Frjáls verslun - 01.01.2009, Qupperneq 106
106 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 9
v e r Ð L a u n a a f h e n D i n g
r
annveig Rist, forstjóri Alcan á
Íslandi, fékk FKA-viðurkenninguna
að þessu sinni. Gæfusporið
2009 hlaut Auður Capital og
tók Halla Tómasdóttir við verðlaununum.
Þakkarviðurkenninguna fékk Guðrún
Birna Gísladóttir, forstjóri dvalarheim-
ilisins Grundar og Hvatningarverðlaunin
hlaut Agnes Sigurðardóttir, eigandi
Bruggsmiðjunnar á Árskógssandi.
Rannveig Rist sagði meðal annars í
ræðu sinni við þetta tækifæri: „Mér þykir
vænt um að fá þessa viðurkenningu hér í
þessu notalega umhverfi.Stundum þegar ég
lít í baksýnisspegilinn finnst mér sem leiðin
hafi ekki verið sérstaklega greið. Þegar ég
byrjaði í námi við Vélskóla Íslands hvöttu
mjög margir mig til þess að leggja stund
á eitthvert annað nám. Og þegar ég fór í
vélaverkfræði við Háskóla Íslands þögnuðu
þessar raddir ekki. Það væri jú skynsam-
legra að fara í læknisfræði eða lögfræði.
Verkfræðin væri ekki líkleg til að skapa mér
almennilega, vel launaða vinnu. Hins vegar
ber svo við að elsta dóttir okkar er komin í
verkfræðina og það hefur aldrei neinn reynt
að telja hana af því. Þetta er árangursrík
breyting.
Ég hef líka oft í gegnum tíðina fengið
spurninguna um hvernig það gangi upp
að vera forstjóri ásamt því að eiga börn
og buru. Mér finnst það vera ágætis
vitnisburður að dóttir mín er komin inn á
sömu námsbraut og ég fór á á sínum tíma.
Það færir okkur heim sanninn um það að
konur geta tekið að sér ábyrgðarstörf í
atvinnulífinu án þess að vera endalaust
með hið fræga samviskubit. Þetta er leið
sem er orðin fær. Mig langar líka til að
vekja athygli á því hvað Félag kvenna í
atvinnurekstri hefur gert fyrir konur, eins og
að halda svona samkomur líkt og hér og
hvetja til jákvæðrar athygli á því sem konur
eru að gera í atvinnulífinu. Það er mikils
virði. Og það er annað sem ég vil nefna;
konur hafa alltaf verið duglegar við að
standa saman í erfiðleikum, þegar á bjátar.
Þá kunna þær líka að koma saman þegar
vel gengur, fagna og hrósa sigri og gefa hver
annarri klapp á bakið. Það er ánægjuleg
breyting sem ég skynja og hún færir okkur
enn frekar í átt til jafnréttis.
Mér þykir afar vænt um þessa viðurkenn-
ingu, ekki síst nú á dögum kreppu í þjóð- og
efnahagslífi Íslands; við stöndum á sér-
stökum tímamótum og mér þykir viðurkenn-
ingin meira virði þar sem hún er gefin í
dag.“
auður Capital
hlaut gæfusporið
Halla Tómasdóttir:
„Við erum auðvitað
bæði stolt og glöð yfir
að taka við svona
viðurkenningu á okkar
starf. Árið 2007
skildu ekki allir hvað
við vorum að fara
en við lögðum mikið
upp úr mannlegum, eða jafnvel kvenlegum,
áherslum. Það sem þjóðin hefur gengið í
gegnum undanfarna mánuði hefur kannski
undirstrikað þá þörf að við séum með fjöl-
breyttari gildi. Og kvenlægari gildi. Ég trúi
Blásið var til veglegrar veislu í húsakynnum Perlunnar
þegar árleg verðlaunaafhending FKA, Félags kvenna í
atvinnurekstri, fór fram en tíu ár eru frá stofnun félagsins.
Formaður FKA, Margrét Kristmannsdóttir, framkvæmdastjóri
Pfaff, ávarpaði gesti og Björgvin G. Sigurðsson, þáverandi
viðskiptaráðherra, afhenti verðlaunin.
FKA TÍU ÁRA
rannveig fékk
fka verðlaunin
TExTi: hrund hauksdóttir MyNDiR: fka
Halla Tómasdóttir