Tímarit Máls og menningar - 01.12.1940, Page 3
TIMARIT
MÁLS OG MENNINGAR
RITSTJÓRI: KRISTINN E. ANDRÉSSON
1940 • SEPT.-DES. • 3. HEFTI
ÍSLENZK HEILDARÚTGÁFA AF VERKUM GUNNARS GUNN-
ARSONAR. Tímariti Máls og menningar er það fagnaðarefni að
geta skýrt lesendum sínum frá þvi, að væntanleg er á íslenzku
heildarútgáfu á verkum Gunnars Gunnarssonar. Var i haust stofn-
að nýtt útgáfufélag, Landnáma, sem tekur að sér þessa útgáfu.
Úr boðsbréfi, sem útgáfuráð Landnámu liefur sent til manna
um allt land, leyfum vér oss að taka upp þennan kafla:
„Löngu fyrir heimkomu Gunnars voru uppi margar raddir,
sem töldu þjóðinni ekki vansalaust, að rit hans hafi ekki ver-
ið gefin út á íslenzku. Nú eru þessar raddir orðnar enn fleiri
og enn háværari. Það var framar öllu nauðsynin á þessari út-
gáfu, sem hratt þessu félagi af stokkunum, þó að fleiri verk-
efni bíði þess.
Gunnar Gunnarsson er nafnkunnastur erlendis allra íslenzkra
rithöfunda. Sum rit hans eru tekin í úrvals'rit heimsbókmennt-
anna. Danir telja liann einn bezta rithöfund á danska tungu, og
þeir hafa lilotið bróðurpartinn af frægð hans. Úr dönsku hafa
rit hans verið þýdd, og til Danmerkur hefur verið leitað um
útgáfurétt á þeim. Margir ókunnir hafa talið hann danskan rit-
höfund. Mörgum íslendingi hefur sviðið þetta sárt. Eigi vitum
vér, hvernig Gunnari Gunnarssyni hefur fallið þetta, en vér
þykjumst skynja, að heimsfrægðar hafi hann leitað til þess að
hefja veg og virðingu íslands. Víst er um það, að Gunnar Gunn-
arsson er umfram allt íslenzkur rithöfundur. Sögur
hans fjalla um íslenzka menn og íslenzk lífskjör. Þær eru ís-
lenzkar bókmenntir. Gunnar Gunnarsson er íslenzkur i lund,
steyptur í mót íslenzlcs bónda. Það er því naumast tilviljun, eða
duttlungar draumóraskálds, er hann flyzt heim og stofnar bú,
lieldur lifsnauðsyn íslendings, sem kominn er af bændum í ætt-
ir fram, og borið hefur tregandi heimþrá til móðurstranda.
íslandi ber heiður af kjarnanum i verkum Gunnars Gunnars-
sonar og því þreki, sem skáldið hefur búið yfir. Það er þvi
13