfiðara er að gera á vinnu-
staðnum. fundir á vinnustöðum eiga það til að vera of stuttir en
einn stærsti kosturinn við sveitarferð er að gefa sér tíma og taka
ígrundaðar ákvarðanir.“
hjá sumum fyrirtækjum er utanaðkomandi aðili fenginn til að
sjá um fundarhöld úti á landi en hjá öðrum sjá starfsmenn þess
um skipulagið. „hafa þarf skýr markmið í huga fyrir vinnuferð út
á land; hvað vill fólk fá út úr ferðinni? Því skýrari sem sýnin er því
líklegra er að árangur náist.“
Gunnar segir að fólk þurfi að gæta sín á að hafa dagskrána
ekki of þétta – hafa ekki of mörg og ólík mál í gangi.
„senda má dagskrá fundarins til þátttakenda þar sem kemur
fram hvað standi til, svo sem hvort um stefnumótunarfund sé að
ræða eða hvort taka eigi fyrir einhvern málaflokk. Þá þarf ekki að
upplýsa fólk um það þegar komið er á staðinn.
svo er spurningin hvort dvelja eigi í sumarbústöðum eða á
hóteli og hvort kaupa eigi skemmtiatriði. Gæta verður þess að
keyrslan sé ekki of mikil þannig að fólk komi uppgefið til baka.
hvað varðar veitingar þarf að velta fyrir sér hvort eigi að hafa
áfengi um hönd á kvöldin, hvort t.d. eigi að hafa opinn bar í nafni
fyrirtækisins. einnig þarf að velta fyrir sér hvort stefna eigi í aðrar
áttir eftir að eiginlegum fundi er lokið, svo sem í útivist; vélsleða-
ferðir eru vinsælar á veturna.“
Þegar kjartan Örvar, meltingarlæknir á st. Jósepsspítala, er
spurður hver sé eftirminnilegasta ráðstefnan sem hann hefur sótt
nefnir hann fyrstu ráðstefnuna sem hann sótti á læknaferli sínum.
hún var haldin í san francisco árið 1986 en þangað fór hann
ásamt fjórum félögum sínum og dvöldu þeir í borginni í 10 daga.
Þess má geta að á þeim tíma starfaði kjartan sem deildarlæknir á
landakoti.
„aðaláherslan á ráðstefnunni var á almennar lyflækningar og
hún var stór, mikil og góð. Ég var þarna frá átta á morgnana til
sjö á kvöldin og gleypti allt í mig. Ég upplifði hvað bjó í framtíð-
inni. Þá var upplifunin svo sterk um hve ísland væri lítil þjóð og
hversu margt það væri sem við ættum eftir að gera á íslandi. hins
vegar hefur það breyst. í san francisco kynntist ég fagmennsku og
góðum fyrirlesurum. Þetta var gríðarleg upplifun.“
dvölin í san francisco varð til þess að kjartan ákvað að fara í
framhaldsnám í Bandaríkjunum; í því sambandi nefnir hann vönduð
vinnubrögð og gott skipulag á ráðstefnunni. „Þetta var uppspretta
að framtíðinni.“
kjartan og félagar hans fjórir fóru út á lífið á kvöldin þegar fyr-
irlestrum og sýningum lauk. „Það var stórkostlegt að upplifa san
francisco. í því sambandi vil ég nefna veitingastaði, mikið af djass-
búllum og góðan félagsskap. Þetta var upplifun í alla staði. Við
félagarnir skemmtum okkur enn við sögur úr þessari ferð.“
eftirminnileG ráðstefna
Uppspretta
að framtíðinni
fundir úti á landi
Meira næði
í sveitasælunni
Gunnar Jónatansson. „Hafa þarf skýr markmið í huga fyrir vinnuferð
út á land; hvað vill fólk fá út úr ferðinni? Því skýrari sem sýnin er,
þeim mun líklegra er að árangur náist.“
Kjartan Örvar meltingarlæknir. „Í San Francisco kynntist ég fag-
mennsku og góðum fyrirlesurum. Þetta var gríðarleg upplifun.“