Frjáls verslun - 01.02.2005, Síða 92
92 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 5
AMERÍSKIR DAGAR
V ið höfum orðið vör við mikinn áhuga almennings á því að ferð-ast vestur um haf og allar markaðsrannsóknir hafa stutt þessa tilfinningu okkar. Gengi dollarans og aukið framboð ferða
hefur ýtt undir þennan ferðaáhuga að okkar mati. Í dag eru bókanir
á New York, Boston og Orlando um 50% fleiri en á sama tíma í fyrra,
sem er jafnvel meira en búist var við,“ segir Stefán Sveinn Gunnars-
son, markaðsstjóri hjá Icelandair.
Í áraraðir hafa ferðir til Evr-
ópu eða á sólarströnd verið fyrsti
valkostur landans þegar kemur
að því að ákveða hvert halda skal
erlendis í sumarleyfinu. Með nýrri
kynslóð virðist þetta vera að breyt-
ast og ferðir til Bandaríkjanna eru
komnar mun ofar á blaðið.
Sól og sumarylur „Síðustu ár
höfum við orðið varir við breytta ferða hegðun hjá Íslendingum,“
segir Stefán. „Í stað þess að ein ferð sé farin á ári fer fólk nú orðið
oftar til útlanda og svo virðist sem viðskiptavinir okkar séu að bóka
sig með mun skemmri fyrirvara en áður. Dollarinn ýtir undir þetta,
gengið hefur verið í algeru lágmarki, hægt er að gera góð kaup og
ekki síður ferðast og njóta lífsins.“
Varla ætti að koma á óvart að sólarparadísin á Flórída sé vinsæll
áfangastaður farþega Icelandair, enda eru ferðamenn frá Íslandi
öðru fremur að sækjast eftir sól og sumaryl þegar þeir fara út fyrir
landssteina. „Orlando lítur út fyrir að verða vinsælasti áfangastað-
urinn,“ segir Stefán Sveinn. „Það kemur ekki á óvart, æ fleiri Íslend-
ingar eru að uppgötva hvað Flórída er þægilegur staður. Mikið er um
að vera fyrir fjölskyldufólk, veðrið gott, veðursveiflur litlar og svo er
þetta paradís golfara.“
Kalifornía er mögnuð Fleiri ákvörðunarstaðir Icelandair vestra njóta
vinsælda og þar nefnir Stefán Sveinn sérstaklega Boston. Bókanir
þangað séu nær helmingi meiri en á sama tíma fyrir ári – sem geti
Bandaríkin eru æ vin-
sælli hjá Icelandair.
Dollarinn hvetur fólk
til að ferðast á nýjar
slóðir vestra. Aukin
ferðatíðni er yfir hafið.
Vesturferðir
æ vinsælli
ICELANDAIR
meðal annars helgast af því að áhrifa frá Evrópu gæti mjög sterkt
þar, meira en í flestum borgum Bandaríkjanna. „Í Boston sjást mikil
áhrif frá evrópskri menningu, hvort sem er í mat, tísku eða atferli
fólks,“ segir Stefán Sveinn.
Sem kunnugt er mun Icelandair hefja flug til San Fransisco um
miðjan maní næstkomandi – og virðist þessi nýi ákvörðunarstaður
ætla að ná vinsældum miklum. „Við erum mjög stolt af því að bjóða
loks beint flug til vesturstrandar Norður-Ameríku og fólk er að átta
sig á því hve magnaður staður Kalifornía er. Vegna hnattstöðu og
leiða er flugið til San Fransisco litlu lengra en til Orlando, þannig að
flugtími ætti ekki að vera nein fyrirstaða. En fyrst og fremst er ævin-
týri að koma til Kaliforníu; fallegt landslag og margir skemmtilegir
staðir að skoða. Það er til dæmis upplifun að aka um vesturströnd
Bandaríkjanna og koma til Las Vegas og fleiri staða.“
Ferðatíðni eykst um 15% Hlutur Icelandair í farþegaflutningum yfir
Atlantshafið er allstór – og staða félagsins hvað það varðar styrkist
með aukinni ferðatíðni. Í ár fjölgar ferðum félagsins um nær 10%,
þar af til Bandaríkjanna um nær 15%. Á Evrópuleiðum er fjöldi ferða
héðan og til Helsinki, Berlínar og München aukinn verulega.
„Sérstaklega hafa aukist flutningar yfir hafið frá Þýskalandi og
Finnlandi. Aukið framboð sem styrkir leiðakerfið í heild sinni, auk
þess sem okkar fólk í Bandaríkjunum er að gera góða hluti í að
markaðssetja Icelandair sem hagstæðasta kostinn vestur um haf.
Á hitt ber þó auðvitað að líta að þó hátt gengi dollarans geri ferðir
vestur hagstæðan kost fyrir Íslendinga er engu að síður merkilegt
að skrifstofa okkar í Bandaríkjunum skuli ná jafn góðum árangri
og raun ber vitni þar við sölu ferða til Evópu, því að gengi dollarans
gerir starfið á vetrarmörkuðum óhjákvæmilega erfiðara en ella,“
segir Stefán Sveinn Gunnarsson.
„Bókanir á New
York, Boston
og Orlando eru
nánast 50% fleiri
en á sama tíma
í fyrra,“ segir
Stefán Sveinn
Gunnarsson,
markaðsstjóri
hjá Icelandair.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
C
E
26
90
0
1
2/
20
04
*Innifalið: Flug, flugvallarskattar og eldsneytisgjald
Verð frá 36.900 kr.*
Bókaðu á www.icelandair.is
Netsmellur til USA
Bandaríkjaferðir á frábæru verði