Frjáls verslun - 01.01.2009, Qupperneq 113
fólk
F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 9 113
„Maðurinn minn er
mikill golfáhugamaður
og sl. sumar
ferðuðumst við
hringinn með fellihýsið
og golfsettin og
spiluðum á ótal völlum
í ferðinni.“
sigurboginn var stofnaður 1992. Upp- haflega var megináherslan lögð á sölu snyrtivara og fylgihluta, s.s. á töskum
og skarti. Í gegnum tíðina hefur verslunin
tekið miklum stakkaskiptum og vörufram-
boð aukist. Í dag getur konan nálgast í versl-
uninni flest það sem hana vanhagar um í
snyrtivörum, fatnaði og fylgihlutum. Kristín
Einarsdóttir stofnaði Sigurbogann á sínum
tíma og hefur rekið verslunina frá upphafi:
„Í litlu fyrirtæki, sem aðeins hefur 3–5
starfsmenn, ýmist í fullu starfi eða hluta, hvílir
rekstrarábyrgðin á mér, hvort sem heldur eru
fjármál, markaðsmál eða innkaup. Ég var að
koma frá París um síðustu mánaðamót eftir
að hafa verið þar á innkaupasýningu og var
áberandi hversu færri fyrirtæki voru að sýna
haust- og vetrarfatnaðinn 2009–10. Einnig
voru innkaupaaðilar talsvert mikið færri
heldur en undanfarin ár. Greinilegt er að
samdrátturinn á sér stað úti um allan heim.
Þessa dagana eru að koma í verslunina
vorvörurnar, s.s. peysur, kjólar og skyrtur.
Ég hef farið hægt og rólega í aukningu á
fatnaði. Plássið í versluninni er ekki mikið og
því þarf að vanda valið geysilega þegar keypt
er inn. Ég hef alltaf haft gaman af fallegum
fötum og nota einungis innsæi mitt þegar ég
vel fötin í búðina. Með mér í innkaupum hef
ég alltaf verslunarstjórann minn, Guðbjörgu
Hjálmarsdóttur. Hún er mín hægri hönd og
reglan er sú hjá okkur að ef að annarri líkar
ekki varan, þá er hún ekki keypt inn.
Ég hef alltaf sagt að gæfa mín í rekstri sé
hversu heppin ég hafi verið með starfsfólk
og svo hef ég verið einstaklega gæfusöm að
eignast fjölmarga fasta viðskiptavini sem hafa
fylgt mér í gegnum árin.“
Áður en Kristín fór í eigin verslunarrekstur
var hún sölustjóri hjá Klassik sf. sem var
umboðsaðili fyrir snyrtivörur, s.s. frá Yves
Saint-Laurent, La prairie o.fl. „Einnig sá
ég um þjálfun fyrir sölufólk í verslunum í
þessum vörumerkjum. Ég þurfti því oft að
fara utan á þessum tíma, á ýmis námskeið sem
haldin voru á vegum þessara stóru fyrirtækja.
Þarna fékk ég frábært tækifæri til að kynnast
framleiðslufyrirtækjunum innan frá.“
Kristín á tvo drengi frá fyrra hjónabandi:
„Eldri sonurinn er lærður flugmaður og
flugkennari. Sá yngri er á þriðja ári í lögfræði
í HÍ. Sambýlismaður minn, Kristján, er
stjórnunarráðgjafi hjá Capacent. Hann á þrjú
börn og barnabörnin eru orðin sjö. Ég reyni eftir
fremsta megni að sinna litla ungviðinu þegar
tækifæri gefst. Heimsókn í sunnudagaskólann
er alltaf mikið tilhlökkunarefni.
Hin síðari ár hef ég fengið tækifæri til að
ferðast um óbyggðir Íslands og hef haft ótrúlega
gaman af því. Maðurinn minn er mikill
golfáhugamaður og sl. sumar ferðuðumst
við hringinn með fellihýsið og golfsettin og
spiluðum á ótal völlum í ferðinni.
Mér finnst golfíþróttin afskaplega
skemmtileg en gamli ungmennafélagsandinn
ræður aðallega ríkjum hjá mér. Útivera og
hreyfing hentar mér vel og það sameinast vel
í golfinu.
Ég hef reyndar fengið ótal tækifæri til að
spila á frábærum golfvöllum á Spáni þar sem
við eigum skjól. Haust- og vetrarferðir þangað
eru alltaf vel þegnar. Í þessum tækniheimi
nú til dags er mögulegt að dvelja erlendis
nokkrar vikur á ári án þess að detta út úr
rekstrinum.
verslunareigandi, Sigurboganum
Kristín Einarsdóttir
Nafn: Kristín Einarsdóttir
Fæðingarstaður: Reykjavík,
11. desember 1955.
Foreldrar: Kristrún D.
Guðmundsdóttir (látin), Einar R.
Finnbogason.
Maki: Kristján Kristjánsson.
Börn: Ásgeir Orri 29 ára, Rúnar
ingi 23 ára.
Menntun: Verslunarskóli
Íslands, verslunarpróf 1973.