Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2009, Page 94

Frjáls verslun - 01.01.2009, Page 94
94 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 9 „Tekjur skipta að öllu jöfnu litlu máli,“ segir Ingólfur. „Við leggjum megináherslu á að kenna fólki að stýra útgjöldunum svo að sem mest verði úr peningunum sem það hefur á milli hand- anna. Útgjöldum er skipt í þrjá flokka: Afborganir lána, neyslu og sparnað. Ráðgjöfin felst í að fólk nái sem mestum árangri með hvern þessara þriggja útgjaldaliða. Spara.is hefur þróað hugbúnað, Fjárhagskerfi heimilisins, sem hjálpar fólki að stýra útgjöld- unum, að greiða hratt niður lán og spara með því tugi milljóna í vexti og verðbætur með þeim peningum sem fara nú þegar í afborganir. Tilgangurinn með útgjaldastýringunni er m.a. að hafa gaman af að nota peningana því að þá verður miklu meira úr þeim en ella. Sparnaður er svo skemmtilegasti útgjaldaliðurinn af öllum og kannski sá mikilvægasti um leið og hann er sá eini sem getur stöðvað skuldasöfnun og búið til meiri peninga. Í sparnaði er nefnilega hægt að nota sömu krónurnar mörgum sinnum.“ – En hvað geta þeir gert sem missa vinnuna? „Við atvinnuleysi eða annað tekjuhrun verða lánastofnanir og hið opinbera að heimila frystingu afborgana, skuldbreyta og fresta innheimtuaðgerðum vegna vanskila. Ekki er hægt að greiða af lánum ef hlutfall afborgana fer skyndilega úr 30% af ráðstöfunartekjum í 60% eða þaðan af meira. Sá atvinnulausi þarf og getur sjálfur stýrt vandlega öðrum útgjaldaliðum en ég vara fólk við að fara hina algengu niðurskurðarleið. Bæði er að hún virkar ekki nema í besta falli í stuttan tíma og hún er afskaplega leiðinleg. Loks fer hún afar illa með hjónabandið. Í staðinn legg ég áherslu á neyslustýringu sem er árangursrík, varanleg og lærdómsrík, ekki síst fyrir börn og unglinga, og hún getur auk þess verið skemmtileg.“ –Á fólk að reyna að greiða niður myntkörfulánin illræmdu? „Nei, gengisforsendur eru brostnar, ekki bara vegna gengishruns íslensku krónunnar heldur, og ekki síður, vegna þess að það er ekki til neitt markaðsgengi fyrir hana.“ Að mati Ingólfs eyðileggja íslenska rússíbanahagkerfið, ofur- vextir, atvinnuleysi og tveggja stafa verðbólga öll góð fyrirheit og gera fólki nánast ókleift að ráða fram úr sínum málum. Einstakl- ingsbundin ráðgjöf er nauðsynleg þegar velja skal öruggustu ávöxt- unarleiðina og skynsamlega eigna- stýringu í kreppunni. Hið opin- bera verður þó ekki síður að grípa inn, líta á útgjaldahlið heimilanna og frysta afborganir lána sem hafa tvöfaldast og verðtryggingu sem gerir fólk jafnvel eignalaust.“ Ingólfur H. Ingólfsson bendir á að fólk geti fengið fréttabréf spara.is sent frítt til áskrifenda en þar er fjallað um mál sem koma flestum fjölskyldum til góða varðandi fjármál þeirra. Sparnaður skemmtilegasti og mikilvægasti útgjaldaliðurinn Tveir grunnþættir skipta mestu máli í rekstri hvers heimilis, að mati ingólfs H. ingólfssonar, framkvæmdastjóra Spara.is., sem hefur leiðbeint fólki sem vill losna úr skuldafjötrum. Þessir grunnþættir eru viðhorfið til fjármála, og þá peninga sérstaklega, sem og notkun þeirra, þ.e.a.s. útgjöldin. sPara.is
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.