Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2009, Page 110

Frjáls verslun - 01.01.2009, Page 110
110 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 9 kvikmyndir Nýjasta kvikmynd Clints Eastwoods er um leið síðasta kvikmyndin sem hann leikur í að eigin sögn, en þó að hann sé orðinn 78 ára gamall ætlar hann að halda áfram að leikstýra kvikmyndum TExTi: hilmar karlsson þ að er skammt á milli kvikmynda hjá Clint Eastwood þessa dagana. Changeling, þar sem hann leikstýrir Angelinu Jolie í hlutverki sem hefur skilað henni Óskarstilnefningu, hefur fengið góðar viðtökur og nýjasta kvikmynd hans, Gran Tor- ino, sem frumsýnd var vestanhafs í desember og tekin til almennra sýninga í janúar hefur ekki síður fengið góðar viðtökur. Báðar kvikmyndirnar segja sögu af dramatískum atburðum, Changel- ing snemma á síðustu öld og Gran Torino í nútímanum. Stærsti mun- urinn er að Clint Eastwood leikur í Gran Torino en ekki í Changel- ing og að hans sögn er þetta síðasta hlutverkið sem hann leikur í kvikmynd. Sá gamli er þegar farinn að undirbúa næstu kvikmynd sína, The Human Factor, þar sem hann verður eingöngu bak við myndavélina. Er sú kvikmynd byggð á bók eftir John Cook og fjallar um Nelson Mandela og gerist eftir fall aðskilnaðarstefnunnar í Suður- Afríku. Morgan Freeman leikur Mandela og Matt Damon fyrirliða landsliðs Suður-Afríku í rugby, en sú íþrótt kemur mikið við sögu í myndinni. stríðshetja sem þolir ekki fólk Með titlinum Gran Torino er vísað til Ford-bíla sem voru framleiddir snemma á áttunda áratugnum. Aðalpersóna myndarinnar, Walt Kowalski, sem Eastwood leikur, á einn slíkan. Kowalski er ekkju- maður, fyrrverandi hermaður sem tók þátt í Kóreustríðinu, úrillur harðjaxl sem þolir ekki nágranna sína, sem flestir eru innflytjendur eða svartir, og hefur allt á hornum sér. Það eina sem honum þykir vænt um er bíllinn hans sem er Gran Torino, módel 1972. Gran Tor- ino gerist í bílaborginni Detroit og í upphafi er Kowalski nýbúinn að missa eiginkonuna og er ekki ánægður með útfararræðu prestsins og lætur hann heyra það. Einn nágranni Kowalskis er hinn 17 ára gamli innflytjandi Thao, sem vill vera maður með mönnum og komast inn í gengið í hver- finu. Til að svo verði þarf hann að stela bíl Kowalskis, sem tekst ekki betur en svo að Kowalski kemur að honum við þjófnaðinn og beinir að honum riffli. Thao flýr, hættir við inngöngu í gengið og verður þá um leið skotspónn gengisins. Þegar þjarmað er að Thao í nágrenni við Kowalski kemur hann drengnum og systur hans til hjálpar. Fer nú að þróast vinskapur milli þessara tveggja ólíku einstaklinga sem gerir að verkum að Kowalski lítur öðrum augum á veröldina. Þegar gengið rænir svo systurinni, pyntar hana og nauðgar er Kowalski nóg boðið og snýst gegn genginu af fullum krafti og verður það hlutverk prestsins í hverfinu að reyna að sætta stríðandi öfl. Clint Eastwood lýsir Kowalski þannig: „Kowalski er stríðshetja sem unnið hafði lengi í færibandavinnu hjá Ford-verksmiðjunum og er kominn á eftirlaun. Dýrgripur hans er Gran Torino sem hann hefur alla tíð annast vel, mun betur en afkomendur sína, sem hann hefur fyrirlitningu á. Þá þykir honum einnig vænt um M-1 riffilinn sinn sem minnir hann á forna dýrðardaga í hernum. Kowalski heldur í minningarnar úr hernum sem gerir honum erfitt að umgangast aðra og aðlagast breyttu lífsmunstri.“ Leikarar í Gran Torino eru nánast allir óþekktir fyrir utan East- wood. Bee Wang, sem leikur Thao, hafði aldrei áður komið fram fyrir kvikmyndavélar fyrr en Eastwood valdi hann í hlutverkið. Það sama má segja um Ahney Her, sem leikur systur Thaos, Sua, hún hafði aldrei leikið í kvikmynd áður. Sonur Clints Eastwood, Scott, leikur lítið hlutverk í myndinni og annar sonur hans, Kyle, er annar höfunda tónlistar í myndinni. Clint hefur sjálfsagt haft eitthvað um tónlistar- valið að segja eins og í flestum sínum kvikmyndum, en eins og margir vita er hann vita ágætur píanóleikari og hefur samið tónlist við fáeinar kvikmyndir sínar, meðal annars Changeling og Million Dollar Baby. fimmtíu ár í kvikmyndum Á fimmtíu ára ferli í kvikmyndaheiminum hefur Clint Eastwood leikið í rúmlega 60 kvikmyndum og leikstýrt 30. Eins og áður segir hefur hann ákveðið að hlutverk hans í Gran Torino verði hans síðasta gRan ToRino
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.